Ætla að rannsaka starfsemi hafnarinnar sveinn arnarsson skrifar 6. mars 2015 07:15 Skoða á rekstur hafnarinnar. Fréttablaðið/Stefán
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkti á síðasta fundi sínum að ráðast í úttekt á stjórnsýslu, fjármálum og rekstri Hafnarfjarðarhafnar síðastliðin tíu ár. Fara á yfir stjórnun og starfsemi hafnarinnar. Málefni hafnarinnar hafa verið í sviðsljósinu síðustu vikur. Tvírukkað var fyrir gjöld vegna lóðasamninga og einnig stóð til að formaður hafnarstjórnar áminnti starfsmann hafnarinnar fyrir að hafa sagst átt fund með bæjarstjóra þann 15. nóvember síðastliðinn. „Minnihlutinn í bæjarstjórn óskaði eftir því að farið yrði í stjórnsýsluúttekt á málefnum hafnarinnar, í ljósi þeirrar umræðu sem uppi hefur verið um hana. Okkur þótti sjálfsagt að verða við þeirri beiðni,“ segir Rósa Guðbjartsdóttir, formaður bæjarráðs Hafnarfjarðar. „Niðurstöður úr þessari skoðun verða síðan notaðar í mótun framtíðarstefnu um málefni hafnarinnar,“ segir Rósa. Gunnar Axel Axelsson, oddviti Samfylkingarinnar, er ekki sammála því að hér sé verið að fara að vilja minnihlutans. „Eins og þetta útspil meirihlutans blasir við mér þá fjallar það fyrst og fremst um að drepa málinu á dreif og draga athyglina frá því sem er að gerast í málefnum hafnarinnar. Í stað þess að axla ábyrgð og sýna einhvern vilja til að lagfæra það sem úrskeiðis hefur farið í samskiptum hafnarstjórnar og starfsmanna þá bregst meirihlutinn við með því að benda í allar áttir og hóta fólki rannsóknum,“ segir Gunnar Axel.
Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Innlent Á spítala eftir misheppnaða aftöku Erlent Valgerður réttir fram sáttahönd Innlent Tilkynnt um ölvaðan flugmann Innlent Flutningabíll valt á Þverárfjallsvegi sem er lokaður Innlent Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði Innlent Nú er hægt að taka Strætó alla leið að flugstöðinni Innlent Fleiri fréttir „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Flutningabíll valt á Þverárfjallsvegi sem er lokaður Lægðin grynnist í dag en von á annarri Bíl ekið á ljósastaur Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði ESA geti ekki beðið endalaust Valgerður réttir fram sáttahönd Vill að Daði vísi til þess sem hún á að hafa sagt Tilkynnt um ölvaðan flugmann Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Konan sem lögreglan lýsti eftir er fundin Nú er hægt að taka Strætó alla leið að flugstöðinni Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Gera alvarlegar athugasemdir við málflutning Daða Skoðar uppfærslu í 36 sæta rafflugvél Neysla geðrofs-, tauga- og ofnæmislyfja stóraukist Dæmdur fyrir manndráp af gáleysi við Vík Innan við helmingur karla vill refsingar fyrir vændiskaup Árásin rannsökuð sem tilraun til manndráps Bein útsending: Hvernig birtast menntarannsóknir í opinberri umræðu? „Einn aðili sem hefur til þessa skilað auðu“ Telur ESA falla frá málsókn ef Alþingi samþykkir frumvarpið Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Tvöfalda makrílráðgjöf Ragnar Þór vissi ekkert og meirihluti karla vill ekki refsa fyrir vændiskaup Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Sjá meira