Má ekki koma nálægt fyrrverandi konu sinni og börnum Birgir Olgeirsson skrifar 16. febrúar 2015 14:57
Hæstiréttur hefur staðfest ákvörðun lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu um að karlmaður skuli sæta nálgunarbanni gagnvart fyrrverandi eiginkonu sinni, syni þeirra og dóttur. Það var barnavernd sem lagði fram beiðni hjá lögreglustjóranum 3. febrúar síðastliðinn að manninum yrði gert að sæta nálgunarbanni og brottvísun af heimili. Í greinargerð lögreglunnar kemur fram að maðurinn og konan skildu árið 2006 en eiga saman tvö börn. Með beiðni barnaverndar fylgdi greinargerð ásamt 22 fylgiskjölum en um er að ræða nokkuð langa sögu þar sem margsinnis hefur verið tilkynnt um ofbeldi af hálfu mannsins í garð konunnar og barna þeirra.Óttast manninn Starfsmenn barnaverndar ræddu við konuna og börnin í janúar síðastliðnum en í viðtölunum greindu þau frá líkamlegu og andlegu ofbeldi af hálfu mannsins gagnvart þeim öllum en jafnframt kynferðisofbeldi gagnvart konunni. Þau greindi frá miklum ótta gagnvart manninum. Konan gaf einnig skýrslu hjá lögreglu í febrúar en þar staðfesti hún að hún sætti andlegu-, líkamlegu- og kynferðislegu ofbeldi af hálfu varnaraðila og að hann beitti börn þeirra andlegu ofbeldi og drengnum jafnframt líkamlegu ofbeldi. Konan sagðist vera barnshafandi eftir varnaraðila og óttaðist mjög að verða fyrir ofbeldi af hans hálfu og að bæði hún og ófædda barnið hlytu skaða af.Samþykkti nálgunarbann gagnvart konunni Maðurinn neitaði sök við skýrslutöku hjá lögreglu og hafnaði þeim ásökunum um ofbeldi gagnvart eiginkonunni fyrrverandi og sagði að kynlíf þeirra hefði farið fram með samþykki beggja. Hann neitaði einnig alfarið að hafa beitt börnin ofbeldi. Hann samþykkti nálgunarbann gagnvart eiginkonunni fyrrverandi en hafnaði því að þurfa að sæta nálgunarbanni gagnvart börnunum sínum. Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu taldi ljóst af gögnum málsins að rökstuddur grunur sé fyrir hendi um að varnaraðili hafi beitt konan og börnin ofbeldi, hótunum og kúgun og að miklar líkur séu á því að hann muni fremja refsiverð brot á ný gagnvart þeim.
Tengdar fréttir Þrjú nálgunarbönn felld úr gildi Hæstiréttur hefur á þremur dögum fellt úr gildi þrjú nálgunarbönn lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu gegn mönnum sem grunaðir eru um brot gegn fyrrverandi sambýliskonum sínum. 28. janúar 2015 07:00 Aðstoðarlögreglustjóri segir niðurstöðu Hæstaréttar mikil vonbrigði Alda Hrönn Jóhannsdóttir er ekki sammála því að falla úr gildi nálgunarbann á sambýlismann Juliane Ferguson. 27. janúar 2015 18:37 Felldu nálgunarbann úr gildi yfir manni sem fleygði eignum konu fram af svölum Dómarar sögðu gögn ekki staðfesta ásakanir um ofbeldi eða ógnanir 27. janúar 2015 15:06 Vill að alþingi skoði hvort breyta þurfi lögum eftir að Hæstaréttur felldi úr gildi nálgunarbann Björt Ólafsdóttir, þingkona Bjartrar framtíðar, segir ekki hægt að leggja á konur og börn að þola ofbeldi af því að alþingi sé svifaseint. 28. janúar 2015 15:25 Mest lesið OpenAI hættir notkun raddar eftir inngrip lögmanna Johansson Erlent Fengu ekkert merki frá þyrlunni sem hrapaði með forsetann um borð Erlent Réttað yfir Hinrik XIII og öðrum leiðtogum valdaránstilraunar Erlent Katrín leiðir í nýrri könnun Prósents Innlent Mikill viðbúnaður vegna bráðra veikinda Innlent Biden segir Ísraela saklausa af ásökunum um þjóðarmorð Erlent Fyrsti stríðsþristurinn lentur Innlent Netanjahú hafnar handtökuskipuninni Erlent „Viðurkenning á því að þetta er blaðamennska sem hann var að stunda“ Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Fleiri fréttir Lilja fundar með RÚV um „nýlenskuna“ Katrín leiðir í nýrri könnun Prósents „Viðurkenning á því að þetta er blaðamennska sem hann var að stunda“ Þolinmæði saminganefnda á þrotum Gæsluvarðhald yfir Davíð Viðarssyni framlengt 80 til 120 herskip lágu í Hvalfirði Fyrsti stríðsþristurinn lentur Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna sé vanhæft til að takast á við aðstæðurnar Handtökuskipun á hendur forsætisráðherra og kjaradeila Séra Eva Björk ráðin biskupsritari Fimm stríðsþristar á leiðinni til landsins Samningur BÍ í höfn í Karphúsinu Ráðherrar hafi verið ítrekað varaðir við gjöf Haraldar Sungið og sungið á Sauðárkróki „Ég stóð bara með sóttvarnalækni“ Mikill viðbúnaður vegna bráðra veikinda Ósk um handtökuheimild og deilur um Erfðagreiningu Erfitt að ímynda sér meiri harðlínumann en Raisi Sat saklaus í unglingafangelsi í tvö ár Frambjóðendur geti nýtt sér skoðanakannanir Glæsilegt fuglasafn í veiðihúsinu við Hítará Varasamt að ferðast á sumardekkjum í kvöld Óttast um afdrif Íransforseta og ferðaveðrið í beinni Stuðningur Katrínar við sóttvarnarlækni sjálfsagður „Fólk er bara að bíða“ Tveir prestar og tveir djáknar vígðir í Skálholti Lægð yfir landinu og snjókoma fyrir norðan Áfall þegar samskipti Katrínar og Kára voru birt Aukin skjálftavirkni og erjur um Erfðagreiningu Örlítil aukning í skjálftavirkni undir Svartsengi Sjá meira
Þrjú nálgunarbönn felld úr gildi Hæstiréttur hefur á þremur dögum fellt úr gildi þrjú nálgunarbönn lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu gegn mönnum sem grunaðir eru um brot gegn fyrrverandi sambýliskonum sínum. 28. janúar 2015 07:00
Aðstoðarlögreglustjóri segir niðurstöðu Hæstaréttar mikil vonbrigði Alda Hrönn Jóhannsdóttir er ekki sammála því að falla úr gildi nálgunarbann á sambýlismann Juliane Ferguson. 27. janúar 2015 18:37
Felldu nálgunarbann úr gildi yfir manni sem fleygði eignum konu fram af svölum Dómarar sögðu gögn ekki staðfesta ásakanir um ofbeldi eða ógnanir 27. janúar 2015 15:06
Vill að alþingi skoði hvort breyta þurfi lögum eftir að Hæstaréttur felldi úr gildi nálgunarbann Björt Ólafsdóttir, þingkona Bjartrar framtíðar, segir ekki hægt að leggja á konur og börn að þola ofbeldi af því að alþingi sé svifaseint. 28. janúar 2015 15:25