Sjö bílstjórar hafa látið af störfum vegna ástandsins Viktoría Hermannsdóttir skrifar 16. janúar 2015 07:00 Sjö bílstjórar hjá Hópbílum, sem annast akstur fyrir Ferðaþjónustu fatlaðra, hafa sagt upp störfum frá áramótum. Fréttablaðið/Pjetur
Bílstjórar sem aka fyrir Ferðaþjónustu fatlaðra hafa sagt upp störfum vegna álags eftir að breytt akstursfyrirkomulag var tekið í notkun. Mikið hefur verið fjallað um óánægju með nýtt akstursfyrirkomulag hjá Ferðaþjónustu fatlaðra eftir að Strætó tók við rekstrinum um áramótin. Bæði fatlaðir og eldri borgarar sem nýta sér þjónustuna hafa lent í vandræðum með að ná sambandi til þess að panta bíl, bílar hafa verið seinir auk þess sem óhöpp hafa orðið við aksturinn. Sjö bílstjórar hafa sagt upp störfum hjá Hópbílum sem sjá um þriðjung akstursins fyrir Strætó. Pálmar Sigurðsson, starfsmannastjóri Hópbíla, staðfestir þetta og segir umræðuna hafa tekið mjög á bílstjórana. Alls sjá 27 bílstjórar hjá fyrirtækinu um þennan tiltekna akstur. Hann segir að af þeim hópi hafi 22 mikla reynslu, meðal annars af akstri fatlaðra, en Hópbílar sinntu Ferðaþjónustu fatlaðra í Hafnarfirði.@kvót fréttasíður nafnogtitill:Bryndís Haraldsdóttir„Þessi umræða sem hefur verið í gangi hefur ekki verið mikil hvatning fyrir bílstjóra til þess að vera að sinna þessari þjónustu. Umræðan er þess eðlis að mönnum hefur bara ekkert liðið vel. Menn eru að sinna starfi sínu af heilum hug. Það eru yfir 2.000 skjólstæðingar á ferðinni og stór hluti af þeim er að fara örugglega sínar ferðir á réttum tímum. Svo gleymist það að færðin hefur heldur ekki hjálpað til í þessum akstri. Það eru margir þættir sem hafa gert það að verkum að þetta hefur verið svolítið strembið.“ Pálmar segir að verið sé að ráða nýja bílstjóra inn í stað þeirra sem sögðu upp og verið sé að þjálfa þá. Það bitni þó ekki á akstrinum þar sem það séu um 200 starfsmenn hjá fyrirtækinu og aðrir sem fari inn í þetta á meðan. Hann segir ástandið vera að lagast. „Strætó er á fullu að stilla strengina í þessu, það er stór hópur af fólki að vinna baki brotnu við að setja þetta í það horf sem menn horfa til. Þetta er allt saman að skána og lagast. Þetta á til lengri tíma litið að vera í alla staði mun betra. Ég er bjartsýnn á að það gangi. Við erum að sjá batamerki á þessu dag frá degi.“ Formaður stjórnar Strætó, Bryndís Haraldsdóttir, segir verið að vinna í þeim vandræðum sem hafi komið upp. „Þjónustan er að batna, við erum að ná meiri árangri, það er minni biðtími og sjaldnar sem kemur fyrir að fólk er seint, það eru jákvæðu fréttirnar. En augljóslega hafa orðið mikil frávik og við hörmum það mjög,“ segir Bryndís. „Við höfum öll fulla trú á því að við náum vel utan um þetta verkefni og getum veitt góða þjónustu,“ segir hún.
Mest lesið Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Innlent Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Innlent Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Innlent Kristrún tilbúin í aðgerðir Innlent Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Innlent „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Erlent „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Innlent Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Innlent Fleiri fréttir Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Ekki búið að finna nýjan lögreglustjóra hátt í hálfu ári síðar Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Árekstur við Hamraborg Engin aðstoð við próftöku og litaðar númeraplötur Uppsagnir hjá Klettabæ Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Kristrún tilbúin í aðgerðir Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Ákærður fyrir að nauðga sofandi og ölvaðri dóttur sinni Væntingar um útspil tengt gjaldahækkunum Neituðu sök við þingfestingu Straumsvíkurmálsins Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Sniðganga geti verið túlkuð sem yfirlýsing ríkisstjórnarinnar Fjórir í gæsluvarðhald eftir hraðsendingu frá Þýskalandi Ekkert svigrúm í tengslum við kjarasamninga og tvísýnt með framhaldið Lét ákærða vita af andlátinu: „Hann var í miklu uppnámi“ „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Flutningabíll valt á Þverárfjallsvegi sem er lokaður Lægðin grynnist í dag en von á annarri Bíl ekið á ljósastaur Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði Sjá meira