Aukinn áhugi fyrir lífsskoðunarfélögum 22. janúar 2015 07:00 Halldór Þ. Halldórsson
Áhugi á því að stofna lífsskoðunarfélög hefur aukist, þó einungis eitt félag, Siðmennt, sé skráð sem slíkt hjá Hagstofunni. Halldór Þormar Halldórsson, sem annast skráningu þessara félaga á starfsstöð sýslumanns Norðurlands eystra á Siglufirði, segir að tvö formleg erindi séu í vinnslu hjá embættinu. Áhugi almennings á stofnun slíkra félaga er þó mikill og fyrirspurnum um umsóknarferli og viðmið hafi fjölgað mjög hjá embættinu. Lögum um trúar- og lífsskoðunarfélög var breytt árið 2013 og ákvæðum um viðurkenningu á lífsskoðunarfélögum bætt við. Til þess að verða skráð lífsskoðunarfélag þarf félagið að byggja á veraldlegum lífsskoðunum, miða starfsemi sína við ákveðin siðferðisgildi og mannrækt auk þess sem félagið þarf að hafa náð fótfestu og meðlimir þess að vera fleiri en 25 lögráða einstaklingar. Erindi væntanlegra lífsskoðunarfélaga fara fyrir sérstaka nefnd sem innanríkisráðherra skipar úr nokkrum deildum Háskóla Íslands. Hljóti félag skráningu er því skylt að sjá um tilteknar athafnir eins og útfarir, giftingar, skírnir og fermingar. Samfara þessari þróun hefur þeim sem skrá sig utan trúfélaga fjölgað mikið milli ára, voru 10.336 árið 2010 en 17.218 árið 2014. Hópurinn sem gefur sig upp sem ótilgreindan eða í öðru trúfélagi en þeim sem eru á skrá Hagstofunnar hefur hins vegar verið nokkuð stór lengi, í honum voru 19.647 árið 2010 en 20.959 árið 2014. Þannig standa í dag um 40 þúsund Íslendingar utan trú- eða lífsskoðunarfélaga eða þá að það sem þeir aðhyllast hefur ekki hlotið skráningu. Þá hefur trúfélögum fjölgað mikið frá árinu 2010 þegar 27 slík félög voru á skrá en í dag eru þau 45.
Mest lesið Stígur fram sem „alræmdur faðir“ í Vesturbænum Innlent Mikill munur á fjölda útskrifaðra úr framhaldsskóla eftir grunnskólum Innlent Þrjú hundruð sagt upp hjá Berjaya Innlent Veit ekki hvort hann hafi misst tökin á öldungadeildinni Erlent Þarf að greiða hálfa milljón úr eigin vasa vegna B5 Innlent Trump sendir 5.000 hermenn til Póllands Erlent Lokanir í Hvalfjarðargöngum um hvítasunnu Innlent Nýtti sér dauðvona mann i auglýsingaskyni Innlent Björguðu húsi frá því að verða eldi að bráð Innlent Flugmenn gleyma því að þeir séu í flughermi Innlent Fleiri fréttir Áratuga fjársvelti námsgagna bitni á skólastarfi á öllum stigum Lokanir í Hvalfjarðargöngum um hvítasunnu „Það sem við hófum árið 1986 ætlum við að klára árið 2026“ Stígur fram sem „alræmdur faðir“ í Vesturbænum Vætusamt veður fram á mánudag Mikill munur á fjölda útskrifaðra úr framhaldsskóla eftir grunnskólum Björguðu húsi frá því að verða eldi að bráð Flugmenn gleyma því að þeir séu í flughermi Einn fluttur á slysadeild eftir mótorhjólaslys Þarf að greiða hálfa milljón úr eigin vasa vegna B5 Fær 5,7 milljónir af því að kona var ráðin en ekki hann Þrjú hundruð sagt upp hjá Berjaya Prince setti svip sinn á tveggja milljóna verk Nýtti sér dauðvona mann i auglýsingaskyni Dramatík í Hafnarfirði Mikil leynd ríkir yfir smáatriðunum Vilhjálmur verður bæjarstjóri „Ég er ekki nógu góður í slíkri skák“ Skraf Sjálfstæðismanna í húsi Snarfara Gabríel Douane fær tólf mánuði til: „Fjarstæðukennt“ að hann hafi óvart tekið símann Ráða verkefnisstjóra í málum Grindavíkur Hyggjast halda samstarfinu áfram Viðreisn líst hvorki á Framsókn né Miðflokk Kristinn verður áfram bæjarstjóri Valdimar hafnar alfarið fullyrðingum um trúnaðarbrest Ekkjan fór með fullnaðarsigur af hólmi í héraði Icelandair og flugmenn funda aftur í fyrramálið Berglind verður bæjarstjóri og Óðinn formaður bæjarráðs Inga skipar nýjan skólameistara Borgarholtsskóla Hræðileg umgengni á golfvellinum í Hveragerði Sjá meira