Skrifstofustjóri í stjórnarframboði Jón Hákon Halldórsson skrifar 12. mars 2015 07:00 Maríanna Jónasdóttir, skrifstofustjóri í fjármálaráðuneytinu, hefur unnið lengi fyrir Lífeyrissjóð starfsmanna ríkisins. fréttablaðið/Vilhelm
Skrifstofustjóri skrifstofu skattamála í fjármála- og efnahagsráðuneytinu, Maríanna Jónasdóttir, er í framboði til stjórnar Vátryggingafélags Íslands. Aðalfundur er haldinn í dag. Maríanna er fyrrverandi stjórnarformaður Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins og hefur jafnframt gegnt öðrum trúnaðarstörfum fyrir sjóðinn. Maríanna nýtur stuðnings lífeyrissjóðsins í framboði sínu, en A-deild Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins á 6,42 prósent í fyrirtækinu. Líkt og önnur tryggingafyrirtæki lýtur VÍS eftirliti Fjármálaeftirlitsins og því hafa vaknað upp spurningar um hvort til hagsmunaárekstra kæmi ef Maríanna hlyti kjör til stjórnar. „Við þekkjum Maríönnu afskaplega vel. Hún starfaði lengi í stjórn lífeyrissjóðsins og oftar en ekki sem formaður eða varaformaður. Þegar sú hugmynd kom upp, þá var svona gengið úr skugga um það hvort þetta samrýmdist hennar stöðu innan fjármálaráðuneytisins. Það kom svar að þeir sæju enga meinbugi á því. Og þá stöndum við á bak við framboð hennar,“ segir Árni Stefán Jónsson, formaður stjórnar Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins. Í svari fjármálaráðuneytisins við fyrirspurn Fréttablaðsins kemur fram að sú óskráða regla gildi í ráðuneytinu að starfsfólki tveggja skrifstofa er ekki heimilt að taka sæti í stjórnum eftirlitsskyldra aðila. Það eru skrifstofur efnahagsmála og fjármálamarkaðar og lögfræðisvið. Að öðru leyti gildi ekki takmarkanir umfram það sem kveðið er á um í starfsmannalögum um trúnaðarskyldur og aukastörf. Þá segir að gegni starfsfólk störfum í stjórnum eða á öðrum vettvangi utan ráðuneytisins og þar er fjallað um mál sem einnig eru á starfssviði viðkomandi í ráðuneytinu skal það samkvæmt tilmælum ráðuneytisins víkja þar sæti. Sex eru í framboði til stjórnar en einungis fimm stjórnarsæti eru í boði. Af þessum sex frambjóðendum eru fjórar konur en tveir karlar. Vegna laga um kynjakvóta eru karlarnir öruggir inn í stjórnina en ekki konurnar. Eins og fréttavefurinn Vísir greindi frá fyrr í vikunni gefur núverandi stjórnarformaður, Hallbjörn Karlsson, ekki kost á sér til setu í stjórn næsta árið.
Mest lesið Maðurinn sem fannst í Ölfusá er látinn Innlent Guðmundur Ingi segir sig úr Flokki fólksins Innlent Æsilegri eftirför lauk í Skútuvogi Innlent Flugstjórinn þögull sem gröfin Innlent Gera ekki aðra atlögu Innlent Fékk uppsagnarbréf og hótar málsókn Innlent „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Innlent Aðstoðarflugmaðurinn gæti talist samábyrgur Innlent Pétur Gautur leggur fram kæru vegna tilhæfulausra ásakana Innlent „Þetta er erfiður mánudagur“ Innlent Fleiri fréttir Neitar að hafa beitt fósturbörnin á Gauksstöðum ofbeldi Vara dýraeigendur við: Gruna að eitrað hafi verið fyrir tveimur dýrum Gæti sektað flugstjóra um allt að átta milljónir króna Óvarfærið orðalag geti orðið til vandræða í áratugi Kristrún hafi staðið sig best en Inga verst Þögul sem gröfin um meintan trúnaðarbrest Maðurinn sem fannst í Ölfusá er látinn Deilt um orðalag á kjörseðli, trúnaðarbrestur og vinsældir ráðherra Fékk uppsagnarbréf og hótar málsókn Miðflokkurinn úr leik í Árborg Krefja Ingu svara við leikskólaáformum Samfylkingarinnar „Við lítum þetta mál mjög alvarlegum augum“ Æsilegri eftirför lauk í Skútuvogi „Þetta er erfiður mánudagur“ Guðmundur Ingi segir sig úr Flokki fólksins Pétur Gautur leggur fram kæru vegna tilhæfulausra ásakana Drengurinn kominn heim til sín Aðstoðarflugmaðurinn gæti talist samábyrgur Gera ekki aðra atlögu Lækka leikskólagjöld til að bregðast við verðbólgu Sjá ekki fyrir endann á ástandinu í fangelsunum Flugstjórinn þögull sem gröfin Lækka gjöld í sveitarfélaginu og fangaverðir segja kerfið komið að þolmörkum Erfiðara að berjast við stjórnvöld en að lifa með náttúruvá „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Fangaverðir segja fangelsiskerfið „algjörlega komið að þolmörkum“ Lundinn sestur upp í Hafnarhólma Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Lágflugið vekur athygli erlendis Fimmtíu skjálftar suðvestan við Hestfjall Sjá meira