Skoða mögulegan samruna þriggja háskóla Bjarki Ármannsson skrifar 20. janúar 2015 19:11 "Það eru auðvitað allir mjög tilbúnir til að skoða allar mögulegar leiðir sem menn hafa til að efla skólana,“ segir Illugi Gunnarsson. Vísir/Pjetur/Ernir
Menntamálaráðuneytið skoðar um þessar mundir möguleika á auknu samstarfi og jafnvel samruna Landbúnaðarháskólans, Háskólans á Hólum og Háskólans á Bifröst. „Þetta mál er alveg á byrjunarstigi og fellur undir þá vinnu sem við erum að vinna í ráðuneytinu um stöðu háskólastigsins almennt,“ segir Illugi Gunnarsson menntamálaráðherra. „Það er verið að skoða háskólana á Íslandi í alþjóðlegu samhengi, fjármögnun þeirra og hvaða sóknarfæri skólarnir eiga. Hluti af þeirri vinnu er auðvitað að skoða minni skólana og hvaða möguleika við höfum á að efla þá.“RÚV greindi fyrst frá. Illugi segir gagnaöflun farna af stað til að skoða hvaða tækifæri myndu felast í þessu samstarfi, með það fyrir augum að bæta akademískt starf og ráða úr talsverðum fjárhagsvanda þeirra. Illugi er meðal þeirra sem hafa viðrað þá skoðun sína að íslenskir háskólar séu of margir og lagði hann í fyrra til sameiningu Landbúnaðarháskólans og Háskóla Íslands. „Því miður, vil ég segja, mætti sú hugmynd töluvert mikilli andstöðu,“ segir Illugi. „Það náði þá ekkert lengra. En þessi vinna er alveg ótengd því.“Vilja styrkja byggð um leið Ráðherra hefur verið í sambandi við rektora skólanna þriggja og segist vonast eftir samstarfi frá þeim við að skoða möguleikann á aukinni samvinnu. „Það eru auðvitað allir mjög tilbúnir til að skoða allar mögulegar leiðir sem menn hafa til að efla skólana,“ segir Illugi. „Bæði starf þeirra og um leið að skjóta styrktarstoðum undir byggðirnar þar sem þeir eru staddir.“ Illugi segist vonast til að greiningarvinnu ráðuneytisins ljúki í næsta mánuði og að þá verði jafnframt komin einhver mynd á möguleika á samruna skólanna þriggja. „Ef einhverjir eru,“ segir hann. „Kannski leiðir þessi vinna í ljós að svo sé ekki og þá er það ákveðin niðurstaða.“
Mest lesið Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Erlent Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Innlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Innlent Lögmenn fagna niðurstöðu EFTA-dómstólsins Innlent „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Innlent Úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald Innlent Fleiri fréttir Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald Lögmenn fagna niðurstöðu EFTA-dómstólsins Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Umferðarslys við Nýbýlaveg í Kópavogi Gæsluvarðhald sonar þingmannsins aftur framlengt Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Hló að svari sambýliskonunnar Tilboð hrikalega hátt yfir kostnaðaráætlun Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Möguleg tengsl við heilabilun Skora á borgina að afturkalla uppsagnir á samningum við listamenn Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn „Enn ein vondu tíðindin af þessu máli“ Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Verðbólga, uppsagnir og mikil notkun svefnlyfja Forstjórar leita lausna Fulltrúi prentara vill verða forseti ASÍ Sýklalyfjanotkun í dýrum jókst um rúm tuttugu prósent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ „Dýr geta augljóslega ekki sjálf leitað réttar síns“ Segir upp eftir tvær vikur í starfi Lægð upp að landinu og önnur dýpri á morgun Tólf með réttarstöðu sakbornings vegna andláts á Stuðlum Einn stöðvaður sem var að „drifta“ á hringtorgi Sjá meira