Stöðvuðu hópslagsmál í Mosfellsbæ Samúel Karl Ólason skrifar 8. mars 2015 09:39 Lögreglan segir mikla ölvun hafa verið í miðborginni í nótt. Vísir/Kolbeinn Tumi
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu var kölluð í Tangahverfi í Mosfellsbæ í nótt, þar sem fimm karlar slógust. Mennirnir hættu þó slagsmálunum þegar lögreglu bar að garði og enginn þeirra vildi tjá sig um hvað hefði gert. Mennirnir voru nokkuð lemstraðir og voru allir af erlendu bergi brotnir. Í dagbók lögreglunnar segir einnig frá því að tæplega fimmtugur karl hafi verið handtekinn fyrir utan skemmtistað í Hafnarfirði. Lögreglan hafði fengið tilkynningu um líkamsárás, en maðurinn var sagður hafa slegið konu og gisti hann fangageymslu í nótt. Þá var karlmaður á þrítugsaldri handtekinn við skemmtistað í Hafnarstræti, þar sem hann hafði ítrekað ráðist á dyraverði. Hann var handtekinn og færður í fangageymslu. Engan dyravörð sakaði þó. Skömmu fyrir fimm í nótt fékk lögreglan tilkynningu um mann á gangi á Laugarvegi, með höfuðkúpugrímu og hníf í hendi. Þegar lögregluþjónar komu á vettvang var maðurinn ekki með hníf en í fórum hans fannst lítilræði af fíkniefnum. Í dagbók lögreglu segir að nokkur erill hafi verið í miðborginni í nótt vegna ölvunar. Ung kona, sem talið er að sé erlendur ferðamaður, sefur ölvunarsvefni í fangaklefa. Hún var ekki með skilríki og gat ekki upplýst lögreglumenn um hver hún væri eða hvar hún héldi til.
Mest lesið Skúli fagnar með „sannleikann að vopni“ Innlent Eftirlitsmenn Strætó báðu um að fá að klæðast stunguvestum Innlent Ómálefnalegir dónar fara í skammarkrókinn Innlent „Ég er ekki búinn að afskrifa hana“ Innlent „Fólk bara skammast sín svo rosalega mikið“ Innlent Ekki auðvelt að skrifa grein sem þessa Innlent Vegir og gatnamót í Hvalfirði komnir að þolmörkum Innlent Fundar með fjölda herforingja í skugga mótmæla Erlent Fari mjög líklega aftur í „Ég sagði það“-frakkann næsta vor Innlent Enginn alvarlega slasaður eftir bílveltuna Innlent Fleiri fréttir Flugmennirnir sviptir flugleyfi Fyrrum bæjarstjóri og bankastjóri leiða stjórn Landspítalans „Fólk bara skammast sín svo rosalega mikið“ Málaður regnbogafáni gæti reynst of sleipur Skúli fagnar með „sannleikann að vopni“ Samherji og Guðrún Karls berjast saman gegn fíknidjöflinum Ástarsvik sífellt algengari og rannsókn lokið í Eyjum Eftirlitsmenn Strætó báðu um að fá að klæðast stunguvestum Fórnuðu gúmmístígvélunum við að slökkva sinueld á Ströndum Ekki auðvelt að skrifa grein sem þessa Ómálefnalegir dónar fara í skammarkrókinn „Ég er ekki búinn að afskrifa hana“ „Maður vill trúa kúnnunum sínum“ Hætta rannsókn á andláti á Hraunbúðum „Fær þessar fréttir og við förum að gráta og allt ömurlegt“ „Þetta kemur okkur mjög á óvart“ Segir ótímabært að ræða undanþágur Þrír í haldi vegna fjárkúgunar og ótímabærar undanþágur Þrír handteknir vegna slagsmála Kölluð út um helgina vegna barns sem læstist inni á salerni Leifturhröð viðbrögð björgunarsveitar dugðu ekki til Frestun á frestun ofan í martraðarheimferð frá Gautaborg Atli Steinn biðst auðmjúkur afsökunar Foreldrar velta fyrir sér „innivistartíma barna“ Tuttugu verðandi mæður geti ekki fætt nærri heimili sínu Sæti í almyrkvaflugi falt fyrir hundruð þúsunda króna Maðurinn leitaði ítrekað hjálpar án viðbragða lögreglu Ráðist á mann fyrir utan skemmtistað í nótt Fjárkúgun, nýjasti ráðherrann og loks sól í Reykjavík Hnífstunguárás sem var framin í nótt á borði rannsóknardeildar Sjá meira