Vill að fólk hætti að styrkja ÍR: „Í stað þess hagar ÍR sér eins og Árni Johnsen“ Stefán Árni Pálsson skrifar 10. maí 2015 18:29 Jónas líkir Íþróttafélagi Reykjavíkur við Árna Johnsen. Vísir
Jónas Kristjánsson, ritstjóri, hvetur fólk til þess að hætta að styrkja íþróttafélagið ÍR en frá þessu greinir hann á bloggsíðu sinni. Jónas er ekki sáttur við félagið en Reykjavíkurborg hefur kært ÍR fyrir að höggva af yfir 100 birkitrjám við Breiðholtsbraut. Trén voru farin að skyggja á auglýsingaskilti á svæði ÍR-inga „Mér sýnist, að birkið, sem Íþróttafélag Reykjavíkur sagaði við Breiðholtsbraut, hafi verið utan lóðar félagsins. Jafnvel sé gróðaskilti félagsins einnig utan lóðar félagsins. Vandséð er, að borgin komist hjá að fylgja fast eftir málinu gegn félaginu og ruddastjórn þess,“ segir Jónas. Hann bætir við að ólíðandi sé að menn komist upp með ofbeldi af þessu tagi. „Birki af gerðinni Emblu lifir ekki sögun. Vegamálastjóri neitar ábyrgð, segist hafa bent á að leita þyrfti leyfis borgaryfirvalda. Í stað þess hagar ÍR sér eins og Árni Johnsen, „égummigfrámértilmín“. Borgin á auðvitað að fella niður styrki til gróðafíkla, sem haga sér svo. ÍR er víti til að varast.“Á síðu Vegagerðarinnar segir að þann 22. september hafi borist tilkynning frá ÍR um að flettiskilti í eigu ÍR væri komið í hvarf á bak við trjágreinar. Þá tilkynntu ÍR-ingar að félagið hefði í hyggju að klippa greinarnar ofan af trjám niður og lækka þannig trjágróðurinn að hann skyggði ekki á flettiskiltið. Undir lok tilkynningarinnar frá ÍR stóð síðan; „Berist ekki formleg andmæli frá Vegagerðinni innan 15 daga frá dagsetningu þessa bréfs lítur ÍR svo á að þessi aðgerð verði látin afskiptalaus.“ Vegagerðin svaraði þann 30. september svohljóðandi: „Vegagerðin gerir ekki athugasemdir við þetta en trjágróður meðfram þjóðvegum er almennt ekki á hennar vegum. Í þessu tilviki er það Reykjavíkurborg.“ Vegagerðin vísaði því málinu til Reykjavíkurborgar sem veitti ekki leyfi fyrir því að trén yrðu lækkuð.
Mest lesið Stríðsfangar barðir og beittir kynferðislegu ofbeldi Erlent Vaktin: Almyrkvi á sólu á Íslandi Innlent Ferðamenn koma til að spyrja eftir hundinum Innlent Blaðamenn og aðrir farþegar notaðir sem tálbeita? Erlent Maðurinn fundinn Innlent Pútín vildi ekkert fyrir Bandaríkjamann í rússnesku fangelsi Erlent Umbúðirnar gallaðar og hakkið fer aftur í bakka Innlent Þúsunda saknað og tíminn að renna út Erlent Fjórfalt fleiri lögreglumenn vakta Vestfirði Innlent Skemmdir á nýrri vatnsleiðslu til Eyja Innlent Fleiri fréttir Tólf hundruð ferðamenn fluttir í rútu á Snæfellsnes Vegfarendur gefi sér góðan tíma til ferðalaga í dag Tveir handteknir í tengslum við heimilisofbeldi Vaktin: Almyrkvi á sólu á Íslandi Ferðamenn koma til að spyrja eftir hundinum Maðurinn fundinn Fjórfalt fleiri lögreglumenn vakta Vestfirði Skemmdir á nýrri vatnsleiðslu til Eyja Leita svara við aldargamalli ráðgátu sólarinnar Gætu þurft að skila skyndibitaumbúðum Gripinn með stolið kreditkort og handtekinn Hafa borið kennsl á hinn látna Einn um borð þegar eldur kviknaði í fiskibát Kveikt á götulýsingu í sólmyrkva á stofnbrautum Líkfundur við Austurbæjarskóla Hólmbert bjargaði manni úr bíl sem stóð í ljósum logum í Kóreu Umbúðirnar gallaðar og hakkið fer aftur í bakka Gera ráð fyrir óvenjulangri aðalmeðferð í Reykholtsmálinu Tók konu kyrkingartaki nóttina eftir dóm og verður lengur í haldi Segir efnahagsmálin og verðbólguna að þróast í rétta átt Kristrún vísar ásökunum um sinnuleysi á bug Ekki lengur vafi á því hver hinn látni er Yfirlýsing Landskjörstjórnar: „Fullyrðing Morgunblaðsins er alfarið röng“ Vill að vinnu við gerð áhættumats verði flýtt Leita óþekkts árásarmanns á Þjóðhátíð Kæra varðhald þriðja mannsins til Landsréttar Vaktin: Almyrkvi á sólu á Íslandi Þriðji maðurinn úrskurðaður í gæsluvarðhald Líkur á rigningu í Reykjavík þegar almyrkvinn gengur yfir Gæsluvarðhalds krafist yfir þriðja manninum Sjá meira