Einn einfaldur er eina klukkustund úr líkamanum Stefán Ó. Jónsson skrifar 30. júlí 2015 18:32
Þeir sem ætla sér að drekka áfengi sem nemur sex stórum bjórum mega búast við því að þurfa að bíða í allt að 18 klukkustundir eftir að mega setjast aftur undir stýri. Það þýðir að sá sem hættir drykkju um klukkan 06:00 gæti þurft að bíða með akstur til miðnættis. Þetta kom fram í máli Sigrúnar A. Þorsteinsdóttur, sérfræðings í forvörnum hjá VÍS, sem fræddi hlustendur Bylgjunnar um hætturnar sem kunna að fylgja ótæpilegri áfengisdrykkju um helgina, stærstu ferðahelgi ársins. Hún sagði í samtali við Reykjavík síðdegis að það væri mikilvægt væri leiða hugann að því, sérstaklega núna um Verslunarmannahelgina sem alræmd er fyrir áfengisdrykkju, að áfengi er lengi að brotna niður í líkamanum og að margir ökumenn gerðu sér ekki grein fyrir því að áhrifa þess kunni enn að gæta næstum sólarhring eftir að drykkju hefur verið hætt. Sé ekið of snemma af stað kunni því að fylgja tugþúsund króna sektir sem og ökuleyfissviptingar. Sigrún benti hlustendum á þumalputtareglu sem gott er að hafa í huga áður en haldið er út í umferðina á ný: Líkaminn er um eina klukkustund að losa sig við einfaldan drykk. Sex stórir bjórar eru þannig að sögn Sigrúnar um 12 einfaldir drykkir og eru þannig tólf, jafnvel allt upp í 18, klukkustundir að hverfa úr líkamanum. Sá sem hættir að drekka klukkan fjögur um nóttina má því ekki setjast aftur undir stýri fyrr en seinnipartinn - í fyrsta lagi. Að sama skapi verði að hafa í huga að „niðurtalningin” hefst ekki fyrr en að drykkju er lokið. Ekki þýði að byrja að telja klukkustundirnar frá því að fyrsti áfengisdropinn snertir varirnar. Í spilaranum hér að ofan má heyra ráðleggingar Sigrúnar og þau viðurlög sem kunna að fylgja því ef vel er ekki að gáð.
Mest lesið Fylgi Höllu hrundi eftir kappræðurnar á RÚV Innlent Eldvörp líkleg næst Innlent Meintur fjárdráttur mikið áfall fyrir starfsfólk skólans Innlent Facebook bannar Ástþóri að auglýsa Innlent Ellefu slasaðir eftir að flugtak Boeing 737 mistókst Erlent Börnum safnað saman og þau skotin Erlent María Sigrún birtir tölvupósta Dags Innlent Fylgjast grannt með gangi mála Innlent Samanburður við lóðamál olíufélaganna eins „fjarri sannleikanum og hægt er“ Innlent Skotið á íbúa Rafah og heilbrigðiskerfi Gasa hrunið Erlent Fleiri fréttir Dauð lömb á túni, árás á Rafah og Eurovision Maður sem áreitir börn í Hafnarfirði til rannsóknar Sýknaður af nauðgun en enginn vafi að konan telji á sér brotið Fylgi Höllu hrundi eftir kappræðurnar á RÚV Sinubruni við Hellisskóg á Selfossi 150 þolendum sinnt vegna ofbeldis í nánu sambandi Meintur fjárdráttur mikið áfall fyrir starfsfólk skólans Stóra Svört bar fimm svörtum lömbum Eldgosinu lokið, meintur fjárdráttur og manndrápsrannsókn Eldvörp líkleg næst Rannsókn vegna meints manndráps í Kiðjabergi miðar vel Samanburður við lóðamál olíufélaganna eins „fjarri sannleikanum og hægt er“ Guðríður Hrund skipuð skólameistari MK Eldgosinu lokið eftir 54 daga Leggja aftur fram tillögu um að selja húsnæði MÍR Facebook bannar Ástþóri að auglýsa Býður þjóðarhöll Færeyja undir landsleiki Íslands Reykjavík lækkar gjaldskrár vegna þjónustu við barnafjölskyldur Fylgjast grannt með gangi mála Margt bendi til þess að gosinu sé lokið María Sigrún birtir tölvupósta Dags „Á endanum snýst þetta allt um peninga“ Sækja veikan sjómann Eldur í iðnaðarhúsnæði á Höfða Efstar með ómarktækan mun á milli sín Fjögurra bíla árekstur efst í Ártúnsbrekku Björn Leví segir Harald hafa fundið skálkaskjól í orðum Bjarna Flæði innan við einn rúmmetri á sekúndu „Ég hafna því að við séum ekki að sinna velferð dýra á þessum bæ” Ákvörðun Seðlabankans sé óskiljanleg Sjá meira