Fyrirtæki sýna því áhuga að starfa á Flateyri og Þingeyri Svavra Hávarðsson skrifar 13. janúar 2015 09:30 Frá Þingeyri. Mjög hefur verið rætt um stöðu sjávarbyggða eftir að Vísir í Grindavík ákvað að hætta vinnslu á þremur stöðum á landsbyggðinni. vísir/gva
Sú lausn að binda aflaheimildir við einstakar sjávarbyggðir er líklegri til að leysa vanda þeirra til lengri tíma en byggðakvóti. Vandi Vestfjarða við að styrkja sjávarútvegsfyrirtæki í fjórðungnum felst m.a. í skorti á flugvelli sem gæti annast fraktflutninga. Á þetta tvennt, ásamt fleiru, minnist Gísli Halldór Halldórsson, bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar, spurður um þá hugmynd Lilju Rafneyjar Magnúsdóttur, þingmanns Vinstri grænna, að vandi sjávarbyggða kalli á að það verði skoðað í fullri alvöru að binda þar aflaheimildir í því skyni að tryggja atvinnuöryggi íbúa. Lilja Rafney viðraði þessa hugmynd í viðtali við ruv.is en hún hefur skrifað þingmönnum kjördæmisins bréf og vill funda með þeim vegna stöðu atvinnumála á Þingeyri og Flateyri ásamt öðrum sem málið snýr að. Eins og kunnugt er verður starfsemi Vísis á Þingeyri úr sögunni um mánaðamótin. Þá úthlutaði Byggðastofnun ekki kvóta til fyrirtækja sem gerðu með sér samkomulag um áframhaldandi fiskvinnslu í bæjarfélögunum. „Sú hugmynd hefur líka verið rædd að binda aflaheimildir við einstakar vinnslur. Já, það má vel skoða þennan möguleika að binda kvóta við byggðir en það þarf þá að greina hvað hefur tapast síðan 1991 þegar lögin voru endanlega fest í sessi,“ segir Gísli Halldór og nefnir að bæjaryfirvöld hafi gert eitt og annað við að styrkja innviðina í sveitarfélaginu – en til þess að sú vinna nýtist þurfi eitthvað til að standa á. Á Vestfjörðum sé það sjávarútvegur og það breytist ekki á næstu árum. Hann nefnir jafnframt inniviði greinarinnar til að vekja frekari áhuga fyrirtækja á að byggja upp til framtíðar. Flugvöllur til að annast vöruflutninga, eins og síkvikt umhverfi greinarinnar kallar á, sé þar ofarlega á blaði.Þóroddur BjarnasonÁhugi á uppbyggingu á báðum stöðum Þóroddur Bjarnason, stjórnarformaður Byggðastofnunar, segir að stofnunin vinni samkvæmt lögum um stjórn fiskveiða. Stefnt sé að því að fá útgerðarmenn í samstarf um byggðaeflingu. Fyrirtækin sem fái byggðakvótann sem Byggðastofnun hefur til umráða frá ríkinu taki ákveðin skref til að efla byggðina. Þessi samvinna hefur tekist giftusamlega á ýmsum stöðum; Tálknafirði, Suðureyri og Raufarhöfn. Þvert á umræðuna minnir Þóroddur á að Byggðastofnun úthlutar ekki byggðakvóta, heldur auglýsir í opnu og gegnsæju ferli eftir samstarfsaðilum. Þau fyrirtæki sem hafi sýnt áhuga á því að hefja samstarf á Flateyri og Þingeyri hafi annaðhvort ekki staðist kröfur stofnunarinnar eða dregið umsóknir sínar til baka. „Nú hafa hins vegar nokkrir aðilar sótt um aflaheimildirnar, og það eru meiri líkur en minni að við náum viðlíka árangri og þar sem þetta hefur gefist best. Þessi spurning um að binda aflaheimildirnar hefur komið upp áður; að taka t.d. fimm prósent af kvótanum í félagslegar aðgerðir. Taka upp strandveiðikerfi sem bundið er við ákveðna staði. Þetta væri djarft, og væri hægt. Um meiri handstýringu er að ræða í dag – efla byggð með því að einkaaðilar leggi fjármagn í það,“ segir Þóroddur og bætir við að aðgerðir Byggðastofnunar hafi gefist best þar sem menn hafa komið að vandanum áður en allt var farið á versta veg.
Mest lesið Segjast komnir með nóg og ætla að gæta að framtíð Íslands Innlent Sérsveitin mætti í útilegu MRinga Innlent Aðstæður þær bestu síðan 2021: Bílastæði við eldgosið að fyllast Innlent Óhollt magn brennisteinsdíoxíðs á höfuðborgarsvæðinu og Akranesi Innlent Einfaldlega nýnastistar sem þýði meira ofbeldi og átök Innlent Lögreglan lýsir eftir Sindra Péturssyni Innlent Salibuna á sirkustjaldinu og lélegir listamenn Innlent Hæsta gildi brennisteinsdíoxíðs frá upphafi eldsumbrota Innlent Stal bíl og keyrði um flugbrautirnar Innlent „Þetta eru markvissar aðgerðir til að brjóta niður menntastofnanir“ Innlent Fleiri fréttir Fundurinn vonbrigði: „Þetta leikrit er hafið“ Búin að vera lokuð inni í þrjá daga vegna gosmóðunnar Vopnað rán og skartgripaþjófnaður í Reykjavík Einfaldlega nýnastistar sem þýði meira ofbeldi og átök Lögreglan lýsir eftir Sindra Péturssyni Fordæma Hamas og segja áform um „mannúðarborg“ óviðunandi Stofna grunnskóla fyrir einhverf börn í Garðabæ Loftgæði versnandi á gosstöðvunum Segjast komnir með nóg og ætla að gæta að framtíð Íslands Sex spænskar orrustuþotur á leið til landsins Hafa tapað tvö hundruð milljónum króna vegna fjársvika Hafa sótt um bráðabirgðaleyfi Vill vita hvaða samningar eru í undirbúningi gagnvart ESB Verði fram á nótt að slökkva eld í trjákurlinu Geta greint frá svörum Þorgerðar ef hún gefur leyfi Stal bíl og keyrði um flugbrautirnar „Það þarf ekki alveg að halda sig innandyra“ „Þetta eru markvissar aðgerðir til að brjóta niður menntastofnanir“ Aðstæður þær bestu síðan 2021: Bílastæði við eldgosið að fyllast Mesta mengun frá upphafi eldsumbrota og deilt um utanríkismálin Tveggja katta enn saknað eftir eldsvoða á Tryggvagötu Hæsta gildi brennisteinsdíoxíðs frá upphafi eldsumbrota Enn unnið í því að slökkva í trjákurlinu Enginn Vinnuskóli í Reykjavík í dag vegna gosmengunar Haldlagning á ketamíni hundraðfaldast á fjórum árum Salibuna á sirkustjaldinu og lélegir listamenn Óhollt magn brennisteinsdíoxíðs á höfuðborgarsvæðinu og Akranesi Þjóðarhreinsun eigi sér stað í heimalandinu Einn fundinn en þriggja enn saknað eftir eldsvoðann Sérsveitin mætti í útilegu MRinga Sjá meira