Dæmdur fyrir að hrinda ungum dreng og troða snjó inn á hann Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 6. mars 2015 13:52 Atvikið varð í Grafarvogi. Vísir/Vilhelm
Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í dag rúmlega fertugan karlmann í 30 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir líkamsárás á ungan dreng. Maðurinn hrinti honum í snjóskafl og tróð snjó inn á hann. Atvikið varð fyrir um ári síðan í Grafarvogi. Forsaga málsins er sú að strákurinn var ásamt vini sínum við fjölbýlishús að reyna að kasta snjóboltum upp á svalir hússins. Maðurinn var hjá barnsmóður sinni, sem býr á jarðhæð hússins, og var hvolpurinn hennar úti á palli við íbúðina. Maðurinn sá að snjór var á hvolpinum og spurði drengina hvort þeir hefðu verið að kasta í hundinn. Þeir neituðu og sögðu að snjór hefði dottið af svölunum á hvolpinn en manninum fannst það ótrúlegt og sagði strákunum að fara sem þeir og gerðu. Þeir komu svo aftur og köstuðu snjóboltum í glugga hjá manninum. Við það kom hann út og hlupu drengirnir í burtu. Maðurinn elti annan þeirra og sagði drengurinn fyrir dómi að maðurinn hefði „fellt hann í jörðina, snúið honum við, sett snjó inn á hann og lamið hann ofarlega á brjóstkassa eða öxl.“ Maðurinn játaði að hafa troðið snjó inn á drenginn en neitaði að hafa hrint honum eða rifið í úlpu hans, eins og honum var gefið að sök í ákæru. Dómurinn taldi hins vegar sannað að maðurinn hefði hrint stráknum, meðal annars með tilliti til þeirra áverka sem hann hlaut. Þá kvaðst 14 ára stúlka, sem varð vitni að árásinni, hafa séð manninn taka drenginn „harkalega niður.“ Dóm héraðsdóms má sjá hér.
Mest lesið Ómálefnalegir dónar fara í skammarkrókinn Innlent „Ég er ekki búinn að afskrifa hana“ Innlent Fundar með fjölda herforingja í skugga mótmæla Erlent „Maður vill trúa kúnnunum sínum“ Innlent Bílvelta austan við Hvalnes Innlent „One love“ til allra í kommentakerfinu Innlent Vegir og gatnamót í Hvalfirði komnir að þolmörkum Innlent „Þetta er bara toppurinn á ísjakanum“ Innlent „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Innlent Einbreiðar brýr við Berufjörð og Reyðarfjörð líklega næstar Innlent Fleiri fréttir Ómálefnalegir dónar fara í skammarkrókinn „Ég er ekki búinn að afskrifa hana“ „Maður vill trúa kúnnunum sínum“ Hætta rannsókn á andláti á Hraunbúðum „Fær þessar fréttir og við förum að gráta og allt ömurlegt“ „Þetta kemur okkur mjög á óvart“ Segir ótímabært að ræða undanþágur Þrír í haldi vegna fjárkúgunar og ótímabærar undanþágur Þrír handteknir vegna slagsmála Kölluð út um helgina vegna barns sem læstist inni á salerni Leifturhröð viðbrögð björgunarsveitar dugðu ekki til Frestun á frestun ofan í martraðarheimferð frá Gautaborg Atli Steinn biðst auðmjúkur afsökunar Foreldrar velta fyrir sér „innivistartíma barna“ Tuttugu verðandi mæður geti ekki fætt nærri heimili sínu Sæti í almyrkvaflugi falt fyrir hundruð þúsunda króna Maðurinn leitaði ítrekað hjálpar án viðbragða lögreglu Ráðist á mann fyrir utan skemmtistað í nótt Fjárkúgun, nýjasti ráðherrann og loks sól í Reykjavík Hnífstunguárás sem var framin í nótt á borði rannsóknardeildar Sá sem féll í Ölfusá er látinn Gréta María og Hrund til liðs við Sjá Smíði nýrrar brúar yfir Þjórsá boðin út „Þessir helvítis útlendingar skilja ekki neitt“ Kjartan tekur við stöðu sveitarstjóra Þrír fluttir á bráðamóttökuna í þremur aðskildum málum Miklar bikblæðingar við Jökulsárlón Maður sem féll í Ölfusá fundinn Vegir og gatnamót í Hvalfirði komnir að þolmörkum Áfram geisar innbrotahrinan Sjá meira