Uppbygging strandar á innsiglingu Svavar Hávarðsson skrifar 16. febrúar 2015 07:00 Yfir grynnslin. Stærri skip taka ítrekað niðri á rifinu. mynd/kristján jónsson „
Við byggjum okkar afkomu að mestu leyti á sjávarútvegi. Ef hann getur ekki þróast og dafnað hér, og verið samkeppnishæfur, þá hræðist maður afleiðingarnar,“ segir Björn Ingi Jónsson, bæjarstjóri á Höfn í Hornafirði, spurður um fyrirspurn Silju Daggar Gunnarsdóttur, þingmanns Framsóknarflokksins, til innanríkisráðherra um áframhald rannsókna á Grynnslunum, sandrifi utan við Hornafjarðarós sem er varhugaverður farartálmi skipa á leið inn til Hafnar í Hornafirði. Það sem Silja Dögg vill vita er til hvaða ráðstafana ráðherra hyggst grípa til að tryggja þær rannsóknir sem nauðsynlegar eru fyrir framkvæmdir svo gera megi innsiglinguna í Hornafjarðarhöfn greiða og örugga – og hvenær ráðherra sjái fyrir sér að framkvæmdir geti hafist á grundvelli þeirra.Björn Ingi telur að núverandi aðstæður við innsiglinguna standi uppbyggingu atvinnulífs á Höfn fyrir þrifum. Fiskiskip á leið til hafnar taka ítrekað niðri á Grynnslunum, og þau stærri án undantekninga þó þau sæti lagi á flóði til að komast til hafnar. Þessar aðstæður valda því að skip neyðast oft til að fara annað til löndunar, og að sögn bæjarstjórans telur það hratt í bókhaldi fiskibæjar þegar fullhlaðin skip sigla framhjá. Endurnýjun í flotanum, ekki síst ný uppsjávarveiðiskip, er í eina átt; stærri og öflugri skip. Slík uppbygging er ekki möguleg á Höfn, og mun takmarka enn möguleika staðarins til að taka á móti afla þegar til framtíðar er litið. „Skipin eru að taka ítrekað niðri og þetta verður að skoðast líka út frá öryggi sjómannanna. Það er mikið hagsmunamál, svo ekki sé kveðið fastar að orði, að menn séu ekki að stranda skipum sínum í hvert sinn sem þeir sigla hér inn til hafnar,“ segir Björn Ingi. Vegagerðin, áður Siglingastofnun, hefur unnið að rannsóknum á Hornafjarðarósi á undanförnum árum. Vegagerðin hefur sett fram rannsóknaráætlun til þriggja ára sem hefur það að markmiði að kanna hvaða lausnir eru mögulegar til að auka dýpi á Grynnslunum. Samkvæmt heimildum blaðsins er kostnaður við rannsóknirnar á sjöunda tug milljóna – og ekki á dagskránni þar sem rannsóknir tengdar hafnamálum hafa legið að mestu niðri frá hruni.Jökulbráð hefur áhrif á innsiglingunaSvo hratt rís land Suðaustanlands að rannsóknir um hafnarbætur við Höfn í Hornafirði þurfa að taka tillit til þess. Höfn stendur nú 15 sentímetrum hærra en bærinn gerði árið 1997, en ástæðan er minna farg af völdum jökulþekju vegna bráðnunar hennar. Suðausturströndin rís um 0,8 til 1,4 sentímetra á ári vegna bráðnunarinnar og verður það rakið beint til Vatnajökuls. Það sem gerist þegar jöklar hopa og þynnast er að þá lyftist jarðskorpan þegar fargið minnkar. 7 milljónir króna fóru í fyrra til rannsókna á Höfn; 15 milljónir runnu til öldufars- og strandrannsókna yfir landið í heild. Hornafjarðarhöfn er eina höfnin sem ríkið hefur lagt fé í rannsóknir á. Fé til rannsókna á Grynnslunum hefur komið úr fjárveitingum til hafnamála á fjárlögum.
Mest lesið „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Innlent Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Innlent Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Innlent Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Innlent Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Innlent Kvöldfréttir Sýnar í beinni Innlent Tjaldsvæðisgestir vöknuðu við að þyrla lenti á vellinum Innlent „Þetta er bara toppurinn á ísjakanum“ Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent „Mér finnst þau komin í ansi mikla meðvirkni með þessu félagi“ Innlent Fleiri fréttir Stúlkan fannst heil á húfi „Við hlaupum bara hraðar eftir því sem gestunum fjölgar“ Lögreglan á Norðurlandi eystra lýsir eftir fjórtán ára stúlku Bleikjuvinnslunni breytt í brugghús Lögregla og björgunarsveitir leita að manneskju á Akureyri „Þarf að hafa afleiðingar ef fólki er lógað af heilbrigðisstofnun“ Mikilvægt að draga lærdóm af gerð gatnamótanna „Vald flugstjórans er náttúrulega alveg klárt“ Segir málið verða að hafa afleiðingar fyrir Skúla Tómas Vestmannaeyjabær áfrýjar til Landsréttar Segir Dag plata með úreltri skýrslu Leiðrétting fréttar: Það sem Þorgerður sagði í raun Íslenskt sumarveður verðmæt auðlind Vara við hættulegum aðstæðum við Sólheimajökul Ari „eltihrellir“ eftirlýstur og handtekinn á Kýpur Hálfs árs hrakfallasögu Herjólfs virðist lokið „Ef læknir myndi skjóta sjúkling þá mætti ekki ákæra hann“ Undirbúa sig fyrir töluvert fleiri gesti á Einni með öllu Bakkakotsvelli lokað vegna rigninga: Grjótharðir golfarar láta í minnipokann Fimmtán ár frá hryðjuverkunum í Útey og Ósló Landlæknir hafi í raun sakfellt Skúla Tómas Óttast um fleiri kindur eftir að tík týndist Úrskurður sagður skapa hættulegt fordæmi og fimmtán ár frá atburðunum í Útey Hamingjuóskum rignir yfir Skúla Tómas: „Vanhugsað strax frá upphafi“ Opna senn fyrir atkvæðagreiðslu utan kjörfundar Bandero innan lögsögunnar á ný Páll biður einhvern að forða því að Ísland verði að athlægi Aukið aðgengi að áfengi auki neyslu Regnboginn verði málaður aftur en með breyttu sniði „Verið að herja á fólk sem er búið að missa maka“ Sjá meira