Nafn mannsins sem lést í umferðarslysi á Biskupstungnabraut Birgir Olgeirsson skrifar 22. apríl 2015 13:29 Hallgrímur Þ. Magnússon. Hann var fæddur 29. september 1949 búsettur að Bjarkarbraut 18 í Reykholti í Biskupstungum. Vísir
Maðurinn sem lést í umferðarslysi á Biskupstungnabraut í gær hét Hallgrímur Þ. Magnússon. Hann var fæddur 29. september 1949 búsettur að Bjarkarbraut 18 í Reykholti í Biskupstungum. Hallgrímur lætur eftir sig eiginkonu, fjórar uppkomnar dætur og níu barnabörn. Hann var læknir og sinnti störfum sínum hjá Heilbrigðisstofnun Suðurlands, bæði í Hveragerði og á Selfossi Í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurlandi kemur fram að slysið átti sér stað á Biskupstungnabraut, nokkuð ofan við Borg í Grímsnesi. Tilkynning barst til lögreglu klukkan 13:57 og fóru lögreglu, sjúkralið og slökkvilið á vettvang. Árekstur varð með tveimur bifreiðum sem ekið var í gagnstæðar áttir. Erlend hjón á ferðalagi voru í öðrum bílnum og sluppu þau lítið meidd en eru þó enn til eftirlits á sjúkrahúsi í Reykjavík. Bifreið þeirra kastaðist út fyrir veginn og valt við áreksturinn. Hallgrímur var einn í hinni bifreiðinni og slasaðist alvarlega. Hann var fluttur af vettvangi með sjúkrabifreið til móts við þyrlu Landhelgisgæslunnar sem flutti hann á sjúkrahús í Reykjavík. Endurlífgunartilraunir sem vegfarendur, þ.m.t. ökumaður og farþegi hinnar bifreiðarinnar, hófu á vettvangi og var fram haldið á leið á sjúkrahús af sjúkraliði báru ekki árangur og var hann úrskurðaður látinn fljótlega eftir komu þangað.
Mest lesið Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Innlent Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Innlent Stutt geti verið í kosningar Innlent „Sorglegt að þetta sé staðan“ Innlent Fleiri fréttir Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Talsvert fleiri karlar en konur teknir fyrir akstur undir áhrifum „Sorglegt að þetta sé staðan“ Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Einum sleppt úr gæsluvarðhaldi og tveir eftir Gagnrýna harðlega fyrirhugaðar skatta- og gjaldahækkanir Ekið á hjólreiðamann í Kópavogi Reykjanesbraut verður lokað vegna framkvæmda Fella niður rannsókn vegna E. coli-sýkingar á Mánagarði Ný göngubrú vígð Íslenskar jökulár úr geimnum Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Fluttur með þyrlu á slysadeild eftir slys í tengivirki Ekki ákveðið hvort lagareldisfrumvarpið verði endurflutt Símafrí sett en PISA sýnir engin skýr tengsl við betri námsárangur Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir „Við erum ekki að mismuna eftir þjóðerni með þessum hætti“ Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Harðari tónn en áður hafi verið sleginn Uppsagnir, undarleg taktík og umtöluð ræða Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Sjá meira