Yfir hundrað ræður um fundarstjórn sveinn arnarsson skrifar 23. janúar 2015 07:00 Hart var tekist á í sölum þingsins í gær. Sökuðu stjórnarandstöðuþingmenn meirihluta atvinnuveganefndar um að brjóta lög. fréttablaðið/vilhelm
Upplausn ríkti í sölum Alþingis í gær. Við upphaf fundar kvaddi Lilja Rafney Magnúsdóttir sér hljóðs og tjáði þingheimi að Jón Gunnarsson, formaður atvinnuveganefndar, hefði sett fram breytingartillögu við rammaáætlun sem fór illa í stjórnarandstöðuna. Sökuðu þingmenn minnihlutans Jón Gunnarsson um að brjóta lög um rammaáætlun. Á annað hundrað ræður voru fluttar í gær undir liðnum um fundarstjórn forseta þar sem stjórnarandstaðan mótmælti harðlega tillögu Jóns Gunnarssonar og velti því upp hvort hún væri yfirleitt tæk til meðferðar. Tillaga Jóns gekk út á að fjórir virkjanakostir rammaáætlunar yrðu færðir úr biðflokki í nýtingarflokk. Tillagan, sem var sett fram munnlega, varð til þess að mikil röskun varð á störfum þingsins í gær.Píratar, minnsti þingflokkurinn, gagnrýndi einnig að mikilvæg tillaga sem þessi hefði ekki verið á dagskrá fundarins. Þingflokkurinn þyrfti að skipta með sér átta nefndum og það skipti miklu máli fyrir þingflokkinn að vita fyrirfram af svo mikilvægum tillögum. Jón Gunnarsson vísar gagnrýni minnihlutans á bug og kallar málflutning hans ómálefnalegar dylgjur. „Um þetta mál var rætt og farið yfir á fundi forsætisnefndar sem haldinn var í hádeginu með formönnum þingflokka. Það var augljóst að ekki var verið að brjóta nein lög og ekki rökstutt með neinum hætti. Ég kalla þetta ómálefnalegar dylgjur í garð meirihluta atvinnuveganefndar um að við séum að brjóta lög.Það var farið mjög vel yfir þetta á fundi forsætisnefndar, sem var haldinn í hádeginu með formönnum þingflokka. Það var augljóst að ekki var verið að brjóta nein lög og ekki rökstutt með neinum hætti og kalla ég þetta ómálefnalegar dylgjur í garð meirihlutans að við séum að brjóta lög.“ „Þessi málsmeðferð er fullkomlega fáránleg,“ segir Guðmundur Steingrímsson, formaður Bjartrar framtíðar. „Í landinu gilda lög um vernd og nýtingu landsvæða og það er óskiljanlegt af hverju meirihlutinn vill ekki fara að lögum. Ef þeir vilja virkja meira og breyta rammaáætlun þá eru sérstök ákvæði um það hvernig hægt er að gera það með faglegu umsagnarferli og umræðum á Alþingi,“ segir Guðmundur.
Mest lesið Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Innlent Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Innlent Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Innlent Kristrún tilbúin í aðgerðir Innlent Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Innlent „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Erlent „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Innlent Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent Fleiri fréttir Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Ekki búið að finna nýjan lögreglustjóra hátt í hálfu ári síðar Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Árekstur við Hamraborg Engin aðstoð við próftöku og litaðar númeraplötur Uppsagnir hjá Klettabæ Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Kristrún tilbúin í aðgerðir Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Ákærður fyrir að nauðga sofandi og ölvaðri dóttur sinni Væntingar um útspil tengt gjaldahækkunum Neituðu sök við þingfestingu Straumsvíkurmálsins Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Sniðganga geti verið túlkuð sem yfirlýsing ríkisstjórnarinnar Fjórir í gæsluvarðhald eftir hraðsendingu frá Þýskalandi Ekkert svigrúm í tengslum við kjarasamninga og tvísýnt með framhaldið Lét ákærða vita af andlátinu: „Hann var í miklu uppnámi“ „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Flutningabíll valt á Þverárfjallsvegi sem er lokaður Lægðin grynnist í dag en von á annarri Bíl ekið á ljósastaur Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði Sjá meira