Ungt fólk útsettara fyrir áreitni Stefán Rafn Sigurbjörnsson skrifar 6. júní 2015 07:00 Önnur hver kona verður fyrir kynferðislegri áreitni. Nordicphotos/Getty
Steinunn Rögnvaldsdóttir „41 prósent þeirra sem starfa í veitingageiranum, ferðaþjónustunni og hóteliðnaðinum hefur orðið fyrir kynferðislegri áreitni í starfi,“ segir Steinunn Rögnvaldsdóttir, félags- og kynjafræðingur. Þar af er önnur hver kona sem hefur orðið fyrir áreitni og fjórði hver karlmaður. Starfsgreinasambandið, Matvæla- og veitingafélag Íslands og systursambönd þeirra á Norðurlöndunum standa fyrir ráðstefnu gegn staðalmyndum og kynferðislegri áreitni innan hótel-, veitinga- og ferðaþjónustunnar næstkomandi mánudag klukkan 10.30 á Hótel Natura. Starfsgreinasambandið ásamt Rannsóknastofnun í jafnréttisfræðum við Háskóla Íslands lét vinna fyrir sig rannsókn um viðfangsefnið. Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands annaðist rannsóknina ásamt Steinunni. „Oftast er það af hálfu viðskiptavina sem starfsmenn verða fyrir áreitni en karlar verða oftar fyrir kynferðislegri áreitni á meðal þeirra á meðan konur verða frekar fyrir áreitni af hálfu yfirmanna,“ segir hún en um fjórðungur kvenna í úrtaki rannsóknarinnar hafði orðið fyrir kynferðislegri áreitni af hálfu yfirmanna. Þá er það langalgengast að ungt fólk verði fyrir áreitni en líkt og flestar kenningar um kynferðislega áreitni og einelti snýst þetta oft um valdastöðu einstaklinga. „Ungt fólk er í minni valdastöðum reynsluleysis vegna. Því liggur það betur við höggi þegar kemur að áreitni,“ segir hún.
Mest lesið Gengst nú við skilaboðunum umdeildu Innlent Stigmögnun í nágrannaerjum: „Hann vildi keyra á mig“ Innlent Hægt að nálgast vottorð um að makinn hafi rangt fyrir sér Innlent „Það átti að taka mig í karphúsið“ Innlent Selenskí undir miklum þrýstingi Innlent Trump fer í fýlu og dregur boð sitt til Carney til baka Erlent „Einhver SA prins mættur til að láta sem allt sé bara kózý“ Innlent Játaði meira og meira eftir því sem á leið Innlent Segist ekki muna eftir að hafa sent skilaboðin Innlent Eldur í sendibíl á Miklubraut Innlent Fleiri fréttir Stigmögnun í nágrannaerjum: „Hann vildi keyra á mig“ Gengst nú við skilaboðunum umdeildu Hægt að nálgast vottorð um að makinn hafi rangt fyrir sér Um 900 manns nú með lögheimili í Grindavík „Það átti að taka mig í karphúsið“ Selenskí undir miklum þrýstingi Tímamótaviðræður hafnar og ögurstund hjá Samfylkingunni Eldur í sendibíl á Miklubraut Arnar Grétarsson í stjórnmálin Gjörbreytt Langahlíð fyrir milljarð Segist ekki muna eftir að hafa sent skilaboðin „Einhver SA prins mættur til að láta sem allt sé bara kózý“ Endurtekin og alvarleg mál valda áhyggjum Hiti færist í leikinn: „Frægur karl með enga reynslu“ Samfylkingarmönnum í Reykjavík fjölgað um 72 prósent Heimilisofbeldismálin alvarlegri en áður og fundað um Úkraínu í Abu Dhabi Svona var Pallborðið með Heiðu Björgu og Pétri Játaði meira og meira eftir því sem á leið Fann innbrotsþjófinn sofandi á heimilinu Nú geta íbúar skráð sjálfir hvað megi betur fara í borginni „Þetta er svolítið óvenjulegt, ég er ekki á þingi“ Landsleikir á vinnutíma fela í sér tækifæri Pétur vill leiða Viðreisn í Kópavogi Kom ekki á teppið Landsvirkjun hyggst bjóða út alla verkþætti Hvammsvirkjunar í ár Lilja sækist eftir því að leiða Framsókn Willum fer ekki fram og styður Lilju Foreldrarnir vissu ekki af kynferðisofbeldinu Magnea vill hækka sig um sæti Vissu ekki af kynferðisbrotinu fyrr en lögreglan hafði samband Sjá meira