Saman dregur í lestri þegar börnin eldast Óli Kristján Ármannsson skrifar 7. mars 2015 07:00 Stærðfræðikennsla í Finnlandi. Í nýrri skýrslu er vísað til PISA-kannana sem sýni að foreldrar í öllum löndum OECD búist frekar við því að synir þeirra, fremur en dætur, starfi við raungreinar, tækni eða verkfræði- eða stærðfræðitengd störf á fullorðinsárum. Fréttablaðið/AFP
Niðurstöður rannsóknar á jafnrétti kynjanna í námi benda til þess að mismunandi gengi kynjanna í skóla ráðist ekki af ásköpuðum getumun kynjanna. Efnahags- og framfarastofnunin, OECD, birti í lok vikunnar skýrsluna „Grunnur kynjajafnréttis í námi“ (e. The ABC of Gender Equality in Education). Um leið kemur fram í skýrslunni að í öllum löndum OECD hafi stúlkur minni trú á getu sinni til að leysa þrautir í stærðfræði og raunvísindum. „Stúlkur, jafnvel þær sem standa vel að vígi í námi, eru líklegri til að lýsa sterkum kvíðatilfinningum í garð stærðfræði,“ segir í skýrslunni. Að jafnaði gengur strákum heldur betur en stúlkum í stærðfræði í löndum OECD, þegar bornar eru saman einkunnir nemenda sem standa vel í náminu. „Þegar hins vegar eru bornar saman einkunnir drengja og stúlkna sem lýsa svipuðum viðhorfum og mati á eigin getu í stærðfræði þá hverfur bilið á milli kynjanna.“ Skýrslan byggir að hluta á PISA-rannsóknum og greiningum á niðurstöðum þeirra, sér í lagi hjá 15 ára nemendum. Farið er yfir hvernig strákar séu almennt eftirbátar stúlkna í lestri og verji raunar að jafnaði klukkustund skemur á viku í heimanám. „Klukkustund varið í heimanám á viku leiðir hins vegar af sér fjögurra stiga hærri einkunn í PISA-prófum á lestri, stærðfræði og raungreinum,“ segir í skýrslu OECD. Beint samhengi virðist hins vegar milli lestrargetu og getu í stærðfræði og á það jafnt við um drengi og stúlkur. Þá kemur líka fram að drengir nái stúlkum í lestri þegar fram í sækir og þeir eldast og þroskast. Lestrarskimanir OECD meðal fullorðinna greini til dæmis engan mun á kynjunum hjá 16 til 29 ára fólki.Angel GurríaÍ inngangsorðum Angels Gurría, framkvæmdastjóra OECD, að skýrslunni bendir hann á þá niðurstöðu að kynbundinn getumunur eigi rót sína fremur í viðhorfi nemendanna til námsins og framgöngu í skólunum. Félagslegir þættir ráði för. „Til þess að drengir og stúlkur fái jöfn tækifæri til að nýta hæfileika sína til fulls verður að koma til kasta foreldranna, sem hvatt geta börn sín til að lesa; kennara sem ýtt geta undir sjálfstæðari nálgun við lausn verkefna hjá nemendum; og nemendanna sjálfra, sem gætu varið tíma sínum utan skóla í meira mæli „ótengd“ en nú er,“ segir hann.Stúlkurnar standa sig betur á Íslandi Skýrsla OECD vísar til PISA-niðurstaðna frá 2012 um að í löndum þar sem stúlkum gengur vel í lestri standi þær sig álíka vel og drengir í stærðfræði. Vísað er til Finnlands þar sem stúlkur séu 62 stigum yfir piltum í lestri og standi þeim jafnfætis í stærðfræði. Á Íslandi séu stúlkur 51 stigi yfir drengjum í lestri og standi þeim framar um 6 stig í stærðfræði.
Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Innlent Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Innlent Á spítala eftir misheppnaða aftöku Erlent Valgerður réttir fram sáttahönd Innlent Tilkynnt um ölvaðan flugmann Innlent Flutningabíll valt á Þverárfjallsvegi sem er lokaður Innlent Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði Innlent Nú er hægt að taka Strætó alla leið að flugstöðinni Innlent Fleiri fréttir „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Flutningabíll valt á Þverárfjallsvegi sem er lokaður Lægðin grynnist í dag en von á annarri Bíl ekið á ljósastaur Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði ESA geti ekki beðið endalaust Valgerður réttir fram sáttahönd Vill að Daði vísi til þess sem hún á að hafa sagt Tilkynnt um ölvaðan flugmann Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Konan sem lögreglan lýsti eftir er fundin Nú er hægt að taka Strætó alla leið að flugstöðinni Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Gera alvarlegar athugasemdir við málflutning Daða Skoðar uppfærslu í 36 sæta rafflugvél Neysla geðrofs-, tauga- og ofnæmislyfja stóraukist Dæmdur fyrir manndráp af gáleysi við Vík Innan við helmingur karla vill refsingar fyrir vændiskaup Árásin rannsökuð sem tilraun til manndráps Bein útsending: Hvernig birtast menntarannsóknir í opinberri umræðu? „Einn aðili sem hefur til þessa skilað auðu“ Telur ESA falla frá málsókn ef Alþingi samþykkir frumvarpið Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Tvöfalda makrílráðgjöf Ragnar Þór vissi ekkert og meirihluti karla vill ekki refsa fyrir vændiskaup Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Sjá meira