Flóðahætta svipuð og var 2006 Stefán Rafn Sigurbjörnsson skrifar 13. mars 2015 07:00 Svona var ástandið við Auðsholt í Hvítárflóði 2006. Flóðahætta gæti orðið í leysingum um helgina. Fréttablaðið/Stefán
Veðurstofan hefur sent frá sér viðvörun vegna vatnavaxta og hláku sunnan- og suðaustanlands. Þetta kemur fram á vefsíðu almannavarnadeildar Ríkislögreglustjóra. Spáð er mikilli rigningu sunnan- og suðaustanlands ásamt auknum hlýindum í dag og yfir helgina. „Það er sambærilegt veðurfar og árið 2006 þegar urðu miklir vatnavextir í Ölfusá og Hvítá,“ segir Guðrún Jóhannesdóttir, verkefnastjóri hjá almannavarnadeild. „Þetta veðurmynstur kemur upp á nokkurra ára fresti. Við ráðleggjum fólki að hreinsa frá frárennslisrörum og niðurföllum til að koma í veg fyrir tjón. Veðurstofan er síðan að vakta öll helstu hættusvæði og mun gefa út tímanlegar viðvaranir ef þörf þykir,“ segir Guðrún. Miklum leysingum er spáð um allt land og sérstaklega er varað við vatns- krap- og aurflóðum. „Það er mikið um aukin hlýindi um allt land og það er mikill snjór um landið allt,“ segir Svava Björk Þorláksdóttir, landfræðingur hjá Veðurstofu Íslands. „Þannig að það er hætta á miklum leysingum um landið allt og í raun og veru ekkert eitt svæði sem þarf að vakta sérstaklega. Við þurfum að vera varkár og hafa augun opin um allt land,“ segir Svava.
Mest lesið Guðmundur Ingi segir sig úr Flokki fólksins Innlent Maðurinn sem fannst í Ölfusá er látinn Innlent Flugstjórinn þögull sem gröfin Innlent Æsilegri eftirför lauk í Skútuvogi Innlent Gera ekki aðra atlögu Innlent Fékk uppsagnarbréf og hótar málsókn Innlent „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Innlent Aðstoðarflugmaðurinn gæti talist samábyrgur Innlent Pétur Gautur leggur fram kæru vegna tilhæfulausra ásakana Innlent Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Erlent Fleiri fréttir Kristrún hafi staðið sig best en Inga verst Þögul sem gröfin um meintan trúnaðarbrest Maðurinn sem fannst í Ölfusá er látinn Deilt um orðalag á kjörseðli, trúnaðarbrestur og vinsældir ráðherra Fékk uppsagnarbréf og hótar málsókn Miðflokkurinn úr leik í Árborg Krefja Ingu svara við leikskólaáformum Samfylkingarinnar „Við lítum þetta mál mjög alvarlegum augum“ Æsilegri eftirför lauk í Skútuvogi „Þetta er erfiður mánudagur“ Guðmundur Ingi segir sig úr Flokki fólksins Pétur Gautur leggur fram kæru vegna tilhæfulausra ásakana Drengurinn kominn heim til sín Aðstoðarflugmaðurinn gæti talist samábyrgur Gera ekki aðra atlögu Lækka leikskólagjöld til að bregðast við verðbólgu Sjá ekki fyrir endann á ástandinu í fangelsunum Flugstjórinn þögull sem gröfin Lækka gjöld í sveitarfélaginu og fangaverðir segja kerfið komið að þolmörkum Erfiðara að berjast við stjórnvöld en að lifa með náttúruvá „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Fangaverðir segja fangelsiskerfið „algjörlega komið að þolmörkum“ Lundinn sestur upp í Hafnarhólma Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Lágflugið vekur athygli erlendis Fimmtíu skjálftar suðvestan við Hestfjall Vonar að skólastarf verði í bænum þrátt fyrir tilmælin Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ „Deilum við Norðmenn um meira en síld og makríl“ Hraða verði endurskoðun á endurgreiðslukerfinu Sjá meira