Tvö tilfelli riðuveiki sögð hrein tilviljun svavar hávarðsson skrifar 9. mars 2015 07:45 Tilraunir til að útrýma riðuveiki á Íslandi hafa kostað ríkið stórfé og valdið fjölda manns miklu hugarangri. fréttablaðið/valli
Ekkert annað en tilviljun ræður því að tvö tilfelli af riðuveiki hafa komið upp á stuttum tíma – annað á búi í Skagafirði og hitt á bæ á Norðvesturlandi. Þetta eru fyrstu tilfelli hefðbundinnar riðu sem greinist á landinu frá árinu 2010. Auður L. Arnþórsdóttir, sérgreinadýralæknir hjá Matvælastofnun, segir aðspurð að langt sé á milli þeirra býla sem um ræðir og engin tengsl þar á milli. Tilvikin séu þess utan ólík.Auður L. ArnþórsdóttirHugsanlegar smitleiðir geta verið margar. Stutt er síðan riðu varð vart í Skagafirði, og þar sem féð gengur saman á afrétti er erfitt að segja til um hvenær smitið hefur orðið. „Það getur verið langt síðan – fyrir mörgum árum. Það er mjög erfitt að rekja hvaðan smitið kemur og þess vegna erfitt að eiga við þetta,“ segir Auður en á Íslandi eru 26 fjárhólf. Í Skagahólfi hefur riðuveiki komið upp á átta búum á undanförnum 15 árum en í Valagerði hefur veikin ekki greinst áður. Aðeins á fjórum svæðum hefur riða, og aðrir búfjársjúkdómar í sauðfé, aldrei greinst og eiga þau það sameiginlegt að vera afskekkt. Aðeins þaðan er flutningur líflamba leyfður á milli svæða. Undantekningarlaust er allur fjárstofn þar sem smit kemur upp skorinn. Í Fréttablaðinu á miðvikudaginn greindi Birgir Hauksson, bóndi í Valagerði, frá því að niðurstaðan væri honum og hans fólki mikið áfall. Hann þarf að farga þremur hundruðum fjár en á Neðra-Vatnshorni er um 500 dýr að ræða. Auður segir að ríkið standi straum af fjárhagslegum kostnaði vegna riðuveikinnar, enda er stofninn skorinn samkvæmt fyrirskipan ráðherra að fengnum tilmælum Matvælastofnunar. „Bóndinn fær bættan þann stofn sem skorinn er niður og kostnað við þrif, sótthreinsun og förgun. Þetta eru mjög kostnaðarsamar aðgerðir fyrir ríkið, og á viðkomandi bæ skal vera fjárlaust í tvö til þrjú ár,“ segir Auður. Hún bætir við að ferlið sé flókið og tímafrekt. Reglan er að dýrin eru ekki aflífuð fyrr en samningaferlinu er lokið. „En það er ekki hægt að draga það lengi, og gæta verður að velferð dýranna. Sérstaklega í þessum tilfellum þar sem um er að ræða ær og mjög styttist í sauðburð,“ segir Auður.Tilvikin greindust með gerólíkum hætti Riðan greindist í tveimur kindum frá bænum Neðra-Vatnshorni í Húnaþingi vestra, í sýnum sem voru tekin samkvæmt skimunaráætlun Matvælastofnunar við slátrun síðastliðið haust. Ekki hafði orðið vart neinna sjúkdómseinkenna. Bóndinn í Valagerði í Skagafirði fékk nýlega grun um riðuveiki í þremur ám og hafði samband við dýralækni. Kindunum var lógað og sýni send til Tilraunastöðvar Háskóla Íslands á Keldum, sem staðfesti nokkrum dögum síðar að um hefðbundna riðuveiki væri að ræða.
Mest lesið „Þessir helvítis útlendingar skilja ekki neitt“ Innlent Maðurinn sem féll í Ölfusá er látinn Innlent Hóta því að hleypa ekki einasta dropa af olíu eða gasi um sundið Erlent Maður sem féll í Ölfusá fundinn Innlent „Konungur norðursins“ sjöundi forsætisráðherrann á áratug Erlent Usha og JD Vance eignast sitt fjórða barn Erlent Gréta María og Hrund til liðs við Sjá Innlent Þrír fluttir á bráðamóttökuna í þremur aðskildum málum Innlent Smíði nýrrar brúar yfir Þjórsá boðin út Innlent Miklar bikblæðingar við Jökulsárlón Innlent Fleiri fréttir Fjárkúgun, nýjasti ráðherrann og loks sól í Reykjavík Hnífstunguárásin á borði rannsóknardeildar Maðurinn sem féll í Ölfusá er látinn Gréta María og Hrund til liðs við Sjá Smíði nýrrar brúar yfir Þjórsá boðin út „Þessir helvítis útlendingar skilja ekki neitt“ Kjartan tekur við stöðu sveitarstjóra Þrír fluttir á bráðamóttökuna í þremur aðskildum málum Miklar bikblæðingar við Jökulsárlón Maður sem féll í Ölfusá fundinn Vegir og gatnamót í Hvalfirði komnir að þolmörkum Áfram geisar innbrotahrinan Enginn alvarlega slasaður eftir bílveltuna Veðrið haggist ekki að neinu ráði Fari mjög líklega aftur í „Ég sagði það“-frakkann næsta vor „Það er brjálað að gera með stóru B-i“ Björgólfur Thor flýr breska skatta til Ítalíu Jákvætt ef stjórnvöld séu loksins farin að horfast í augu við stöðuna Bílvelta í Skötufirði Tímafrek verkefni kennara, umferðaröryggi í Hvalfirði og stemningin á Spáni Ferðaþjónustan, fullveldið og fullt af forsætisráðherrum Hryðjuverkamálið frá upphafi til enda Facebook og tengdir miðlar liggja niðri Breikkun á Kjalarnesi boðin út eftir margra ára seinkun „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Fyrri hluti júlí sá blautasti í sögu Reykjavíkur Lögregla klippti á plöturnar Einbreiðar brýr við Berufjörð og Reyðarfjörð líklega næstar „Þetta er bara toppurinn á ísjakanum“ Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Sjá meira