Telur að yfirlýsing merki aukinn einkarekstur í heilbrigðiskerfinu Þorbjörn Þórðarson skrifar 10. janúar 2015 13:44 Katrín Jakobsdóttir formaður Vinstri grænna
Formaður Vinstri grænna segir að viljayfirlýsing sem sem undirrituð var í vikunni í tengslum við kjarasamninga lækna sýni svart á hvítu að ríkisstjórnin stefni að auknum einkarekstri í heilbrigðiskerfinu. Útboð sjúkrahótels, þar sem fyrirtæki sem rekið er í hagnaðarskyni var með eina tilboðið, staðfesti svo þetta. Forsætisráðherra, fjármála- og efnahagsráðherra og heilbrigðisráðherra ásamt Læknafélagi Íslands og Skurðlæknafélagi Íslands undirrituðu viljayfirlýsingu í tengslum við gerð kjarasamninga lækna í vikunni. Í sjöunda lið yfirlýsingarinnar segir að fram fari heildstæð skoðun á skipulagi, uppbyggingu og fjármögnun heilbrigðiskerfisins. Opna þurfi möguleika áfjölbreyttum rekstrarformum sem byggja á virkri þjónustu- og verkefnastýringu, skýrum gæðakröfum samhliða jafnræði í greiðslum óháð rekstrarformi. Málsliðurinn „opna þurfi möguleika á fjölbreyttum rekstrarformum“ vekur athygli en þetta orðalag gefur tilefni til túlkunar um að þarna sé áhugi fyrir því að auka enn frekar vægi einkarekstrar í heilbrigðiskerfinu. Um fjórðungur kerfisins er nú þegar í einkarekstri og fjölbreytt rekstrarform til staðar. Vantar rökstuðning fyrir auknu vægi einkarekstrar „Mér finnst þessi yfirlýsing vera að segja mér að það sé ætlunin að auka hlut einkarekstrar í kerfinu án þess að það sé rökstutt með neinum hætti. Það finnst mér merkilegt því rannsóknir sýna að félagslega uppbyggt kerfi eins og það kerfi sem við við Íslendingar höfum að uppistöðu til, það er að segja opinbert kerfi, eru bestu kerfin þegar kemur að aðgengi sjúklinga, lýðheilsu og kostnaði. Þannig að mér finnst þessi yfirlýsing segja að stjórnvöld vilji aukinn einkarekstur án þess að það sé rökstutt sérstaklega,“ segir Katrín Jakobsdóttir formaður Vinstri grænna. Hún segir að nýlegt dæmi um útboð sjúkrahótels sé svo staðfesting á þessu, að vægi einkarekstrar sé að aukast. „Það er fyrirtæki í heilbrigðisþjónustu sem er að bjóða í rekstur sjúkrahótels, fyrirtækið Sinnum, þetta er ákveðin breyting því við höfum langa hefð fyrir því að alls kyns stofnanir sem ekki eru reknar í hagnaðarskyni hafa verið að sinna afmörkuðum þáttum heilbrigðisþjónustu. Það er ákveðin breyting því hér eru ekki einstakir læknar, eða slíkar stofnanir, heldur er um að ræða fyrirtæki í heilbrigðisþjónustu sem er rekið í hagnaðarskyni.“
Mest lesið Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Innlent Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Innlent Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Kristrún tilbúin í aðgerðir Innlent Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Innlent Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Innlent „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Erlent Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Erlent Fleiri fréttir Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Ekki búið að finna nýjan lögreglustjóra hátt í hálfu ári síðar Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Árekstur við Hamraborg Engin aðstoð við próftöku og litaðar númeraplötur Uppsagnir hjá Klettabæ Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Kristrún tilbúin í aðgerðir Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Ákærður fyrir að nauðga sofandi og ölvaðri dóttur sinni Væntingar um útspil tengt gjaldahækkunum Neituðu sök við þingfestingu Straumsvíkurmálsins Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Sniðganga geti verið túlkuð sem yfirlýsing ríkisstjórnarinnar Fjórir í gæsluvarðhald eftir hraðsendingu frá Þýskalandi Ekkert svigrúm í tengslum við kjarasamninga og tvísýnt með framhaldið Lét ákærða vita af andlátinu: „Hann var í miklu uppnámi“ „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Flutningabíll valt á Þverárfjallsvegi sem er lokaður Lægðin grynnist í dag en von á annarri Bíl ekið á ljósastaur Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði Sjá meira