Ef lokað er á aðgang er nýr opnaður strax Viktoría Hermannsdóttir skrifar 13. janúar 2015 07:00 Algengt er að notendur setji inn nektarmyndir, af sjálfum sér eða öðrum. Einnig er mikið sett inn af myndum af eiturlyfjum og eiturlyfjanotkun. Myndir/Skjáskot frá Saurlifnaði
Grófar nektarmyndir, eiturlyf og myndbönd af fólki í kynferðislegum athöfnum er meðal þess sem er að finna á Snapchat-aðgangi sem er vinsæll meðal íslenskra ungmenna. Inn á aðganginn, sem ber nafnið Saurlifnaður, senda notendur myndir sem er svo deilt með þeim sem fylgjast með aðganginum. Fyrir helgi var aðganginum Saurlífi lokað en hann var fyrirrennari Saurlifnaðar og þjónaði sama tilgangi. Ekki er vitað hver heldur aðganginum úti en hann virðist vera mjög vinsæll meðal ungmenna. Þegar hann var fyrst stofnaður var hann auglýstur fyrir 18 ára og eldri og fólk hvatt til þess að vera duglegt að senda inn myndir og myndbönd af saur- og ólifnaði. Séu myndirnar og myndböndin skoðuð er hins vegar augljóst að margir þeirra, sem senda inn myndir eða myndir eru af, eru undir lögaldri. Efnið sem er sett inn er aðgengilegt þar í sólarhring, hins vegar er hægt að taka skjáskot af myndunum og til eru sérstök forrit sem vista Snapchat-efni. Erfitt virðist vera að koma í veg fyrir að slíkum aðgangi sé haldið úti þar sem stjórnendur síðunnar eru við því búnir að honum verði lokað og eru með annan aðgang þar sem settar eru inn upplýsingar um nýjan aðgang verði þessum lokað. Myndirnar sem notendur setja inn eru oft af kynferðislegum toga, af þeim sjálfum eða af öðrum í kynferðislegum athöfnum, ef til vill ekki alltaf með samþykki viðkomandi. Auk þess setja margir inn myndir af fíkniefnum og fíkniefnanotkun. Í síðustu viku fengu aðstandendur unglinga í Laugardals- og Háaleitishverfum bréf frá skólum í hverfunum þar sem þeir eru hvattir til þess að ræða við unglinga sína um það efni sem birtist þarna. Fljótlega eftir að fréttir birtust af því var aðganginum lokað. „Það er með svona vafasamar síður, menn opna bara nýjar og nýjar, hvort sem það er eitthvað af þessum toga eða til að hala niður ólöglega,“ segir Friðrik Smári Björgvinsson yfirlögregluþjónn. Lögreglu hafi borist ábendingar vegna aðgangsins. Hins vegar hafi engar kærur borist vegna efnis sem þar hefur verið sett inn. „Það hafa komið ábendingar um að þarna væri óæskilegt efni.“ Friðrik Smári segir um tiltölulega nýjan vettvang að ræða í þessum efnum og því ekki alveg ljóst hvaða leiða lögregla getur leitað til þess að láta loka slíkum síðum. „Við erum að fikra okkur áfram í þessu. Þetta er tiltölulega nýtt, við erum að vinna í því hvað er hægt að gera og hvaða úrræði eru til staðar,“ segir hann.
Mest lesið Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Innlent Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Innlent Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Kristrún tilbúin í aðgerðir Innlent Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Innlent Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Innlent Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Innlent „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Erlent Fleiri fréttir Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Ekki búið að finna nýjan lögreglustjóra hátt í hálfu ári síðar Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Árekstur við Hamraborg Engin aðstoð við próftöku og litaðar númeraplötur Uppsagnir hjá Klettabæ Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Kristrún tilbúin í aðgerðir Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Ákærður fyrir að nauðga sofandi og ölvaðri dóttur sinni Væntingar um útspil tengt gjaldahækkunum Neituðu sök við þingfestingu Straumsvíkurmálsins Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Sniðganga geti verið túlkuð sem yfirlýsing ríkisstjórnarinnar Fjórir í gæsluvarðhald eftir hraðsendingu frá Þýskalandi Ekkert svigrúm í tengslum við kjarasamninga og tvísýnt með framhaldið Lét ákærða vita af andlátinu: „Hann var í miklu uppnámi“ „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Flutningabíll valt á Þverárfjallsvegi sem er lokaður Lægðin grynnist í dag en von á annarri Bíl ekið á ljósastaur Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði Sjá meira