Byrjað að rífa nýuppgert sumarhús forstjóra OR við Þingvallavatn Garðar Örn Úlfarsson skrifar 14. júlí 2015 07:00 Félagarnir Hannes og Óskar, sem saman eru kallaðir Hanskar af gárungunum, sýndu engin vettlingatök þegar þeir byrjuðu í gær að rífa klæðninguna sem þeir negldu utan á forstjórabústað Orkuveitunnar í Riðvík á árinu 2012. Vísir/Pjetur
Hafist var handa í gær við niðurrif á forstjórabústað Orkuveitu Reykjavíkur við Þingvallavatn. Aðeins eru liðin þrjú ár síðan endurbótum á húsinu lauk. Þær kostuðu 8,9 milljónir króna frá og með árinu 2008. Bústaðurinn er byggður árið 1946 og fylgdi með þegar Hitaveita Reykjavíkur keypti Nesjavallajörðina 1964. Húsið hefur fyrst og fremst verið ætlað fyrir forstjóra fyrirtækisins. Afnema átti öll sérréttindi stjórnenda OR samkvæmt ákvörðun sem tekin var í kjölfar þess að ný stjórn tók við sumarið 2010. Bjarni Bjarnason, sem settist í forstjórastólinn á árinu 2011, kveðst sjálfur hafa nýtt húsið, þar af tvisvar sumarið 2012. „Fyrri ferðin er vegna vinnunnar en sú síðari fer í bága við stranga skilgreiningu á afnámi sérréttinda,“ sagði í svari Bjarna við fyrirspurn Fréttablaðsins í september í fyrra. Þá sagði Bjarni að millistjórnendur í fyrirtækinu hefðu nýtt bústaðinn fram á síðasta sumar. Sömu tveir mennirnir og luku við seinni áfanga í að klæða bústaðinn að utan fyrir þremur árum tóku nú að sér að rífa húsið. Verkið fengu þeir eftir útboð. Sögðu þeir í gær dálítið sérstakt að vera mættir á staðinn svo skömmu síðar til að rífa klæðninguna utan af húsinu aftur. Öllum ummerki um bústaðinn eiga að vera horfin 31. ágúst. Lóðin verður grædd upp með mosa sem fenginn er af framkvæmdasvæðum orkuveitunnar í Hverahlíð. „Fréttir af bústaðnum í Fréttablaðinu og á Stöð 2 settu hann í kastljósið. Ekki þurfti djúpa greiningu á málinu til þess að komast að þeirri niðurstöðu að bústaðurinn skyldi víkja, enda stendur hann nánast ofan á vatnsbólinu á Grámel og liggur illa við sprungustefnum í hrauninu,“ útskýrði Bjarni forstjóri í svari sínu í september. Og niðurrifið hófst sem sagt í gær. Eins og fram kemur að framan voru 8,9 milljónir króna lagðar í endurnýjun á forstjórabústaðnum á árunum 2008 til 2012. Meðal annars voru gluggar endurnýjaðir og ný klæðning sett utan á húsið. Baðherbergi var tekið í gegn. Sturtuklefa úr því á nú að koma fyrir í sumarhúsi starfsmannafélags OR. Tíu sumarbústaðir í einkaeigu sem standa í landi Orkuveitunnar á Nesjavallajörðinni eiga með tímanum einnig að hverfa vegna vatnsverndarsjónarmiða. Samningar hafa staðið yfir við eigendur þeirra húsa um áframhaldandi leigu. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins er nú rætt um 15 ára leigutíma en það fékkst ekki staðfest hjá Orkuveitunni í gær.
Mest lesið Lögreglan leitar að Cezary Innlent Starfsemi Hvals mögulega í uppnám: Hefur ekki svarað eftirlitinu frá því í maí Innlent „Hagið ykkur eins og fullorðið fólk“ Innlent Ógn felist í hótunum Paul Watson-samtakanna Innlent Dæmdur í fangelsi fyrir að hrella fyrrverandi kærustu Erlent „Hverjir hafa efni á því að kaupa gramm af kókaíni?“ Innlent Mímósuísinn ljúffengur en gerir aldrei aftur Jägermeister-ís Innlent Aflvana togari hættulega nálægt landi Innlent Spiluðu þjóðsönginn á meðan hvalurinn var dreginn á land Innlent Sér Blönduós eflast með byggðalínu og virkjunum Innlent Fleiri fréttir Sér Blönduós eflast með byggðalínu og virkjunum Mímósuísinn ljúffengur en gerir aldrei aftur Jägermeister-ís Ógn felist í hótunum Paul Watson-samtakanna Lögreglan leitar að Cezary Aflvana togari hættulega nálægt landi Vegum lokað og bílar taldir Starfsemi Hvals mögulega í uppnám: Hefur ekki svarað eftirlitinu frá því í maí Segir verk Þórbergs enn ótrúlega lifandi „Hagið ykkur eins og fullorðið fólk“ „Hverjir hafa efni á því að kaupa gramm af kókaíni?“ Stærsta kókaínmál Íslandssögunnar og ráðherra sakar starfsmenn Hvals um fíflaskap Lokaeinkunnirnar vísbending um ósamræmda einkunnagjöf Komu slösuðum til bjargar í Drangey Hátt í þriggja milljarða króna virði af kókaíni Tímamót hjá Klettaskóla: „Allir mjög peppaðir“ Spiluðu þjóðsönginn á meðan hvalurinn var dreginn á land Gómaður með tæp sextíu kíló af amfetamíni og „bleikt kókaín“ Níu í haldi fyrir að smygla yfir hundrað kílóum af kókaíni í sjókistu Stefnt á kappræður milli utanríkisráðherra Traust til íslenskra yfirvalda sagt fara vaxandi Synjun Suðurlandsbrautar gæti tafið fyrstu lotu Borgarlínu „Þú verður að hafa stjórn á tækninni sem þú nýtir“ Krefst sýknu í öllum ákæruliðum: „Hún ætlaði aldrei að snúa aftur“ Aðalmeðferð að ljúka í Edition málinu og sextán ára fangelsis krafist Hótanir nægi ekki til að bregðast við utan landhelgi Fara fram á sextán ár yfir Ming: „Ásetningur hennar var kaldur og grimmur“ Dræm laxveiði: „Menn spá ekki nema spáin sé góð“ Tvö hundruð prósent fleiri tilkynningar um vændi „Ætlum að sækja að olíufélaginu sem heldur þessari slátrun gangandi“ Öryggisbrestur hjá héraðssaksóknara til Persónuverndar Sjá meira