Kergja í Hornfirðingum vegna heimagistingar Garðar Örn Úlfarsson skrifar 25. apríl 2015 07:00 Vaxandi fjöldi ferðamanna sækir Hornafjörð heim þar sem menn hafa jafnvel flutt úr húsum sínum til að geta selt gistingu. Fréttablaðið/Pjetur „
Það er svolítil kergja hér í samfélaginu út í þennan gistimöguleika,“ segir Björn Ingi Jónsson, bæjarstjóri í Hornafirði, þar sem bæjaryfirvöld hafa sett þrengri takmarkanir á fjölda rýma í heimagistingu en lög gera ráð fyrir. Vorið 2014 settu Hornfirðingar inn ákvæði í aðalskipulag um að í þéttbýli mætti aðeins nýta tvö rými í hverri íbúð undir heimagistingu. Björn segist ekki vita um slíka skilmála í aðalskipulagi annarra sveitarfélaga. Samkvæmt lögum geti heimagisting verið í allt að tíu rýmum fyrir sextán manns. „Menn voru hræddir um að þetta gæti verið ansi mikið inngrip í eignarrétt og atvinnufrelsi. Frekar en að bíða eftir því að einhver færi kannski í mál fannst mönnum eðlilegt að reyna að rýmka þetta og þess vegna hækkuðum við þetta upp í fjögur rými,“ segir Björn með vísan til þess að bæjarstjórnin hefur nú víkkað rammann.Björn Ingi Jónsson, bæjarstjóri á Hornafirði, segir skilmála sveitarfélagsins hafa lítil heftandi áhrif á núverandi húseigendur.„Menn telja lagaumhverfinu og eftirlitinu hjá löggjafanum verulega ábótavant og að menn séu kannski komnir út fyrir anda þessara laga frá þessum tíma. Við höfum horft upp á það hér að fólk er jafnvel að flytja út úr húsum; er skráð með lögheimili en býr ekkert í húsinu vegna þess að það er að leigja hvert einasta herbergi,“ segir bæjarstjórinn. Þrátt fyrir að Hornfirðingar setji enn mun þrengri skorður við heimagistingu en lög gera ráð fyrir óttast Björn ekki lögsóknir úr þessu. „Þótt lögin segi tíu rými þá ættu nánast allir að geta fullnýtt það húsnæði sem þeir eiga með fjórum rýmum. Við erum að horfa á þá staðreynd að 97 eða 98 prósent húsa á Hornafirði eru með þrjú til fimm svefnherbergi. Þannig að þetta á í raun að hafa sáralítil heftandi áhrif á þá húseigendur sem vilja nýta núverandi húsnæði sitt,“ segir Björn. Að sögn bæjarstjórans hefur ekki orðið mikil uppbygging á nýjum gistimöguleikum í þéttbýli á Hornafirði þótt gífurleg uppbygging hafi orðið á gistirými í sveitarfélaginu í heild. „Margir telja eðlilegt að ferðaþjónustan byggi sjálf en taki ekki íbúðarhúsnæði undir sig,“ segir hann. Angi af þessu máli er ný samþykkt bæjarstjórnar um niðurfellingu á gatnagerðargjöldum á íbúðalóðum sem þegar eru tilbúnar á Höfn. Björn segir að fyrir þá sem vilja koma á Höfn sé torvelt að fá leiguhúsnæði. „Þessi niðurfelling er háð því að ekki má nýta húsnæðið næstu þrjú ár í ferðaþjónustu – nema þá að greiða gatnagerðargjöldin,“ segir bæjarstjórinn.
Mest lesið Vaktin: Almyrkvi á sólu á Íslandi Innlent Bein útsending: Almyrkvi á sólu Innlent Klukkan hvað þarf að vera kominn út til að missa ekki af almyrkvanum? Innlent Tveir handteknir erlendis vegna manndrápsins Innlent Stúlkan breytti frásögninni og Högna sleppt úr fangelsi Innlent Hvað á að gera við sólmyrkvagleraugun? Innlent Kristrún þurfi að stíga upp – Ólafur beri ábyrgð á Nei-inu Innlent Maðurinn sem fannst látinn var íslenskur Innlent Viðbúnaður vegna eldsvoða í Grafarvogi Innlent Stríðsfangar barðir og beittir kynferðislegu ofbeldi Erlent Fleiri fréttir Stúlkan breytti frásögninni og Högna sleppt úr fangelsi Bíll við bíl á Snæfellsvegi Myndaveisla: Fjölmenni á Seltjarnarnesi Hvað á að gera við sólmyrkvagleraugun? Almyrkvinn allsráðandi í kvöldfréttum Sýnar Maðurinn sem fannst látinn var íslenskur Bein útsending: Almyrkvi á sólu Vona að skýin víki fyrir sólinni eins og þau gerðu í Texas Kristrún þurfi að stíga upp – Ólafur beri ábyrgð á Nei-inu Norðurljós, almyrkvi og stjörnuhrap allt sama daginn sé fallegur möguleiki „Alskýjaður almyrkvi er líka mögnuð og merkileg upplifun“ Loka Hvalfjarðargöngunum ef umferð verður of mikil Spennan magnast á almyrkvadegi Tveir handteknir erlendis vegna manndrápsins Klukkan hvað þarf að vera kominn út til að missa ekki af almyrkvanum? Einn fluttur á sjúkrahús og eldurinn slökktur Mannfjöldinn á Vestfjörðum margfaldast vegna almyrkvans Nóg af bílastæðum á Breiðavík en ekki á Rauðasandi og Bjargtöngum Viðbúnaður vegna eldsvoða í Grafarvogi Umferðarstýring gangi vel og ökumenn hlýði einstefnu Tólf hundruð ferðamenn fluttir í rútum á Snæfellsnes Vegfarendur gefi sér góðan tíma til ferðalaga í dag Tveir handteknir í tengslum við heimilisofbeldi Vaktin: Almyrkvi á sólu á Íslandi Ferðamenn koma til að spyrja eftir hundinum Maðurinn fundinn Fjórfalt fleiri lögreglumenn vakta Vestfirði Skemmdir á nýrri vatnsleiðslu til Eyja Leita svara við aldargamalli ráðgátu sólarinnar Gætu þurft að skila skyndibitaumbúðum Sjá meira