Fjórtán hrefnum landað framhjá vigt 9. mars 2015 07:15 Af tæplega 240 dýrum sem veiða mátti á síðasta tímabili komu aðeins 24 dýr að landi. Fjórtán dýr voru ekki vigtuð við löndun.
Fjórtán hrefnum var landað framhjá vigt á síðasta veiðitímabili. IP útgerð ehf. var eina fyrirtækið sem hafði veiðileyfi á hrefnu í fyrra og landaði 24 hrefnum á land. „Ef afli er ekki vigtaður þá hafa stjórnvöld ekki upplýsingar um það magn sem kemur að landi,“ segir Eyþór Björnsson fiskistofustjóri.Eyþór BjörnssonVeiðum á hrefnu er þannig háttað að kjöti og spiki er landað, en beinagrind og öðru sem ekki er nýtt af dýrinu er fleygt aftur í hafið. Því hafa stjórnvöld enga vitneskju um hversu mörg kíló koma inn til vinnslu hjá útgerðinni ef afli er ekki vigtaður. Eyþór fiskistofustjóri segir að samkvæmt reglugerð þurfi allur landaður afli að fara á hafnarvog svo hægt sé að fylgjast með að einhverju marki. Sigurður Ingi Jóhannsson sjávarútvegsráðherra segir einnig í svari sínu við fyrirspurn Katrínar Jakobsdóttur að í hrefnuveiðum skuli landaður afli vigtaður í samræmi við reglugerð, um vigtun og skráningu sjávarafla. Þessu hafnar Gunnar og segir að stjórnvöld hafi mjög glögga mynd af meðalþyngd dýrs eftir tilraunaveiðar á hrefnu. „Ef tilgangur með vigtun sé að finna út meðaltalsnýtingu á hrefnu þá hefur þeim markmiðum þegar verið náð,“ segir Gunnar.Gunnar BergmannÁ síðasta hrefnuveiðitímabili var uppi ágreiningur um það hvort hrefnu ætti að landa á vigt eða hvort nægilegt væri að senda Fiskistofu upplýsingar um fjölda veiddra dýra. Gunnar Bergmann, framkvæmdastjóri IP útgerðar, segir veiðarnar frábrugðnar veiðum á fiski. „Kvótastýringin á þessum ólympísku veiðum fer eftir fjölda dýra en ekki fjölda kílóa eins og í þorski eða ýsu og öðrum stofnum. Þess vegna fannst okkur óþarft að keyra með landaðan afla á hafnarvog með tilheyrandi kostnaði,“ segir Gunnar. „Um leið og við veiðum dýr sendum við Fiskistofu tilkynningu og það gerum við rafrænt um borð um leið og dýr hefur verið veitt.“ „Fiskistofa fékk tilkynningu frá Hafnarfjarðarhöfn síðasta sumar að afli væri að fara framhjá vigt. Í þessu tilviki var hrefnuveiðibátur ekki að fara eftir reglum. Það fór síðan í ferli hjá okkur sem endaði með áminningu. Ítrekunaráhrif áminningar eru tvö ár og ef sami aðili brýtur aftur af sér innan þess tíma á hann yfir höfði sér veiðileyfasviptingu,“ segir Eyþór Björnsson fiskistofustjóri.
Mest lesið „Þessir helvítis útlendingar skilja ekki neitt“ Innlent Hóta því að hleypa ekki einasta dropa af olíu eða gasi um sundið Erlent Maður sem féll í Ölfusá fundinn Innlent Usha og JD Vance eignast sitt fjórða barn Erlent „Konungur norðursins“ sjöundi forsætisráðherrann á áratug Erlent Maðurinn sem féll í Ölfusá er látinn Innlent Þrír fluttir á bráðamóttökuna í þremur aðskildum málum Innlent Miklar bikblæðingar við Jökulsárlón Innlent Smíði nýrrar brúar yfir Þjórsá boðin út Innlent Mamdani skoðar að láta handtaka Netanjahú Erlent Fleiri fréttir Maðurinn sem féll í Ölfusá er látinn Gréta María og Hrund til liðs við Sjá Smíði nýrrar brúar yfir Þjórsá boðin út „Þessir helvítis útlendingar skilja ekki neitt“ Kjartan tekur við stöðu sveitarstjóra Þrír fluttir á bráðamóttökuna í þremur aðskildum málum Miklar bikblæðingar við Jökulsárlón Maður sem féll í Ölfusá fundinn Vegir og gatnamót í Hvalfirði komnir að þolmörkum Áfram geisar innbrotahrinan Enginn alvarlega slasaður eftir bílveltuna Veðrið haggist ekki að neinu ráði Fari mjög líklega aftur í „Ég sagði það“-frakkann næsta vor „Það er brjálað að gera með stóru B-i“ Björgólfur Thor flýr breska skatta til Ítalíu Jákvætt ef stjórnvöld séu loksins farin að horfast í augu við stöðuna Bílvelta í Skötufirði Tímafrek verkefni kennara, umferðaröryggi í Hvalfirði og stemningin á Spáni Ferðaþjónustan, fullveldið og fullt af forsætisráðherrum Hryðjuverkamálið frá upphafi til enda Facebook og tengdir miðlar liggja niðri Breikkun á Kjalarnesi boðin út eftir margra ára seinkun „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Fyrri hluti júlí sá blautasti í sögu Reykjavíkur Lögregla klippti á plöturnar Einbreiðar brýr við Berufjörð og Reyðarfjörð líklega næstar „Þetta er bara toppurinn á ísjakanum“ Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Drykkurinn komi úr flösku ráðherra Dagrún ráðin sveitarstjóri Strandabyggðar Sjá meira