Svarar stjórn Orkuveitunnar engu um gesti forstjórabústaðar Garðar Örn Úlfarsson skrifar 8. janúar 2015 07:45 Örlög þessa sumarhúss ásamt bátaskýlinu hafa verið ráðin. Bæði húsin verða rifin. Fréttablaðið/Pjetur
Enn fæst ekki upplýst um alla þá sem nýttu sér svokallaðan forstjórabústað Orkuveitu Reykjavíkur í Riðvík við Þingvallavatn í trássi við ákvörðun stjórnar fyrirtækisins. „Ekki hafa verið teknar saman upplýsingar um það hvaða einstaklingar hafa notað bústaðinn á hverjum tíma, en aðeins framkvæmdastjórar og forstjóri höfðu aðgang að honum,“ segir í svari Bjarna Bjarnasonar, forstjóra OR, við fyrirspurn fulltrúa Sjálfstæðisflokksins í stjórn fyrirtækisins. Svar Bjarna bætir engu við það sem fram hafði komið í sumarbústaðarmálinu frá því Fréttablaðið greindi fyrst frá því 5. september síðastliðinn og þar til fyrirspurnin var sett fram á stjórnarfundi 27. október síðastliðinn. Það eina sem fram hafði komið var að Bjarni hefði notað bústaðinn sjálfur, þar af tvisvar sumarið 2012. „Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins óska eftir nánari upplýsingum um hverjir hafa haft afnot af sumarbústöðum Orkuveitunnar við Þingvallavatn í Riðvík síðastliðin fjögur ár,“ sagði í fyrirspurninni.Bjarni Bjarnason, forstjóri Orkuveitu Reykjavíkur.Þrátt fyrir að fjórar vikur hafi liðið þar til svar forstjórans var lagt fram virðist ekki hafa verið reynt að hafa fyrir því að afla þeirra upplýsinga sem forstjórinn segir að hafi ekki „verið teknar saman“. Í upphaflegri frétt Fréttablaðsins frá 5. september síðastliðinn kom fram í máli upplýsingafulltrúa OR að forstjórabústaðurinn hefði lítið verið notaður síðasta áratug sökum ástands hans. Framtíð hússins væri ófrágengin en líklegast myndi það standa áfram á sama stað. Fimm dögum síðar sagði Bjarni forstjóri að bústaðurinn yrði rifinn enda stæði hann á vatnstökusvæði. Hann staðfesti að stjórn fyrirtækisins hefði ákveðið á árinu 2010 að afnema einkaafnot eða forgang að húseignum. Þrátt fyrir það notuðu útvaldir bústaðinn áfram allt fram á síðasta sumar. „Skortur á reglum um notkun hans og ákvörðun um framtíð hans skrifast á mína ábyrgð,“ sagði forstjórinn.Áslaug Friðriksdóttir, stjórnarmaður í Orkuveitu Reykjavíkur.Við skoðun Fréttablaðsins á húsinu virtist það í góðu standi enda fékkst síðar upplýst að lagðar hefðu verið níu milljónir króna í endurbætur á því frá árinu 2008. Áslaug Friðriksdóttir, annar fulltrúa Sjálfstæðisflokksins í stjórn OR, segir þá ekki munu hreyfa frekar við málinu. „Við höfum ekki ýtt frekar á eftir því að farið verði í sérstaka úttekt á notkuninni þar sem framtíð bústaðarins er ráðin í sjálfu sér. En við munum þó að sjálfsögðu fylgjast með framkvæmdinni.“
Mest lesið Geta skotið drónum langt inn fyrir landsvæði NATO-ríkja Erlent Tek mark á því að þetta sé fallegasta hús Íslands Innlent Færsla vínbúðarinnar „galin“ en skemmdi ekki miðbæinn Innlent Gott að Trump hafi opnað á umræðuna Innlent Ekkert út á Dorriti að setja en frásögn eigenda ekki á rökum reist Innlent Með stöðu sakbornings vegna banaslyss á Miklubraut Innlent Allt gert til að stöðva birtinguna Innlent Skilti í setrinu á ensku: „Hjartanlega sammála því að við eigum ekki að hafa þetta svona“ Innlent Haraldur konungur lagður inn á spítala Erlent Evrópuvaktin 2026: Þjóðin gengur að kjörborðinu Innlent Fleiri fréttir Færsla vínbúðarinnar „galin“ en skemmdi ekki miðbæinn Tek mark á því að þetta sé fallegasta hús Íslands Gott að Trump hafi opnað á umræðuna Fólk hélt í sér á meðan sólmyrkvinn gekk yfir Hljóðupptökur, ný vínbúð og færri sturtuðu niður yfir almyrkva Ekkert út á Dorriti að setja en frásögn eigenda ekki á rökum reist Allt gert til að stöðva birtinguna Skilti í setrinu á ensku: „Hjartanlega sammála því að við eigum ekki að hafa þetta svona“ Hjón skildu fimm ára dreng eftir í bíl: Málið á borði breskra yfirvalda Með stöðu sakbornings vegna banaslyss á Miklubraut Loka brúnni yfir Borgarfjörð í tvær nætur Um sextán þúsund greitt atkvæði utan kjörfundar Símaupptökur úr Reykholtsmálinu: „Ekki fokking hreyfa þig eða ég mun sparka meira í þig“ Hugmyndin góð enda hvalkjöt mun járnríkara en nautakjöt Ákafir þátttakendur beggja fylkinga rugli fólk viljandi í ríminu E. coli fannst í neysluvatni á Borgarfirði eystra Popúlismi í aðdraganda þjóðaratkvæðis og hvalkjöt í töfluformi Tekur við viðskiptadeild Bifrastar eftir átakavetur Engir gallar á kosningu til heimastjórnar Seyðisfjarðar Evrópuvaktin 2026: Þjóðin gengur að kjörborðinu Handtekinn vegna kannabisræktunar í Króksfjarðarnesi Bogi Ísak Nilsson er látinn Fyrsta skrefið í að kenna Íslendingum að nota fánann við fleiri tilefni Brotist inn í garnverslun í Árbæ Aðalmeðferð hefst í Reykholtsmálinu Hætta sölu til Japan: Hvalkjötið nýtt í framleiðslu bætiefnis Lögreglumál: Sátu fastir eftir að slökkt var á parísarhjólinu Lúsmýið yrði alltaf verra en moskítóflugan Viðreisn fjarlægir bænina af Facebook: „Við viljum ekki særa fólk“ Gerir upp hús hannað af Guðjóni Samúelssyni Sjá meira