Þverpólitísk samstaða um sanngirnisbætur ingibjörg bára sveinsdóttir skrifar 27. febrúar 2015 07:15 Landakotsbörnin hafa fengið lágar bætur. fréttablaðið/valli
Þverpólitísk samstaða er um að ríkið greiði þolendum ofbeldis af hálfu starfsmanna Landakotsskóla sanngirnisbætur. Í frumvarpi, sem Ögmundur Jónasson, þingmaður Vinstri grænna, er fyrsti flutningsmaður að og leggur fram ásamt þingmönnum allra annarra flokka, er kveðið á um að innanríkisráðherra verði heimilað að greiða sanngirnisbætur til þeirra sem beittir voru ofbeldi í Landakotsskóla og styðjast við skýrslu sem þegar hefur verið unnin þar að lútandi. Brotin gegn nemendunum voru framin á árunum 1959 til 1984. Eftir að nokkrir fyrrverandi nemendur Landakotsskóla stigu fram og greindu frá ofbeldi sem þeir voru beittir af starfsmönnum skólans á árunum 1959 til 1984 var skipuð sérstök nefnd til að rannsaka starfshætti og viðbrögð kaþólsku kirkjunnar á Íslandi vegna ásakana um kynferðisbrot og önnur ofbeldisbrot. Nefndin skilaði skýrslu 2012. Í henni greindu 30 fyrrverandi nemendur skólans frá ofbeldi sem þeir urðu fyrir. Af þeim sögðust átta hafa orðið fyrir kynferðisofbeldi. Fagráð kaþólsku kirkjunnar taldi kirkjuna ekki bótaskylda nema í einu tilviki en samt var ákveðið að greiða nokkrum þolendum bætur, frá 82 þúsundum króna til 300 þúsunda króna. Bætur til þeirra sem sættu illri meðferð á vistheimilum og stofnunum ríkisins námu 400 þúsundum króna og upp í sex milljónir króna.
Mest lesið Tæpum fjögur hundruð þúsund krónum eytt í vorgjöf Innlent „Það gerist ekkert ef ljósin eru slökkt“ Innlent Tvö erindi borist Þingvallanefnd vegna tónleika Kaleo Innlent Segir viðræður mögulega hefjast á ný á næstu dögum Erlent Hælisleitendur aðstoðaðir við að þykjast vera samkynhneigðir Erlent Eftirför lögreglu endaði á Sorpu Innlent Tveir handteknu starfsmenn Eimskipa Innlent Skorað á Guðmund að snúa aftur heim Innlent Fyrstu viðræður Ísraela og Líbana Erlent Ný atvinnustefna vanmeti stærstu tæknibreytingu samtímans Innlent Fleiri fréttir Tæpum fjögur hundruð þúsund krónum eytt í vorgjöf Tvö erindi borist Þingvallanefnd vegna tónleika Kaleo „Það gerist ekkert ef ljósin eru slökkt“ Ný atvinnustefna vanmeti stærstu tæknibreytingu samtímans Eftirför lögreglu endaði á Sorpu Tveir handteknu starfsmenn Eimskipa Skorað á Guðmund að snúa aftur heim Slagsmál, falsað ökuskírteini og ölvunarakstur Keyrðu utan í bílinn í eftirförinni Endurskoða gjaldsvæði borgarinnar Verulegt magn fíkniefna og hönnunarbolli í vorgjöf Flogið til Vestmannaeyja til mánaðamóta „Þyngra fyrir fæti að fá vinnu“ Hælisleitendamálin settu þrýsting á Reykjanesbæ Vilja verða áheyrnarfulltrúar og hækka laun sín gríðarlega Unnar kjötvörur af matseðli í skólum: „Stranglega bannað að hafa pylsupartý“ Sex handteknir og um verulegt magn sterkra efna að ræða Ekki hægt að taka framboð gilt þó flokkur misskilji reglur Góðkunninginn í vikulangt gæsluvarðhald vegna smygls Kvikuhlaup enn líklegasta sviðsmyndin Áfrýja ekki dómi vegna dauða dóttur þeirra Slökkti í málskotsbeiðni Matvís vegna Flame Sundlaugar opnar lengur um helgar í sumar Hyggst banna mánaðarlega hækkun leigu Ari hlær að gagnrýni á myndbandið Kosningapallborð fréttastofu: Baráttan um Reykjanesbæ Fimm hundruð bleikjur sluppu úr landeldisstöð „Ég reikna sterklega með því að karma banki upp á hjá þeim“ Betur fór en á horfðist við Mývatn: Lenti á þvervegi og tókst á loft Ekkert að frétta af rannsókn þjófnaðarins í Freysnesi Sjá meira