20 þúsund nýttu sér þjónustu velferðarsviðs Jakob Bjarnar skrifar 31. júlí 2015 12:21 Stefán Eiríksson tók við sem forstöðumaður velferðarsviðs borgarinnar á árinu. Verkefni gegn heimilisofbeldi í samvinnu við önnur sveitarfélög og lögreglustjórann á höfuðborgarsvæðinu er meðal þess sem ákveðið var að ráðast í. visir/stefán
Samkvæmt nýrri ársskýrslu velferðarsviðs fyrir árið 2014 nýttu tuttugu þúsund einstaklingar sér þjónustu sviðsins með einum hætti eða öðrum. Meðal þeirra voru tæplega níu þúsund sem fengu greiddar húsaleigubætur og yfir þrjú þúsund fengu félags- eða sálfræðirágjöf. Á velferðarsviði fer fram mjög umfangsmikil starfssemi en 129 starfseiningar eru starfsræktar á sviðinu og þar vinna 2.351 starfsmenn. Heildarútgjöld Reykjavíkurborgar til starfssemi sviðsins námu 15.7 prósent af heildarútgjöldum borgarinnar. Þetta kemur í fréttatilkynningu frá velferðarsviði þar sem vakin er athygli á skýrslunni og tæpt á efni hennar. Þannig er talað um að Stefán Eiríksson hafi tekið við stöðu sviðsstjóra, stefna Reykjavíkurborgar í þjónustu við fatlað fólk, í málefnum utangarðsfólks og í forvarnarmálum tóku gildi, samþykkt að byggja fleiri búsetukjarna fyrir fatlað fólk og Reykjavíkurborg sótti um að vera meðal þeirra borga í Evrópu sem Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin (WHO) skilgreinir sem aldursvæna borg. „Það þýðir að á næstu árum mun borgin meta stöðu sína og vinna að því að vera aðgengileg aðlaðandi og hentug borg fyrir eldri borgara,“ segir í tilkynningunni. Þá var samþykkt að innleiða verkefni gegn heimilisofbeldi í samvinnu við önnur sveitarfélög og lögreglustjórann á höfuðborgarsvæðinu, Gistiskýlið fyrir heimilislausa karla flutti í nýtt og betra húsnæði að Lindargötu 48, þjónustumiðstöð Miðborgar og Hlíða flutti einnig í betra húsnæði á Laugavegi 77 og félagsmiðstöðin Borgir opnaði í Spönginni í Grafarvogi. Þetta og svo margt fleira má lesa um í ársskýrslu velferðarsviðs árið 2014.
Mest lesið Myndir: Allt á floti í Kringlunni Innlent Umfangsmikið mengunarslys vegna rútuslyssins Innlent „Sumar búðir hafa sloppið vel, aðrar ekki“ Innlent Náði ekki að loka búðinni áður en henni var sagt að koma sér út Innlent Leiðinlegt fyrir útskriftarnema sem er hent út áður en þeir taka sopa Innlent „Við munum ekkert hreyfa okkur í sumar“ Innlent Konungsskip Dana í Reykjavík Innlent Sigurður Ingi ekki búinn að undirrita Isavia-samning Innlent Harma banaslysið og hafa uppfært verkferla Innlent Eldur logar í þaki Kringlunnar Innlent Fleiri fréttir Myndir: Allt á floti í Kringlunni Umfangsmikið mengunarslys vegna rútuslyssins Konungsskip Dana í Reykjavík „Sumar búðir hafa sloppið vel, aðrar ekki“ Safnað fyrir gróðurskála á Kirkjubæjarklaustri „Við munum ekkert hreyfa okkur í sumar“ Flókið verkefni og mikið tjón í Kringlunni Leiðinlegt fyrir útskriftarnema sem er hent út áður en þeir taka sopa Eldur í Kringlunni og Kristján Loftsson um hvalveiðileyfið Náði ekki að loka búðinni áður en henni var sagt að koma sér út Héldu fyrst að þetta væri brunaæfing Sigurður Ingi ekki búinn að undirrita Isavia-samning Eldur logar í þaki Kringlunnar Björgunarsveit kölluð út í Þórsmörk Áhyggjur af vanda drengja í menntakerfinu óþarfar Þyrlan kölluð út vegna reiðslyss Kjósendur Jóns Gnarr líklegastir til að vera ósáttir með Höllu Vilja banna hvalveiðar með lögum Áttatíu prósent af plasti í fjörum landsins kemur frá útlöndum Efast um að ráðherrar nái fram markmiði sínu Tveimur haldið sofandi vegna slyssins Rútuslys í Öxnadal og meintar rangfærslur ráðherra Guðni snýr aftur í sagnfræðina Leita að nýju húsnæði fyrir kaffistofu Samhjálpar Öxnadalsheiði opin á ný Harma banaslysið og hafa uppfært verkferla Bein útsending: Brautskráningar Háskóla Íslands Svandís og Sigurður Ingi sögð bakka upp bílastæðagjöldin Of snemmt að kenna bikblæðingum um Átök á lokametrunum: Saka ríkisstjórn um að „slátra“ samgönguáætlun Sjá meira