Reglur um tengsl koma í veg fyrir nýrnagjöf til fárveikrar konu Þórhildur Þorkelsdóttir skrifar 31. október 2015 19:30
Sautján manns hafa sett sig í samband við systur tæplega fertugrar konu með alvarlegan nýrnasjúkdóm, eftir að hún auglýsti eftir nýra í gegnum Facebook. Málið stoppar á reglum Landspítala um að einhverskonar tengsl þurfi að vera til staðar svo hægt sé að gefa líffæri. Bryndís Jónsdóttir hefur barist við sjálfofnæsmissjúkdóm frá 2001. Nú eru nýru hennar eru nánast hætt að starfa og ljóst að hún þarf á nýju að halda, en ekki hefur fundist nýra sem passar hjá fjölskyldu og vinum. Sigríður María Jónsdóttir, systir Bryndísar, og Ingibjörg Gunnarsdóttir, vinkona hennar, ákváðu því að auglýsa eftir nýra á Facebook og hafa viðbrögðin ekki látið á sér standa. Sautján manns hafa haft samband við þær og lýst yfir áhuga á að gefa Bryndísi nýra. En málið er flóknara en svo. Á Landspítalanum gilda reglur um að einhverskonar tengsl þurfi að vera á milli þess sem gefur nýra og þess sem þiggur það. Er það meðal annars gert af siðferðisástæðum og til að koma í veg fyrir viðskipti með líffæri. „Þetta fólk hefur allt verið tilbúið að stíga þessi skref og þeim finnst þetta vera ósanngjarnt, að mega ekki gefa þó að þau þekki hana ekki. Þetta er allt fólk í sama blóðflokki og hún,“ segir Sigríður. Þær vilja sjá reglunum breytt. „Ég held að meirihluti fólks átti sig ekki á stöðunni, hvernig þetta er. Fólk er rosalega hissa á þessu og þetta kemur fólki á óvart, að kærleikurinn og samkenndin skuli ekki vera númer eitt, tvö og þrjú. Það er ekki nema klukkutími síðan við fengum símtal frá manni sem hafði mikinn áhuga á að gefa en honum var vísað frá þar sem það voru ekki nógu mikil tengsl,“ segir Ingibjörg. „Í rauninni finnst mér leitt að við skulum búa í samfélagi þar sem regluverk skuli koma í veg fyrir að maður geti hjálpað náunga sínum. Það er eitthvað mikið að. Þessu þarf að breyta,“ bætir hún við.
Mest lesið Nafn mannsins sem lést í fallhlífastökki í Danmörku Innlent Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Innlent Trump segist vera að íhuga að draga saman seglin í Þýskalandi Erlent Vændiskaupendur verði nafngreindir og þeim stungið í steininn Innlent Rifjaði upp erfitt augnablik frá 1994 til að skjóta á mótherja Innlent Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Innlent Stefni í sömu átt og Svíþjóð Innlent Vilja nú alþjóðlegt samstarf um Hormússund Erlent Svæðisskrifstofur Guðmundar Inga líklega slegnar út af borðinu Innlent Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Innlent Fleiri fréttir Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Skipulagt niðurbrot á réttindum launafólks hafi náð til Íslands „Konur upplifa ekki öryggi í íslensku samfélagi“ Nafn mannsins sem lést í fallhlífastökki í Danmörku Mátti ekki arfleiða sambýliskonuna að séreigninni Dómsmálaráðherra boðar herta löggjöf í vændismálum Vændiskaupendur verði nafngreindir og þeim stungið í steininn Svör Kristrúnar minni meira á Keir Starmer en Mette Fredriksen Flugvallarstæði Hvassahrauns á mesta áhættusvæði hraunflæðis Svæðisskrifstofur Guðmundar Inga líklega slegnar út af borðinu Helmingur gæti ekki mætt 100 þúsund króna útgjöldum Bein útsending: Svarar fyrir skipulagsbreytingar á framhaldsskólum Bein útsending: Ræða markmiðadrifði hagkerfi í þaula Rifjaði upp erfitt augnablik frá 1994 til að skjóta á mótherja Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Baldur til Eyja „Þetta er gríðarlegt högg fyrir þessi minni bæjarfélög“ „Það er mikið verið að suða“ Stefni í sömu átt og Svíþjóð Gripu til sinna ráða og settu Starlink í skólarútuna „Hún er skrifuð af mér“ Ísland stefni í sömu átt og Svíþjóð Fjórir í varðhaldi vegna Dettifossmálsins Rafgeymar gátu ekki fætt dælur þegar Ormurinn langi sökk Mega hjóla gegn einstefnu Sjá meira