Veggjalist slær í gegn í Fjölbrautaskóla Suðurlands Magnús Hlynur Hreiðarsson skrifar 25. október 2015 21:44
Nýr áfangi við Fjölbrautaskóla Suðurlands á Selfossi hefur slegið í gegn en það er veggjalist þar sem nemendum gefst kostur á að fara út úr kennslustofunni og mála veggi í bæjarfélaginu. Nokkrir nemendur rifu sig upp í morgun í snjónum, þrátt fyrir að það væri í frí í skólanum og tóku til við að munda penslana. Veggurinn sem nemendur mála kallast bókaveggurinn en hann stendur rétt við Fjölbrautaskólann. Sveitarfélagið Árborg gaf leyfi fyrir að veggurinn yrði málaður en með því skilyrði að þemað væri Bókabæirnir austanfjalls en það er verkefni sem Árborg, Hveragerðisbær og Sveitarfélagið Ölfus taka þátt í. Þetta er í fyrsta skipti sem skólinn býður upp á áfanga í veggjalist en kennararnir eru tveir, eða þær Ágústa Ragnarsdóttir og Elísabet Harðardóttir. „Við höfum verið svolítið óheppin með veður þannig að við erum að nota sunnudaginn núna til að vinna þó það sé komin snjór“, segir Ágústa. En út á hvað gengur verkefnið ? „Það gengur út á það að fegra umhverfi sitt og nota listina til þess, færa málverkið aðeins út úr skólanum og stofnunum og gera það sýnilegra“. Ágústa segir verkefnið mjög skemmtilegt. „Þetta er mjög krefjandi, sérstaklega að vera svona háður veðrinu og hafa bara ákveðna tíma í vikunni til að vinna þetta. Þá er kannski akkúrat rigning þá og sól daginn eftir þegar tímarnir eru ekki. Sem betur fer þá eru nemendurnir tilbúnir að koma, eins og núna um helgi til að mála.“ Veggjamyndirnar eru mjög fjölbreyttar og litagleðin er mikil. Nemendur segja áfangann frábæran. „Mér finnst þetta alveg rosalega skemmtilegt, þetta er mjög krefjandi og það er mjög skemmtilegt að mála svona á veggi, og sjá hvernig árangurinn verður, þetta hefur maður aldrei gert áður,“ segir Halldóra Kristín Andrésdóttir, nemandi í veggjalist. Hugrún Hjálmsdóttir er líka mjög ánægð með áfangann. „Já, mér finnst þetta mjög gaman, þetta er öðruvísi, þú ert ekki inn í kassanum. Mér finnst rosalega gaman í listaáföngunum í skólanum og líka fá að mála á vegg, hver vill ekki fá að mála á vegg. Eru ekki öll börn að krota á veggi, nú fáum við bara að gera það í skólanum", segir Hugrún.
Mest lesið Skrúðgangan aftur leyfð þrjátíu árum eftir hryllinginn Erlent Rafflugvélin jafnar stærð innanlandsvéla Icelandair Erlent Nýr sendiherra er Búi og kannast ekki við „þjóðarmorð á hvítum“ Erlent Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Innlent Allt ætlaði um koll að keyra þegar grímuskylda var afnumin Erlent Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Innlent „Ég hafna samningi þeirra“ Erlent Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Innlent Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Innlent Þyrlan lenti við Hörpu Innlent Fleiri fréttir Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Umdæmin mishrifin af fækkun embætta Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Buxnalaus Lalli olli glundroða Þyrlan sótti slasaðan knapa Heimsfræg Twitch-stjarna olli örtröð í miðbænum Fagnar fækkun lögregluembætta og deilt um málverk af Danakonungi Átján kíló af kókaíni undir fölskum botni Eftirlitið fellur á herðar foreldra Loka hringveginum við Jökulsárlón Fá loksins að fagna aldarafmælinu „Það er ótrúlega dýrt og lýjandi að hafa rétt fyrir sér“ Fluttur til aðhlynningar eftir umferðarslys Tortímir gervigreindin mannkyninu? „Farið að minna mig á stöðuna í Bandaríkjunum“ Mátti þrífa harkalega í leikskólabarn Hafa skotið um hundrað bjargdúfur í Vestmannaeyjum Ákærður fyrir gróf brot á barnungri stjúpsystur sinni Sjaldgæfur gestur í Eyjum Bað um álit lögreglu á gæðum fíkniefna Skriða þveraði veginn í Árneshrepp Breiðholtsbraut lokuð allan morgundaginn Allt umfram 2,8 milljarða dregið frá Segir Ingu hafa eytt sér á Facebook Húsbíll fauk út af Sjá meira