Fólk gæti misst bótaréttinn ef það er ekki virkt í atvinnuleit Stefán Árni Pálsson skrifar 4. mars 2015 09:47 Eygló Harðardóttir, félagsmálaráðherra. vísir/ernir „
Könnun okkar á því hvað varð um þá einstaklinga sem misstu bótaréttinn við þar síðustu styttingu á bótaréttinum þegar farið var úr fjórum árum niður í þrjú ár sýndi það þriðjungur þeirra leitaði eftir fjárhagsaðstoð frá sveitarfélögunum,“ segir Eygló Harðardóttir, félagsmálaráðherra, en hún talaði um fyrirhugaðar breytingar á reglum varðandi atvinnuleysisbætur í þættinum Í bítið á Bylgjunni í morgun. „Þannig að meginþorri þeirra sem missti bótaréttinn fékk vinnu. Síðan erum við með tölur frá meðal annars Hafnarfjarðarbæ þar sem sett hafa verið ákveðin skilyrði fyrir fjárhagsaðstoð og þau eru t.d. að viðkomandi þarf að vera í virkri atvinnuleit til að fá aðstoð.“ Eygló segir að mun skýrari rammi verði settur utan í málaflokkinn ef frumvarp hennar fer í gegn. „Þar kemur fram að markmið okkar er að hjálpa fólki til sjálfshjálpar. Það hefur síðan komið áður í ljós að einstaklingar eiga til að hafna þeirra hjálp og fara þar að leiðandi af fjárhagsaðstoðinni.“Hafa reglurnar því ekki verið hvetjandi fyrir fólk til þess að leita sér að vinnu? „Ég held að það sé mjög mikilvægt að sú aðstoð sem við erum að bjóða uppá í öllu velferðarkerfinu styðji fólk til þess að hjálpa sér sjálft. Í mínum huga er vinna forsenda velferðar.“ Eygló segir það brjóta fólk niður að vera lengi frá vinnumarkaðnum. „Við erum samt einnig að aðstoða fólk sem hefur aldrei farið út á vinnumarkaðinn og veit ekki hvað það er að vera á vinnumarkaðnum. Þar skiptir gríðarlega miklu máli að við hjálpum fólki, sérstaklega ungu fólki. Við erum kannski að tala um þrítugan einstakling og ef að við aðstoðum hann ekki til sjálfshjálpar þá verður hann til 67 ára aldurs á framfæri hins opinbera. Frumvarpið sem liggur núna fyrir inni hjá velferðarnefnd gengur út á mikilvægi þess að fólk hjálpi sér sjálft. Þetta er það sem sveitarfélögin eru að kalla eftir og benda á góðan árangur.“ Hún segir að með réttri aðstoð sé hægt að hjálpa fólki að fá vinnu.
Mest lesið Þórdís Kolbrún blæs á sögusagnir um vistaskipti Innlent Sjóðir að tæmast og uppsagnir í kortunum Innlent Bovino sendur til Kaliforníu og Leavitt dregur í land Erlent Níu ferðamenn á ísnum og heil rúta í viðbót á leiðinni Innlent Enga ákvörðun tekið um Þórdísi Kolbrúnu Innlent Taka á móti fyrstu drengjunum í meðferð í lok febrúar Innlent Tveir grunaðir um að rækta hundruð kannabisplantna Innlent Innleiða bílnúmeralesara til að athuga hvar bílar eru skráðir Innlent „Einfaldlega ósammála“ gagnrýni ráðuneytisins Innlent Foreldrar loki á samskipti barna við ömmu og afa Innlent Fleiri fréttir Borgarfulltrúi fer ekki aftur fram og hættir í Pírötum Ekki hægt að fullyrða að andlát hafi tengst Covid-19 bólusetningu „Einfaldlega ósammála“ gagnrýni ráðuneytisins Kynna einn frambjóðanda á dag næstu daga Ekki skrýtið að eitthvað bresti vegna álags á framlínustarfsmenn Tveir grunaðir um að rækta hundruð kannabisplantna Verkalýðshreyfingin úti á túni með sitt tal? Mál rússnesku fjölskyldunnar: Króatía sé talið öruggt land Enga ákvörðun tekið um Þórdísi Kolbrúnu Heiða tekur annað sætið í Reykjavík Meiri hveralykt af vatninu vegna viðhalds og viðgerðar Sjóðir að tæmast og uppsagnir í kortunum Heiða hefur ekki heldur svarað uppstillingarnefnd Helga Kristín gengur til liðs við Miðflokkinn Innleiða bílnúmeralesara til að athuga hvar bílar eru skráðir Stefnir í hallarekstur og uppsagnir hjá Stígamótum „Þetta er auðvitað glæsilegt fyrir flokkinn“ Þingfundi ekki frestað vegna handboltans Leitað að fleira fólki á lista Samfylkingarinnar í Reykjavík Þórdís Kolbrún blæs á sögusagnir um vistaskipti Eldur kviknaði í Strætó Starfslokasamningar kostað undirstofnanir fleiri hundruð milljónir Taka á móti fyrstu drengjunum í meðferð í lok febrúar Fannst vanta stemmningu í skólann og skipulögðu handboltamót Foreldrar loki á samskipti barna við ömmu og afa Öflugur 92 ára dósa og plast plokkari á Suðurlandi Níu ferðamenn á ísnum og heil rúta í viðbót á leiðinni „Förum strax í lífsbjargandi aðgerðir“ Ekki fleiri barnaníðsmál í fimmtán ár Eldsvoði, Bjarni Ben og fjölskylduerjur Sjá meira