Skammaði konur sem lögðu í stæði fatlaðra og tók upp á myndband Stefán Árni Pálsson skrifar 6. maí 2015 15:44 Jón Gunnar hefur verið í hjólastól síðan árið 2007. vísir
Jón Gunnar Benjamínsson, eigandi fyrirtækisins Iceland Unlimited, birtir í dag myndband á Facebook þar sem hann gómar bílstjóra við að leggja ólöglega í stæði sem ætlað er fötluðum. Jón Gunnar lenti í bílslysi árið 2007 og hefur hann verið bundinn hjólastól síðan. Bifreiðin sem um ræðir var lögð fyrir utan Rekstrarvörur á Réttarhálsi í Reykjavík.P-Stæða þjófur dagsins II - The aftermath.Posted by Jón Gunnar Benjamínsson on 6. maí 2015Hann varð vitni að því þegar bílstjórinn lagði í stæðið og tók upp á því að leggja Porsche Cayenne bifreið sinni beint fyrir aftan ökutækið sem var lagt ólöglega. Inni í þeirri bifreið voru tvær konur en bílstjórinn sagðist hafa ætlað sér að skjótast inn í verslunina. „Hún átti að færa bílinn ef einhver kæmi,“ sagði bílstjórinn við Jón Gunnar þegar hann ræddi við hana. Þar átti konan við að farþegi bílsins sem sat eftir inni í honum hefði haft það hlutverk að vera á varðbergi og færa bílinn ef einhver kæmi. „Hún sagðist ætla fylgjast með,“ sagði konan. Jón Gunnar svaraði þá konunni: „Hvernig átti ég að vita það? Þess vegna lagði ég bílnum mínum beint fyrir aftan þig. Þessi stæði eru merkt fólki sem þarf að nota hjólastól, af hverju leggur þú þá hérna?“P-stæða þjófur dagsins.Posted by Jón Gunnar Benjamínsson on 6. maí 2015Sjá einnig: Með einkanúmerið IM CEO: „Það er auðvitað dass af hroka í þessu“ Þá svaraði bílstjórinn: „Einfaldlega vegna þess að hún getur ekki labbað,“ sagði hún og benti á konuna sem var farþegi í bílnum. „Ég skaust fyrir hana inn í búðina.“ Jón benti á að hann og annað fólk í hjólastólum þyrftu á þessum bílastæðum að halda. „Ég veit það, ég biðst bara innilegrar afsökunar á þessu.“
Mest lesið Þjóðvarðlið virkjað eftir að ICE skaut mann til bana Erlent Munaði litlu að nýliði skákaði borgarstjóra Innlent Gríðarleg vonbrigði að reyndri konu sé ekki treyst Innlent „Eftir þetta getur enginn treyst honum“ Erlent Stóra verkefnið að vinna aftur traust borgarbúa Innlent Tvöfalt fleiri aldraðir leituðu hjálpar vegna ofbeldis Innlent Annar maður skotinn til bana af ICE Erlent Samfylkingin valdi sér borgarstjóraefni Innlent Stigmögnun í nágrannaerjum: „Hann vildi keyra á mig“ Innlent Valið á milli gömlu og nýju Samfylkingarinnar Innlent Fleiri fréttir Munaði litlu að nýliði skákaði borgarstjóra Stóra verkefnið að vinna aftur traust borgarbúa Gríðarleg vonbrigði að reyndri konu sé ekki treyst Pétur Marteinsson kjörinn oddviti Samfylkingarinnar í Reykjavík Samfylkingin valdi sér borgarstjóraefni Valið á milli gömlu og nýju Samfylkingarinnar Gullhúðað afnám jafnlaunavottunar Tvöfalt fleiri aldraðir leituðu hjálpar vegna ofbeldis Vandræðagangur með skilaboð á versta tíma fyrir Heiðu Leita að öðrum til að taka við Ísafjarðarfluginu Allir hafi áhuga á Íslandi Biður Dóru Björt afsökunar eftir deilur um vetrarþjónustu Þrjátíu prósent Samfylkingarfélaga greitt atkvæði það sem af er Algengast að börn beiti foreldra sína ofbeldi og prófkjör Samfylkingarinnar „Enda ekki í nokkru einasta ástandi til að vera meðal fólks“ Árásarmaðurinn svartklæddi reyndist vera ættingi Stigmögnun í nágrannaerjum: „Hann vildi keyra á mig“ Gengst nú við skilaboðunum umdeildu Hægt að nálgast vottorð um að makinn hafi rangt fyrir sér Um 900 manns nú með lögheimili í Grindavík „Það átti að taka mig í karphúsið“ Selenskí undir miklum þrýstingi Tímamótaviðræður hafnar og ögurstund hjá Samfylkingunni Eldur í sendibíl á Miklubraut Arnar Grétarsson í stjórnmálin Gjörbreytt Langahlíð fyrir milljarð Segist ekki muna eftir að hafa sent skilaboðin „Einhver SA prins mættur til að láta sem allt sé bara kózý“ Endurtekin og alvarleg mál valda áhyggjum Hiti færist í leikinn: „Frægur karl með enga reynslu“ Sjá meira