Mótmæla gjaldi fyrir rotþró Óli Kristján Ármannsson skrifar 5. mars 2015 07:00 Hús við Hraunhóla í Garðabæ eru meðal þeirra um 120 fasteigna sveitarfélagsins sem notast við rotþrær í stað holræsatenginga. Fréttablaðið/Pjetur
Álagningu holræsagjalda í Garðabæ, þar sem undir eru rotþrær sem lítið þurfi að eiga við, telur hluti íbúa við Hraunhóla í sveitarfélaginu jaðra við okur. Þrónum hafi á sínum tíma verið komið fyrir án nokkurrar aðkomu bæjarfélagsins. Hjónin Axel Thorarensen Hraundal og Hilde Berit Hundstuen eiga hús við Hraunhóla 4a og þurfa þar að borga tvöfalt holræsagjald af einni rotþró. „Þetta er ein eign á tveimur hæðum sem konan á og ber tvö fasteignanúmer,“ segir Axel sem fór að forvitnast um málið þegar álagningarseðillinn barst fyrir um einum og hálfum mánuði. „Við vildum vita hvernig í ósköpunum gæti staðið á þessu. En þau vilja meina að í lögum sé að þarna eigi að borga fyrir og þá kalla þau þetta bara holræsa- og rotþróagjald og innifeli þjónustu við rotþróna,“ segir Axel og bætir við að í fyrrasumar hafi þau einmitt farið fram á slíka þjónustu.Álagningarseðill 2015 Á þessum seðli má sjá hvernig eigandi einbýlishúss með rotþró er rukkaður um ríflega 60 þúsund króna holræsagjald.„Og þá tók þá um tvær vikur bara að finna rotþróna.“ Við verkið hafi verið notað málmleitartæki og starfsmenn bæjarins hafi á endanum sagst hafa kíkt ofan í hana og að hún væri í lagi. Axel segir málum hins vegar öðruvísi farið hjá bróður hans, sem búi á Kjalarnesi í landi Reykjavíkur. Þar sé hann með rotþró og hafi sett út á holræsagjaldið og fengið það fellt niður. „Ég benti nú þessari ágætu konu sem ég ræddi við hjá Garðabæ á þetta, en hún sagði að þetta væri annað bæjarfélag, það þýddi ekkert að vera að miða við það.“ Axel og Hilde eru ekki ein um að furða sig á gjaldtöku bæjarfélagsins. Finnur Orri Thorlacius sem á einbýlishús á einkalóð við Hraunhóla, þar sem er undir risastór safnþró sem hann segir ekkert þurfa að eiga við, segist velta fyrir sér hvort hann eigi ekki afturvirka kröfu á bæjarfélagið vegna gjaldtökunnar. Holræsagjald hafi hann greitt í 13 ár á staðnum, en í ár er gjaldið hjá honum 60.720 krónur. Samanlagt eru það tæpar 790 þúsund krónur, án vaxta. „Og það eru peningar sem ég get alveg notað,“ segir hann.Sigurður Helgi GuðjónssonSigurður Helgi Guðjónsson, formaður og framkvæmdastjóri Húseigendafélagsins, segir holræsagjöld og holræsaskatta hafa verið til vandræða víða. „Við höfum verið að fara í gegnum þessi fasteignagjöld á landsvísu vegna þess hve mikið misræmi er milli sveitarfélaga. Sú vinna er í gangi.“ Félagið hafi vegna þessa óskað eftir fundi með forsvarsmönnum sveitarfélaga. „Svona til að ekki sé sinn siður í hverju plássi, sem aftur veldur misskilningi og glundroða,“ segir Sigurður. Gunnar EinarssonUm 120 fasteignir með rotþrær Gunnar Einarsson, bæjarstjóri í Garðabæ, segir fasteignum með rotþróm hafa fjölgað heldur við sameininguna við Álftanes í ársbyrjun 2013. „Þetta eru svona 60 hús á Álftanesi og eitthvað álíka mikið hér hjá okkur,“ segir hann. Þótt á álagningarseðli kunni að standa holræsagjald, þá segir Gunnar það vísa til holræsa- og rotþróagjalda sem sveitarfélagið innheimti. Sveitarfélagið þjónusti rotþrærnar og fyrir það sé rukkað. Í einhverjum tilvikum segist hann þó reka minni til að gjaldið hafi verið fellt niður þar sem viðkomandi hafi sjálfur annast hreinsun á rotþró sinni. „En þá þarf viðkomandi að geta sýnt okkur að það hafi verið komið og hreinsað.“ Gunnar segir gjaldið 0,12 prósent af fasteignamati. Tilvik eins og hjá hjónunum í Hraunhólum 4 þurfi ef til vill að skoða sérstaklega. „Við viljum ekki taka meira af íbúunum en rétt er. Það er ekki okkar stíll,“ segir hann
Mest lesið Ísraelskir ferðamenn með ógnandi tilburði á palestínsku kaffihúsi Innlent Fjöldi ökumanna á von á kæru Innlent Þrengja Reykjaveg og loka tveimur götum við Laugarnesskóla Innlent Fagnað á götum Kabúl Erlent Fimm særðust í skotárás í bandarískum háskóla Erlent „Þessa vanlíðan þekkir enginn nema að hafa upplifað hana“ Innlent Sextán ára drengur stunginn til bana í busavígslu Erlent Skilti sem átti að fæla burt ferðamenn hefur öfug áhrif Innlent Fannst hann ekki geta haldið áfram Erlent Miðflokksmenn helmingi líklegri til að segja já en Sjálfstæðismenn Innlent Fleiri fréttir Þrengja Reykjaveg og loka tveimur götum við Laugarnesskóla Fjöldi ökumanna á von á kæru Ísraelskir ferðamenn með ógnandi tilburði á palestínsku kaffihúsi Þyrlan sækir slasaðan mann á Hestfjall Miðflokksmenn helmingi líklegri til að segja já en Sjálfstæðismenn Ósátt með fyrirhugaða sameiningu lögregluembætta Grindvískir krakkar sneru aftur á völlinn Lögnin komin á land en verður látin kyrr liggja „Önnur ríki með sérþarfir hafa miklu meira vægi í þeirri umræðu“ Bananastappa og hlaupbangsar á matseðlinum í tilraun tvö Velti allt á því hverjir mæti á kjörstað Allt hnífjafnt í nýjum þjóðarpúlsi og reynt aftur við Lagarfljót Hringvegurinn lokaður í gegnum Borgarnes annað kvöld Löng röð í öryggisleitina þriðja daginn í röð „Þessa vanlíðan þekkir enginn nema að hafa upplifað hana“ Leituðu manns sem átti að vera vopnaður rafbyssu Gerir aðra atlögu að Lagarfljóti um helgina „Klukkan tifar“ Skilti sem átti að fæla burt ferðamenn hefur öfug áhrif „Við hefðum viljað samráð frekar en samtal“ Bændur í baráttuhug á leið í herferð um landið Flaggskip kólumbíska sjóhersins býður almenningi um borð Enginn marktækur munur á jáurum og neiurum ESB-barátta, hiti meðal kennara og vændisskilti í Suðursveit Forsetahjónin halda til Eistlands Ökumaður á sjúkrahús eftir slys á Fljótsheiði Sögusagnir farið af stað þegar hann sást á fundinum Auglýsingar FM95BLÖ kostuðu Sýn tvær milljónir Bændur segja nei Ólafur Þór má rannsaka hlut Jóns Óttars í Samherjamálinu Sjá meira