Deiliskipulag fyrir Ásvallabraut samþykkt Stefán Árni Pálsson skrifar 21. janúar 2015 14:36 Mynd/hafnafjarðarbær
Á fundi Bæjarstjórnar Hafnarfjarðar var deiliskipulag fyrir Ásvallabraut, vegur sem tengir saman Ásland og Velli, samþykkt. „Ásvallabrautin er mikil samgöngubót, ekki bara fyrir akandi heldur líka fyrir göngu- og hjólreiðafólk en samhliða brautinni verða lagðir hjólastígar. Nú standa yfir viðræður við Landsnet um færslur á rafmagnslínum sem liggja í jaðri Vallahverfisins, tilfærslan á línunum og Ásvallabrautin opnar nýja möguleika fyrir hverfið og gerir okkur kleift að hefja uppbyggingu á ný í Skarðshlíðinni “ segir Ólafur Ingi Tómasson formaður skipulags- og byggingaráðs. Þrettán ár eru liðin síðan fyrsti íbúinn flutti inn í Vallahverfið. Hverfið hefur byggst hratt upp og nú búa þar um 4900 manns. Vellirnir eru hverfi sem hefur upp á allt að bjóða, á svæðinu er þjónusta, sundlaug, íþróttamiðstöð og öflugt skólasamfélag. Með tilkomu Ásvallabrautar tengjast Vellirnir við Áslandið. Brautin mun liggja frá Lindartorgi sem er síðasta hringtorg á Ásvallabraut á Ásvöllum yfir hrygg milli Ásfjalls og Vatnshlíðar sem eru þekkt kennileiti á svæðinu og tengist Kaldárselsvegi um gatnamót Brekkuáss. „Með þessu tengjum við saman tvö nýjustu hverfi bæjarins og erum komin með braut sem mun þjóna byggingarsvæðum sem fyrirhuguð eru í framtíðinni „ segir Ólafur Ingi. Ásvallabrautin verður boðin út á vormánuðum og er áætlað að verkinu ljúki árið 2017.
Mest lesið Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Innlent Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Innlent Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Kristrún tilbúin í aðgerðir Innlent Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Innlent Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Innlent „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Erlent Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Erlent Fleiri fréttir Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Ekki búið að finna nýjan lögreglustjóra hátt í hálfu ári síðar Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Árekstur við Hamraborg Engin aðstoð við próftöku og litaðar númeraplötur Uppsagnir hjá Klettabæ Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Kristrún tilbúin í aðgerðir Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Ákærður fyrir að nauðga sofandi og ölvaðri dóttur sinni Væntingar um útspil tengt gjaldahækkunum Neituðu sök við þingfestingu Straumsvíkurmálsins Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Sniðganga geti verið túlkuð sem yfirlýsing ríkisstjórnarinnar Fjórir í gæsluvarðhald eftir hraðsendingu frá Þýskalandi Ekkert svigrúm í tengslum við kjarasamninga og tvísýnt með framhaldið Lét ákærða vita af andlátinu: „Hann var í miklu uppnámi“ „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Flutningabíll valt á Þverárfjallsvegi sem er lokaður Lægðin grynnist í dag en von á annarri Bíl ekið á ljósastaur Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði Sjá meira