Vill að íþróttafélögin fái virðisaukaskattinn endurgreiddan Stefán Árni Pálsson skrifar 4. febrúar 2015 11:07 Willum Þór Þórsson, þingmaður Framsóknarflokksins. vísir/vilhelm
Willum Þór Þórsson, þingmaður Framsóknarflokksins, mælti á Alþingi í gær fyrir frumvarpi um breytingu á lögum um virðisaukaskatt, nr. 50/1988. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Framsóknarflokknum. Meðflutningsmenn eru Páll Jóhann Pálsson, Haraldur Einarsson og Silja Dögg Gunnarsdóttir úr Framsóknarflokknum og Ásmundur Friðriksson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins. Í greinargerð frumvarpsins segir, að frumvarpið miði að því að breyta virðisaukaskattsumhverfi íþróttahreyfingarinnar. Lagt er til að íþrótta- og ungmennafélögum verði endurgreiddur allur virðisaukaskattur sem greiddur hefur verið af vinnu manna við nýbyggingu, endurbyggingu og viðhaldi við íþróttamannvirki, en einnig af þjónustu vegna hönnunar, eftirlits eða viðhalds þeirra. Frumvarpið gerir ráð fyrir að þjónusta og vörusala sem stunduð er til að afla fjár fyrir hefðbundna starfsemi íþróttafélaga verði undanþegnar virðisaukaskatti. Tímabilið í frumvarpinu er eitt ár, frá 1. janúar 2015 til 1. janúar 2016.Sjá einnig: Hagsmunamál upp á hundruði milljóna króna Á síðasta þingi var lögð fram þingsályktunartillaga um endurskoðun á virðisaukaskattsumhverfi íþróttahreyfingarinnar og stóðu sömu stjórnarþingmenn að baki henni. Verði frumvarpið að lögum gæti það stóreflt allt sjálfboðaliðastarf innan íþróttahreyfingarinnar hér á landi og auðvelda íþróttafélögum alla uppbyggingu íþróttamannvirkja. Í tilkynningunni segir að frumvarpið sé í samræmi við stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar um að leggja áherslu á mikilvægi íþrótta-, tómstunda- og æskulýðsmála.
Mest lesið Virðist ekki vera hægt á Íslandi Innlent Hyggst kæra dyraverði Auto til lögreglu Innlent Hiti geti mest náð átján stigum Veður „Ótrúlega sorglegt að pabbi sé búinn að vera svona lengi í þessari stöðu“ Innlent Ný könnun Maskínu: „Væri alveg ný staða í íslenskum stjórnmálum“ Innlent Stytting framhjá Blönduósi ekki á samgönguáætlun Innlent Gaf fingurinn á Miklubraut Innlent „Bandaríkin eiga ekki að taka yfir Grænland“ Erlent Breiddi út faðminn fyrir rasista: „Þið þurfið ekki að biðjast afsökunar á að vera hvít lengur“ Erlent Ráðist á pilt á heimleið Innlent Fleiri fréttir Fjölgun eldri kvenna í Kvennaathvarfi: „Þessar konur bíða ekki“ Ráðist á pilt á heimleið Virðist ekki vera hægt á Íslandi Stytting framhjá Blönduósi ekki á samgönguáætlun Vestmannaeyingar fá að eiga Vestmannaeyjar Hyggst kæra dyraverði Auto til lögreglu „Ótrúlega sorglegt að pabbi sé búinn að vera svona lengi í þessari stöðu“ Höfðu samband við dönsku herstjórnina á Grænlandi Ný könnun Maskínu: „Væri alveg ný staða í íslenskum stjórnmálum“ Glæný Maskínukönnun og jólaóveður Ársæll hringdi beint í utanríkisráðherra eftir fundinn Ósannað að fimmtán ára stúlka hafi stungið sextán ára pilt tvisvar Sameina Farice, Öryggisfjarskipti og hluta Neyðarlínunnar Gaf fingurinn á Miklubraut Birtir drög að lögum um lagareldi: Hyggst leggja niður Fiskeldissjóð Hundrað og fjörutíu milljarða bótakrafa á Samherja sé súrrealísk Skemmdir í kirkjugörðum vegna aksturs utan vegar Ólýsanlegur harmur fyrir fjölskylduna og söfnun hleypt af stokkunum „Ég hef aldrei upplifað annan eins harm“ Vill leiða lista Sjálfstæðismanna í Reykjanesbæ „Þetta hefur verið þungur tími“ Naut aðstoðar samskiptasérfræðinga vegna veiðigjaldamálsins Hrindir af stað söfnun fyrir móður stúlkunnar sem lést í Suður-Afríku Varð vitni að ótrúlegum norðurljósum: „Mér fannst þetta magnað“ Færir nýársboðið fram á þrettándann Fjórir fluttir á sjúkrahús eftir bílveltu á Suðurlandi Leggur aftur til hverfislögreglustöð í Breiðholti Nú má heita Love, Tóní, Ranimosk og Draumur Kvartar til umboðsmanns og vonar að Vegagerðin sjái að sér Ætlar ekki að beita sér í máli starfsmanns Útlendingastofnunar Sjá meira
Breiddi út faðminn fyrir rasista: „Þið þurfið ekki að biðjast afsökunar á að vera hvít lengur“ Erlent
Breiddi út faðminn fyrir rasista: „Þið þurfið ekki að biðjast afsökunar á að vera hvít lengur“ Erlent