Borgin fylgdi ekki ábendingum innri endurskoðunar um innkaup Garðar Örn Úlfarsson skrifar 20. janúar 2015 07:00 Má fallast á að það sé of mikið að eitt þúsund aðilar hafi heimild til innkaupa hjá borginni, segir S. Björn Blöndal, formaður borgarráðs. Fréttablaðið/Pjetur „
Skemmst er frá því að segja að engar ábendingar í skýrslu Innri endurskoðunar frá árinu 2010 hafa fengið fullnægjandi úrbætur og umbótaverkefni hafa einungis að litlu leyti verið unnin,“ segir í úttekt Halls Símonarsonar, innri endurskoðanda Reykjavíkurborgar. Innri endurskoðun gerði vorið 2010 úttekt á innra eftirliti hjá innkaupaskrifstofu borgarinnar. Meðal 12 meginatriða sem sagt var að þyrfti að bæta var gegnsæi í innkaupastefnu, mæling á árangri, fagleg vinna, skráning upplýsinga og skilgreining ábyrgðar þeirra sem koma að innkaupum. Fulltrúar Sjálfstæðisflokks segja úttekt innri endurskoðanda nú um það hvernig ábendingunum frá 2010 hafi verið fylgt eftir vera mikinn áfellisdóm yfir því hvernig staðið sé að innkaupum á vegum borgarinnar. Þrátt fyrir fjölmörg varnaðarorð og ábendingar frá innri endurskoðanda um það hvernig bæta megi innkaupaferlið sé nú „ljóst að ekkert hefur verið gert með þessa mikilvægu vinnu“, eins og segir í bókun þeirra. S. Björn Blöndal, formaður borgarráðs úr Bjartri framtíð, segir að eftir að nýr meirihluti tók við í borgarstjórn 2010 hafi innkaupareglur verið endurskoðaðar. „Gagnrýnin beinist fyrst og fremst að því að of lítill hluti af almennum vörukaupum fari í útboðsferli eða í gegnum rammasamninga. Það hefur hins vegar verið að aukast, var sagt 14 prósent í skýrslunni en er komið í 25 prósent núna,“ segir Björn. Þá segir Björn innri endurskoðun telja heppilegra að auka miðstýringu í innkaupum. Starfsstöðvar borgarinnar séu um 500 og aðilar sem hafi heimild til innkaupa séu um eitt þúsund. „Það má alveg fallast á að það sé of mikið,“ segir Björn sem kveður sjálfstæðismenn hins vegar oftúlka úttektina. „Þetta er ekki áfellisdómur yfir innkaupum borgarinnar en það er hins vegar ekki nægilega gott að það sé ekki brugðist með nægilega ákveðnum hætti við ábendingum sem koma fram í skýrslunni 2010.“ Borgarráð beindi því til fjármálaskrifstofu að fara ítarlega yfir ábendingar innri endurskoðunar. „Við reynum að bæta úr því sem bæta þarf,“ segir S. Björn Blöndal.
Mest lesið Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Innlent Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Innlent Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Kristrún tilbúin í aðgerðir Innlent Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Innlent Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Innlent Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Innlent „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Erlent „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Innlent Fleiri fréttir Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Ekki búið að finna nýjan lögreglustjóra hátt í hálfu ári síðar Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Árekstur við Hamraborg Engin aðstoð við próftöku og litaðar númeraplötur Uppsagnir hjá Klettabæ Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Kristrún tilbúin í aðgerðir Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Ákærður fyrir að nauðga sofandi og ölvaðri dóttur sinni Væntingar um útspil tengt gjaldahækkunum Neituðu sök við þingfestingu Straumsvíkurmálsins Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Sniðganga geti verið túlkuð sem yfirlýsing ríkisstjórnarinnar Fjórir í gæsluvarðhald eftir hraðsendingu frá Þýskalandi Ekkert svigrúm í tengslum við kjarasamninga og tvísýnt með framhaldið Lét ákærða vita af andlátinu: „Hann var í miklu uppnámi“ „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Flutningabíll valt á Þverárfjallsvegi sem er lokaður Lægðin grynnist í dag en von á annarri Bíl ekið á ljósastaur Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði Sjá meira