Krefst hlutdeildar í laxveiðiarði Blönduóss Garðar Örn Úlfarsson skrifar 23. janúar 2015 07:00 Arður Blönduósbæjar af veiði í Blöndu nam 14,9 milljónum á fimm árum. Fréttablaðið/GVA
Eigandi lögbýlisins Kleifa á vestanverðum bökkum Blöndu krefst þess að sveitarfélagið greiði honum 927 þúsund krónur vegna arðs sem Blönduósbær hafði af veiðiréttindum árin 2009 til 2013. Eigandi Kleifa og Blönduósbær hafa um árabil átt í deilu vegna málsins. Eigandinn er dóttir manns sem eignaðist samtals 18 hektara úr jörðinni á fjórða, fimmta og sjötta áratug síðustu aldar, að því er kemur fram í bréfi lögmanns konunnar til bæjaryfirvalda. Um sé að ræða erfðafestuland og erfðaábúðarland sem orðið hafi að nýbýlinu Kleifum árið 1951. Þetta land eigi 607 metra meðfram bökkum Blöndu og þar með 6,24 prósent af því bakkalandi sem heyri undir sveitarfélagið. Fyrir þessa eign hafi Blönduós fengið samtals nærri 14,9 milljónir króna í arð á fyrrnefndu árabili og krefst konan hluta af þeirri upphæð. Bærinn hins vegar hafnar kröfu konunnar og bendir á það á móti að hún skuldi bæjarfélaginu 3,7 milljónir króna vegna kvóta sem seldur hafi verið af jörðinni árið 1995. Og ætli hún að hætta vinsamlegum viðræðum sem verið hafi í gangi frá árinu 2009 eftir að ábúðarsamningi var sagt upp sé þess krafist að hún rými eignina hið fyrsta. Lögmaður konunnar mótmælir harðlega „öllum hugmyndum“ Blönduósbæjar um uppsögn á afnotum hennar af landinu.
Mest lesið Fær nýjar kröfur fimmtán mánuðum eftir andlát eiginkonunnar Innlent Tryggvi Gíslason er látinn Innlent „Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ Innlent Stefna á að opna kaffistofuna síðar í þessum mánuði Innlent Fjölskyldur hafi þegar hætt við að flytja aftur til Grindavíkur Innlent Vegasjoppan sem byggði kamar fyrir Kristján tíunda Innlent Gerir Repúblikönum á þingi enn lífið leitt Erlent Íranir gerðu hefndarárásir á herstöðvar í nágrannaríkjunum Erlent „Þetta er hreinn uppspuni“ Innlent Sósíalisti fékk boðsferð til Kína Innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Ræða öryggis- og stjórnmálasamstarf á Eystrasaltssvæðinu Fjölskyldur hafi þegar hætt við að flytja aftur til Grindavíkur Eldhúsdagur runninn upp Fræsa og malbika Reykjanesbraut við Smáralind í kvöld Tryggvi Gíslason er látinn Öskur, reykelsisfnykur, greiðslufall og gámarót Stefna á að opna kaffistofuna síðar í þessum mánuði Samþykkt frumvarpsins framkalli ekki sigurtilfinningu Vegasjoppan sem byggði kamar fyrir Kristján tíunda Hlekktist í lendingu á Egilsstaðaflugvelli Fær nýjar kröfur fimmtán mánuðum eftir andlát eiginkonunnar Sósíalisti fékk boðsferð til Kína Olíumengun í Kópavogslæk „Netglæpamenn munu nýta sér þetta hratt og á skaðlegan hátt“ No Borders hvetja til andspyrnu gegn brottfararstöð Hringbraut eins og rússnesk rúlletta Handtekinn á bíl með nagladekkjum „Þetta er hreinn uppspuni“ Fjöldi netbrota fjórfaldast og dómsmálaráðherra í beinni um brottfararstöð „Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ Umdeild brottfararstöð leidd í lög Fimm úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald Hætta aftur rannsókn á Múlaborgarmálum Íbúar á flæðiskeri staddir eftir samdrátt í umsvifum Icelandair Telja Ríkisútvarpið bullandi hlutdrægt í ESB-málinu Landris og kvikusöfnun heldur áfram Trúir ekki öðru en að nýir herrar fjarlægi „níðstöngina“ Enginn þurfi að óttast að vera skilinn frá maka sínum Safnað fyrir foreldra Bergs Ottós Áfrýjar ekki dómi fyrir brot á Múlaborg Sjá meira