Segir verkefnið spennandi 10. janúar 2015 14:02 Gunnar Birgisson. Vísir/Vilhelm
Gunnar tekur við af Sigurði Val Ásbjarnarsyni sem lætur af störfum að eigin ósk eftir tæplega fimm ára bæjarstjórasetu. Fram kom á Vísi í gær að starfslokin væru í fullri sátt við bæjarstjórn og af persónulegum ástæðum. Gunnar var sem kunnugt er formaður bæjarráðs Kópavogs frá 1990 til 2005 og oddviti Sjálfstæðismanna í bænum. Hann tók þá við embætti bæjarstjóra árið 2005 og gegndi því til ársins 2009. Gunnar sat á þingi fyrir Sjálfstæðisflokkinn, var þingmaður í Reykjaneskjördæmi frá árinu 1999 til 2003 og síðar Suðvesturkjördæmis til ársins 2006. Í fjallabyggð búa um tvö þúsund manns en sveitarfélagið varð til við sameiningu Siglufjarðar og Ólafsfjarðar fyrir tæpum áratug. Gunnar sem gegnir ekki lengur trúnaðarstörfum fyrir Kópavogsbæ mun taka við strax næstu mánaðarmót og segir tilboðið hafa komið brátt að. Gunnar segir stöðu sveitarfélagsins sterka og nefnir sérstaklega umsvif athafnamannsins Róberts Guðfinnssonar. „Mér finnst þetta spennandi verkefni. Þetta er sveitarfélag sem er að snúa vörn í sókn og það hafa verið vandamál hjá sveitarfélögum á landsbyggðinni. Þau hafa átt í vök að verjast. Nú hafa einkaaðilar þarna, eins og Róbert Guðfinnsson, fjárfest mikið í þessu sveitarfélagi þannig að þetta er mjög spennandi verkefni. Það er alltaf gaman að koma að hlutum þegar verið er að byggja upp.“ Gunnar segir tilkomu Héðinsfjarðarganganna meginástæðuna fyrir því að hægt hafi verið að byggja upp í sveitarfélaginu. Hann var reyndar mótfalli gerð ganganna sem þingmaður á sínum tíma og sagði í umræðum á Alþingi 2005, framkvæmdina eina vitlausustu framkvæmd sem hann hefði heyrt um í langan tíma. Hann segir í dag göngin vera lífæð Fjallabyggðar. „Þá var ég þingmaður fyrir Suðvesturkjördæmi og vildi fá peningana í vegaframkvæmdir hér. Á þeim tíma taldi ég þetta vera rosalega mikla fjármuni sem var varið í þetta. En þetta sveitarfélag dafnaði ekki svona vel í dag ef þessi göng væru ekki. Það er alveg ljóst,“ segir Birgir. „Þessi sveitarfélög hefðu nánast dáið hefðu þau ekki komið til.“
Mest lesið Verjanda Helga Bjarts nóg boðið Innlent Þórdís Kolbrún skipuð sendiherra í London Innlent Afleiðingarnar af systkinabroti séu verri en brotið sjálft Innlent Eldur olli miklum skemmdum í kjallara Innlent Launahækkun Höllu illskiljanleg Innlent Faðirinn skaut sjö börn sín til bana og eitt til viðbótar Erlent Föst í Herjólfi í korter eftir langa ferð frá Eyjum Innlent Nánast búin með stafrófið Innlent Stór skálfti í Japan og flóðbylgjuviðvörun gefin út Erlent Vinstrið eygir þrjá borgarfulltrúa og sjálfstæðismenn þann sjöunda Innlent Fleiri fréttir Ný könnun og frægasti köttur landsins Kona flutt á sjúkrahús eftir bruna í kjallaraíbúð Reyndi að greiða með ellefu þúsund króna seðli Grunaðir um að táldraga táningsstúlkur Eldur olli miklum skemmdum í kjallara „Hræðsluáróður, stagl og þvæla sem stjórnarandstaðan ætlar að keyra á“ Þórdís Kolbrún skipuð sendiherra í London Nánast búin með stafrófið Útlit fyrir flókna meirihlutamyndun í borginni Launahækkun Höllu illskiljanleg Verjanda Helga Bjarts nóg boðið Mandarínönd heillar við Hamarkotslæk Öll tólf mánaða börn fá leiksskólapláss í Kópavogi Vilja að fullorðnir lofi að búa til rými þar sem börn geta sagt frá Vinstrið eygir þrjá borgarfulltrúa og sjálfstæðismenn þann sjöunda Bein útsending: Samtal um atvinnustefnu og aðgerðir í þágu verðmætasköpunar Afleiðingarnar af systkinabroti séu verri en brotið sjálft Sagðist ætla að kveikja í hundi áður en hann rændi gull- og demantsmunum Föst í Herjólfi í korter eftir langa ferð frá Eyjum Skýringar manns sem vildi „endurvekja þýsku sturturnar“ héldu ekki vatni Nánast hreint kókaín í umferð en ekkert fentanyl Ofsaakstur um allt höfuðborgarsvæðið Nám Hildar sé merkilegra en menntunarfræði leikskóla „Ég sé engin rök fyrir því“ „Það er bara frekar slæmt ástand“ Inga sendir boltann á sveitarfélögin „Hver hefur reynslu af því að byrla eiginkonu sinni?“ Vill verja hundruðum milljóna í þegar dýrt leikskólakerfi „Eitthvað það tilgerðarlegasta og hallærislegasta sem ég hef séð“ Þúsundir karla byrla eiginkonum sínum og nauðga Sjá meira