Fór fársjúkur í meðferð til Havaí kristjana björg guðbrandsdóttir skrifar 6. mars 2015 07:00 Hildur Erlingsdóttir. vísir/pjetur
Hildur Erlingsdóttir missti föður sinn úr krabbameini árið 2011. Á árinu sem hann lést eyddi hann fúlgum fjár í lyfið Salicinium og meðferð á Havaí þar sem hann fékk lyfið í æð. Efnið og meðferðina keypti hann með milligöngu sama sölumanns og seldi Guðmundi Hallvarðssyni sama efni (Orasal) fyrir svipaða upphæð í veikindum hans. Guðmundur lést í desember á síðasta ári og sonur hans ræddi opinskátt við Fréttablaðið í gær um að faðir hans hefði verið prettaður. Framganga sölumannsins þótti honum skyggja á síðustu daga föður síns. Sölumaðurinn seldi föður Hildar ekki eingöngu efnið til lækningar. Fyrir milligöngu hans var hann sendur á læknastofu á Havaí þar sem hann fékk efnið í æð. Þá hafði sölumaðurinn einnig milligöngu um að kaupa golfbíl fyrir hinn deyjandi mann.Var alltaf í kaffi „Við fórum yfir reikningsyfirlitið hans og fundum alls konar færslur til þessa manns. Við kynntumst honum í gegnum fjölskylduna. Henni tengist kona sem vildi meina að hún hefði læknast fyrir tilstilli þessa lyfs,“ segir Hildur og segist auðvitað ekki geta dregið frásögn hennar í efa. Sú kona hafi sannarlega greinst með krabbamein sem hún sé heil af í dag. Því þakkar hún þessu lyfi. „Pabbi vildi fara náttúrulegu leiðina og reyna allt sem hann gat í þeim efnum. Við hugsuðum öll af mikilli bjartsýni að það væri búin að finnast lausn á krabbameini. En þetta var allt rosalegt leynimakk og það mátti ekkert tala um þetta, það fannst mér ótrúlega skrítið. Þessi maður var alltaf í kaffi hjá pabba og konunni hans og virtist koma vel fyrir.“Hallvarður GuðmundssonFékk skammt á hálfa milljón Hildur segir hann hafa keypt skammt af efninu í duftformi í nokkra mánuði sen hafi kostað um það bil hálfa milljón króna. Þá hafi hann verið orðinn mjög veikur. Krabbameinið var þá búið að dreifa sér, fyrst í eitla og þaðan í bein. „Svo er hann sendur af þessum sama manni til Havaí í meðferð. Þar átti hann að fá lyfið í æð og við höldum að hann hafi sagt honum að hann ætti eftir að læknast.Golfbíll og ferð til Havaí Hann var fárveikur þegar hann fór út til Havaí og í engu standi til ferðalaga. Hann stóð ekki í lappirnar. Þeir ákváðu líka í sameiningu að þessi maður myndi flytja einhvern golfbíl inn fyrir hann og ég held að hann hafi fengið einhverjar prósentur af því, þó ég geti ekki fullyrt það. Mér telst til að meðferðin hafi kostað um milljón krónur.“ Kostnaðurinn varð hins vegar mun meiri því Erlingur lenti á spítala. Í heild kostaði ferðin hann að minnsta kosti tvær milljónir. Ríghélt í vonina Meðferðin tókst ekki. Erlingur lést í desember þetta sama ár. Hildur segir hann hafa viljað reyna öll úrræði. Hann hafi líka keypt tæki af Ólafi Einarssyni sem var til umfjöllunar í Kastljósi fyrir nokkrum dögum. „Hann ríghélt í vonina og reyndi öll ráð,“ segir Hildur og segir það hafa verið erfitt fyrir fjölskylduna eftir að hann lést að uppgötva hvernig farið hafði verið með hann.Sagt búið eiginleikum lyfs Fréttablaðið sendi Lyfjastofnun Íslands erindi vegna frásagnar sonar Guðmundar Hallvarðssonar. Í svari stofnunarinnar kemur fram að engar klínískar rannsóknir tengjast vöruheitunum Orasal og Salicinium. Þá kemur fram að varan er merkt af framleiðenda sem fæðubótarefni en er sögð búa yfir eiginleikum sem koma að gagni við meðferð gegn sjúkdómum. Þá ber að líta svo á að hún sé skilgreind sem lyf og markaðssetning hennar óheimili nema að hún hafi markaðsleyfi. Fyrir liggi að umrædd vara uppfylli ekki skilyrði sem settu eru til að lyf hljóti markaðsleyfi. Rúna Hauksdóttir Hvannberg, forstjóri Lyfjastofnunar, segir stofnuninni berast margar ábendingar og fyrirspurnir um efni sem eru sögð með eiginleika lyfja og gagnast gegn sjúkdómum. „Lyfjastofnun mun líklega setja frétt á heimasíðu sína um þetta mál til að upplýsa almenning. Mikilvægt er að fréttamenn, vísindasamfélagið og eftirlitsaðilar vinni saman að því koma réttum upplýsingum á framfæri,“ segir Rúna.
Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Innlent Á spítala eftir misheppnaða aftöku Erlent Valgerður réttir fram sáttahönd Innlent Tilkynnt um ölvaðan flugmann Innlent Flutningabíll valt á Þverárfjallsvegi sem er lokaður Innlent Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði Innlent Nú er hægt að taka Strætó alla leið að flugstöðinni Innlent Fleiri fréttir „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Flutningabíll valt á Þverárfjallsvegi sem er lokaður Lægðin grynnist í dag en von á annarri Bíl ekið á ljósastaur Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði ESA geti ekki beðið endalaust Valgerður réttir fram sáttahönd Vill að Daði vísi til þess sem hún á að hafa sagt Tilkynnt um ölvaðan flugmann Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Konan sem lögreglan lýsti eftir er fundin Nú er hægt að taka Strætó alla leið að flugstöðinni Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Gera alvarlegar athugasemdir við málflutning Daða Skoðar uppfærslu í 36 sæta rafflugvél Neysla geðrofs-, tauga- og ofnæmislyfja stóraukist Dæmdur fyrir manndráp af gáleysi við Vík Innan við helmingur karla vill refsingar fyrir vændiskaup Árásin rannsökuð sem tilraun til manndráps Bein útsending: Hvernig birtast menntarannsóknir í opinberri umræðu? „Einn aðili sem hefur til þessa skilað auðu“ Telur ESA falla frá málsókn ef Alþingi samþykkir frumvarpið Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Tvöfalda makrílráðgjöf Ragnar Þór vissi ekkert og meirihluti karla vill ekki refsa fyrir vændiskaup Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Sjá meira