Legurýmin ekki nýtt og íbúarnir örvænta 2. febrúar 2015 07:00 Peninga vantar til að reka legurými sem því standa tóm á Hvammstanga.
Ekki er til fjármagn til að fullnýta legurými á heilbrigðisstofnuninni á Hvammstanga. Þess í stað hafa íbúar í Húnaþingi vestra þurft að nota legurými á Akranesi, í Reykjavík eða á Akureyri, sem er töluvert dýrara rými. „Íbúarnir eru orðnir þreyttir á ástandinu og hálfgerð örvænting er komin upp hjá sumum íbúum sveitarfélagsins,“ segir Guðný Hrund Karlsdóttir, sveitarstjóri Húnaþings vestra. Heilbrigðisstofnunin á Hvammstanga hefur á að skipa legurýmum fyrir um 20 einstaklinga. Sautján af þeim eru hins vegar aðeins nýtt því ekki fæst fjármagn frá hinu opinbera til að bæta við starfsfólki. Að mati Guðnýjar er samt sem áður undirmannað á heilbrigðisstofnuninni þrátt fyrir að aðeins 17 rými séu nýtt. „Við höfum séð dæmi þess að einstaklingar hafi þurft að liggja annars staðar á landinu. Það er auðvitað mjög erfitt fyrir bæði einstaklinginn sem og alla aðstandendur. Þú skreppur ekki á Akranes eða til Reykjavíkur eftir vinnu til að hitta þann sem þér er nákominn,“ segir Guðný Hrund.Guðný Hrund Karlsdóttir.Eðvald Daníelsson, íbúi á Hvammstanga, segir þetta ástand ólíðandi. Það hafi til dæmis haft mikil áhrif á hans fjölskyldu. „Móðir mín, sem verður 85 ára á þessu ári, þarf aðstoð við allar daglegar þarfir og það leggst á okkur fjölskyldumeðlimi að aðstoða hana allan tíma sólarhringsins. Þetta álag á okkur er mjög mikið. Faðir minn fór að finna fyrir hjartveilu fyrir skömmu og rek ég það til álags sem á hann er lagt. Á meðan er ekki allt rými fullnýtt á heilbrigðisstofnuninni í bænum. Fyrir mína parta þá gengur þetta ekki upp til lengdar,“ segir Eðvald. Guðný Hrund telur að það þurfi ekki að ráða nema tvo starfsmenn í umönnun á stofnunina til að hægt sé að fullnýta þau rými sem þegar eru til. „Það þarf ekki að byggja rými, þau standa þarna auð og ónotuð. Einnig þurfum við ekki á að halda sérhæfðu starfsfólki,“ segir sveitarstjórinn. Íbúar bæjarins hafa mótmælt þessari skertu þjónustu og ályktuðu á íbúafundi í janúar að skora á þingmenn kjördæmisins að berjast fyrir því að tryggja fjármagn til reksturs heilbrigðisstofnunarinnar.
Mest lesið Lúsmýið yrði alltaf verra en moskítóflugan Innlent Hætta sölu til Japan: Hvalkjötið nýtt í framleiðslu fæðubótarefnis Innlent Lögreglumál: Sátu fastir eftir að slökkt var á parísarhjólinu Innlent Aðalmeðferð hefst í Reykholtsmálinu Innlent Viðreisn fjarlægir bænina af Facebook: „Við viljum ekki særa fólk“ Innlent Brotist inn í garnverslun í Árbæ Innlent Senda hermenn gegn glæpasamtökum í „bakgarðinum“ Erlent Úkraína gæti átt heimasmíðaðar skotflaugar innan nokkurra mánaða Erlent Bogi Ísak Nilsson er látinn Innlent „Þá er verið að hugsa um mögulegt viðbragð í neyðarástandi“ Innlent Fleiri fréttir Evrópuvaktin 2026: Þjóðin gengur að kjörborðinu Handtekinn vegna kannabisræktunar í Króksfjarðarnesi Bogi Ísak Nilsson er látinn Fyrsta skrefið í að kenna Íslendingum að nota fánann við fleiri tilefni Brotist inn í garnverslun í Árbæ Aðalmeðferð hefst í Reykholtsmálinu Hætta sölu til Japan: Hvalkjötið nýtt í framleiðslu fæðubótarefnis Lögreglumál: Sátu fastir eftir að slökkt var á parísarhjólinu Lúsmýið yrði alltaf verra en moskítóflugan Viðreisn fjarlægir bænina af Facebook: „Við viljum ekki særa fólk“ Gerir upp hús hannað af Guðjóni Samúelssyni Á sjötta tug björgunarsveitarfólks kom að björguninni Ekki fleiri tilkynnt innbrot síðan 2022 „Þá er verið að hugsa um mögulegt viðbragð í neyðarástandi“ Þyrla Landhelgisgæslunnar kölluð út vegna veikinda Forystumenn láti stór orð falla sér og sínum málstað til framdráttar Þyrlan sótti slasaðan göngumann við Glym Spánverjum fjölgar þvert á þróunina Sigurgeir þurfti að hætta og var fluttur á sjúkrahús Það er jóker í spilinu Skoða hvort gerviaðgangar og grunsamlegar síður séu erlend öfl í dulbúningi Páll Magnússon tekur við af Kristjáni Nágranninn bjargaði Sævari sem missti næstum af almyrkvanum Brotist inn í Barnaloppuna Kristján Kristjánsson kveður Sprengisand Íbúi í Kænugarði um stríðið og áhyggjur lögreglu af erlendum áhrifum á ESB-kosningu Fortíð og framtíð Íslands í Evrópu á Sprengisandi Mundaði stólinn og lamdi gesti „Bara, hvað dettur gömlu fólki í hug að gera?“ Þrengja Reykjaveg og loka tveimur götum við Laugarnesskóla Sjá meira