Afhentu ráðherra 3557 undirskriftir Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 24. febrúar 2015 10:25 Við afhendingu undirskriftanna.
Íslandsdeild Amnesty International hefur á undanförnum dögum gefið almenningi kost á að skrifa undir áskorun til ríkisstjórnar Íslands um að fullgilda valfrjálsa bókun við samning gegn pyndingum og annarri grimmilegri, ómannlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Föstudaginn 20. febrúar afhenti Íslandsdeildin Ólöfu Nordal innanríkisráðherra áskorunina þar sem 3557 einstaklingar kalla eftir því að innanríkisráðherra og ríkisstjórn Íslands fullgildi nú þegar valfrjálsu bókunina og sýni þar með í verki að íslensk stjórnvöld láti ekki nægja fyrirheit um að borgararnir verði ekki látnir sæta pyndingum eða annarri vanvirðandi meðferð, heldur verði óháðum eftirlitsaðila falið að fylgjast með því að þau fyrirheit séu efnd. Árið 1985 var undirritaður af hálfu Íslands samningur Sameinuðu þjóðanna gegn pyndingum og annarri grimmilegri, ómannlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Samkvæmt samningnum skulu aðildarríki hans gera virkar ráðstafanir til að koma í veg fyrir pyndingar í lögsögu sinni og ekki framselja mann til annars ríkis ef veruleg ástæða er til að ætla að hann eigi þar á hættu að sæta pyndingum. Íslensk stjórnvöld fullgiltu samninginn árið 1996. Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna samþykkti árið 2002 valfrjálsa bókun (OPCAT) við framangreindan samning. Bókuninni er ætlað að styrkja aðgerðir til að koma í veg fyrir og útrýma pyndingum með því að koma upp reglubundnu eftirliti í aðildarríkjunum, annars vegar með því að koma á fót alþjóðlegri eftirlitsnefnd, sbr. I. og II. kafla bókunarinnar og hins vegar með því að aðildarríkin komi sér upp sínu eigin sjálfstæða eftirliti með því að ákvæðum samningsins sé fylgt. Á flestum hinna Norðurlandanna hefur það verkefni verið falið umboðsmanni þjóðþinga viðkomandi ríkja. Flest ríki Evrópu utan Íslands hafa fullgilt bókunina, þar af öll Norðurlöndin, nú síðast Finnland í október síðastliðinn. Löngu er tímabært að íslensk stjórnvöld fullgildi valfrjálsu bókunina.
Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Innlent Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Innlent Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Innlent Lét ákærða vita af andlátinu: „Hann var í miklu uppnámi“ Innlent Á spítala eftir misheppnaða aftöku Erlent Valgerður réttir fram sáttahönd Innlent Ákærður fyrir að nauðga sofandi og ölvaðri dóttur sinni Innlent Fleiri fréttir Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Ákærður fyrir að nauðga sofandi og ölvaðri dóttur sinni Væntingar um útspil tengt gjaldahækkunum Neituðu sök við þingfestingu Straumsvíkurmálsins Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Sniðganga geti verið túlkuð sem yfirlýsing ríkisstjórnarinnar Fjórir í gæsluvarðhald eftir hraðsendingu frá Þýskalandi Ekkert svigrúm í tengslum við kjarasamninga og tvísýnt með framhaldið Lét ákærða vita af andlátinu: „Hann var í miklu uppnámi“ „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Flutningabíll valt á Þverárfjallsvegi sem er lokaður Lægðin grynnist í dag en von á annarri Bíl ekið á ljósastaur Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði ESA geti ekki beðið endalaust Valgerður réttir fram sáttahönd Vill að Daði vísi til þess sem hún á að hafa sagt Tilkynnt um ölvaðan flugmann Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Konan sem lögreglan lýsti eftir er fundin Nú er hægt að taka Strætó alla leið að flugstöðinni Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Gera alvarlegar athugasemdir við málflutning Daða Skoðar uppfærslu í 36 sæta rafflugvél Neysla geðrofs-, tauga- og ofnæmislyfja stóraukist Dæmdur fyrir manndráp af gáleysi við Vík Sjá meira