Notendum rítalíns fjölgar Viktoría Hermannsdóttir skrifar 10. apríl 2015 11:00 Mikil aukning hefur verið á undanförnum árum í ávísun á lyfjunum. Nordicphotos/Getty
Notendum methylfenidats-lyfja, þar með talins rítalíns, hefur fjölgað mikið á undanförnum árum. Á síðasta ári voru notendur 6.666 talsins en árið á undan voru þeir 6.106 talsins samkvæmt upplýsingum frá landlækni. Árið 2005 voru notendur 2.693 og af þeim voru mun fleiri börn en fullorðnir. Að sögn Ólafs B. Einarssonar, verkefnastjóra lyfjagagnagrunns hjá Embætti landlæknis, hefur heildarnotkun verið að aukast jafnt og þétt. Ástæðan fyrir því er bæði að heildarfjöldi notenda hefur aukist ásamt því að hlutfall fullorðinna sem fær lyfjunum ávísað er hærra. „Fyrstu árin sem lyfjagagnagrunnur var starfræktur voru það mun fleiri börn en fullorðnir sem fengu ávísað methylfenidati. Síðan 2005 hefur notkun verið að aukast meðal fullorðinna en árið 2012 voru í fyrsta skipti fleiri fullorðnir sem fengu ávísað methylfenidati. Þegar ávísunum til fullorðinna fjölgaði þá varð aukning í heildarmagni, skiljanlega,“ segir Ólafur. Hann segir að í raun hafi það magn sem er ávísað á hvern og einn þó ekki aukist.„Í raun hefur dregið úr notkun þessara lyfja ef þú mælir ávísað magn á hvern notanda og okkar von er sú að aukin gæði í greiningu ADHD og fleiri úrræði í meðferð muni leiða til þess að notkun þessara lyfja verði eitthvað í líkingu við það sem hún er meðal annarra þjóða,“ segir hann en á Íslandi er mesta notkun methylfenidats-lyfja á Norðurlöndunum. „Eftirlit með ávísunum ávanabindandi lyfja hefur verið aukið til muna hjá embættinu. Bæði koma fleiri starfsmenn að því og samstarf hefur verið aukið milli stofnana. Embættið hefur einnig beitt sér fyrir bættu starfsumhverfi lækna með beinum aðgangi að lyfjagagnagrunni og með meiri upplýsingagjöf til þeirra.“ Frá árinu 2013 hefur verið starfrækt sérstakt ADHD-teymi á Landspítalanum sem sinnir greiningu fullorðinna.Þekkt hefur verið undanfarið ár að fíklar misnoti þessi lyf og þau séu seld á svörtum markaði. Valgerður Rúnarsdóttir, læknir á sjúkrahúsinu Vogi, segir þó að ekki sé að merkja aukningu á misnotkun þessara lyfja undanfarið. „En þetta er mjög alvarleg staða og mjög mikið notað af þessum lyfjum.“ Valgerður segir það þekkt annars staðar að fíklar misnoti þessi lyf en hér á landi séu fleiri sem sprauti þeim í sig.Valgerður Rúnarsdóttir Fréttablaðið/Pjetur „Þeir sem nota örvandi vímuefni sækja í þetta efni. Þannig að það er kannski vinsælasta efnið hjá stórum hluta þeirra sem nota örvandi vímuefni. Þessi lyf hafa verið hluti af vímuefnaneyslunni hjá sprautufíklum og reyndar öðrum í langan tíma,“ segir hún en tekur fram að stór hluti þeirra sem noti lyfin þurfi á þeim að halda. Þó sé það vitað að það sé alltaf ákveðinn hópur sem fái lyfjunum ávísað en selji þau öðrum. nlega,“ segir Ólafur. Hann segir að í raun hafi það magn sem er ávísað á hvern og einn þó ekki aukist.
Mest lesið Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Innlent „Ég er ógeðslega reiður“ Innlent Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Erlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Tilkynnt um ölvaðan flugmann Innlent Valgerður réttir fram sáttahönd Innlent Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Innlent Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Innlent Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Innlent Konan sem lögreglan lýsti eftir er fundin Innlent Fleiri fréttir „Ég er náttúrlega leiður yfir þessu“ Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði ESA geti ekki beðið endalaust Valgerður réttir fram sáttahönd Vill að Daði vísi til þess sem hún á að hafa sagt Tilkynnt um ölvaðan flugmann Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Konan sem lögreglan lýsti eftir er fundin Nú er hægt að taka Strætó alla leið að flugstöðinni Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Gera alvarlegar athugasemdir við málflutning Daða Skoðar uppfærslu í 36 sæta rafflugvél Neysla geðrofs-, tauga- og ofnæmislyfja stóraukist Dæmdur fyrir manndráp af gáleysi við Vík Innan við helmingur karla vill refsingar fyrir vændiskaup Árásin rannsökuð sem tilraun til manndráps Bein útsending: Hvernig birtast menntarannsóknir í opinberri umræðu? „Einn aðili sem hefur til þessa skilað auðu“ Telur ESA falla frá málsókn ef Alþingi samþykkir frumvarpið Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Tvöfalda makrílráðgjöf Ragnar Þór vissi ekkert og meirihluti karla vill ekki refsa fyrir vændiskaup Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Í mál gegn Íslandi fyrir vanefndir á bókun 35 Ein vél Fljótsdalsstöðvar úti „Ég er ógeðslega reiður“ Kröpp og djúp lægð og varasamar vindhviður Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Sjá meira