Dæmd í þriggja mánaða fangelsi fyrir ítrekað búðarhnupl Birgir Olgeirsson skrifar 24. febrúar 2015 23:31 Konan stal matvörum til að fjármagna neyslu sína. Vísir/Anton Brink
Kona á þrítugsaldri hefur verið dæmd til 15 mánaða fangelsisvistar, þar af eru 12 mánuðir skilorðsbundnir, fyrir ítrekaðan þjófnað í verslunum á árinu 2014. Andvirði þýfisins nemur um hálfri milljón króna en dómur í málinu féll í Héraðsdómi Reykjaness í gær. Í flestum tilvikum stal konan matvöru í verslunum Bónuss, Krónunnar og Nóatúns en einnig stal hún snyrtivörum í Lyfju. Um er að ræða tólf brot en í einu tilviki stal hún matvöru í verslun Krónunnar að Fiskislóð að andvirði 66.381 króna. Þá er einnig talinn upp þjófnaður á matvöru að andvirði 59.121 króna í Krónunni í Jafnaseli og þjófnaður á matvöru í Krónunni, Reykjavíkurvegi í Hafnarfirði, að andvirði 68.852 króna. Hún játaði brot sín fyrir dómi og sagðist hafa verið í neyslu fíkniefna þegar brotin áttu sér stað en sé hætt og lagði fram nokkur vottorð því til sönnunar. Hún sagðist hafa framið brotin til að fjármagna neyslu sína en sjái mikið eftir því. Hún játaði brot sín bæði fyrir lögreglu og fyrir dómi og sagði að ekki hafi hlotist tjón af þar sem kröfuhafar hafi endurheimt vörur sínar. Konan á nokkurn sakarferil að baki frá árinu 2005 og á að baki nokkra dóma fyrir þjófnað, nú síðast 7. júlí árið 2014. Konan skilaði inn vottorði frá Janusi endurhæfingu en fram kom í því vottorði að endurhæfing hjá þeim hafi í einhverjum tilfellum komið í stað afplánunar í samvinnu við Fangelsismálastofnun. Þótti því Héraðsdómi Reykjaness rétt að konan verði bundin sérstöku skilorði þannig að hún sæti sérstöku úrræði sem felst í umsjón hjá Janusi endurhæfingu með þátttöku hennar í atvinnuendurhæfingu og að hún neyti á þeim tíma hvorki áfengis né deyfilyfja.
Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Innlent „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Innlent Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Innlent Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Innlent Ákærður fyrir að nauðga sofandi og ölvaðri dóttur sinni Innlent Lét ákærða vita af andlátinu: „Hann var í miklu uppnámi“ Innlent Á spítala eftir misheppnaða aftöku Erlent Fleiri fréttir Uppsagnir hjá Klettabæ Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Kristrún tilbúin í aðgerðir Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Ákærður fyrir að nauðga sofandi og ölvaðri dóttur sinni Væntingar um útspil tengt gjaldahækkunum Neituðu sök við þingfestingu Straumsvíkurmálsins Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Sniðganga geti verið túlkuð sem yfirlýsing ríkisstjórnarinnar Fjórir í gæsluvarðhald eftir hraðsendingu frá Þýskalandi Ekkert svigrúm í tengslum við kjarasamninga og tvísýnt með framhaldið Lét ákærða vita af andlátinu: „Hann var í miklu uppnámi“ „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Flutningabíll valt á Þverárfjallsvegi sem er lokaður Lægðin grynnist í dag en von á annarri Bíl ekið á ljósastaur Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði ESA geti ekki beðið endalaust Valgerður réttir fram sáttahönd Vill að Daði vísi til þess sem hún á að hafa sagt Tilkynnt um ölvaðan flugmann Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Konan sem lögreglan lýsti eftir er fundin Nú er hægt að taka Strætó alla leið að flugstöðinni Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Gera alvarlegar athugasemdir við málflutning Daða Sjá meira