Hörður Zóphaníasson látinn 14. maí 2015 11:52 Hörður Zóphaníasson.
Hörður Zóphaníasson, fyrr skólastjóri Víðistaðaskóla í Hafnarfirði, andaðist á Sólvangi 13. maí 2015 á 85. aldursári. Hann fæddist á Akureyri 25. apríl 1931. Foreldrar hans voru Sigrún J. Trjámannsdóttir, húsfreyja og Zóphanías Benediktsson, skósmiður. Stjúpfaðir Harðar var Tryggvi Stefánsson, skósmiður á Akureyri og síðar bóndi á Þrastarhóli. Hörður lauk kennaraprófi frá Kennaraskóla Íslands 1954 og stundaði nám við Danmarks Lærerhøjskole í Kaupmannahöfn 1968-69. Hann var kennari á Hjalteyri 1954-58, skólastjóri Barna- og unglingaskólans í Ólafsvík 1958-60, kennari við Flensborgarskólann 1960-70 (yfirkennari 1963-70) og skólastjóri Víðistaðaskóla frá stofnun 1970 til 1992. Hann stofnaði fyrsta foreldrafélagið við skóla í Hafnarfirði. Hörður var bæjarfulltrúi Alþýðuflokksins í Hafnarfirði 1966-74 og 1978-86. Hann gegndi fjölmörgum trúnaðarstörfum fyrir flokkinn, sat m.a. í stjórn SUJ (varaformaður), miðstjórn og framkvæmdastjórn Alþýðuflokksins og var formaður kjördæmisráðs Alþýðuflokksins í Reykjaneskjördæmi. Hörður sat m.a. í stjórn Ungmennafélags Möðruvallasóknar, UMSE, Sparisjóðs Hafnarfjarðar, öldrunarmiðstöðvarinnar Hafnar (formaður), Kaupfélags Hafnfirðinga (formaður), KRON, SÍS, yfirkjörstjórnar BSRB (formaður), Sjúkrasamlags Hafnarfjarðar, Barnaverndarfélags Hafnarfjarðar (formaður) og Félags kennara á eftirlaunum. Hörður var virkur í skátahreyfingunni alla ævi, fyrst í Skátafélagi Akureyrar, stjórnaði síðan skátafélögum í Kennaraskólanum, á Hjalteyri og í Ólafsvík og var í mörg ár félagsforingi Hraunbúa í Hafnarfirði. Hann var lengi í forystu St. Georgsgilda á Íslandi, m.a. landsgildismeistari, og heiðursfélagi Hraunbúa og St. Georgsgildisins í Hafnarfirði. Eftir Hörð liggja tvær ljóðabækur, Vísnagaman og vinamál (1996) og Hugsað í hendingum (2011). Skátakórinn, Lítið eitt, Rúdolf, Randver o.fl. hafa flutt texta hans á hljómplötum. Hörður samdi námsefni fyrir grunnskóla: reikningsbækur (með öðrum, 1972-76, 1993) og Hafnarfjörður – bærinn minn I-III (með kennsluleiðbeiningum, 1993-97). Meðal annarra ritverka hans eru Árdagar, saga SUJ í 35 ár (1966), Verkamannafélagið Hlíf 100 ára (ásamt Ólafi Þ. Kristjánssyni, 2007), Dýrmæt ár: fjörutíu ára saga Félags eldri borgara í Hafnarfirði (2008) og Sveinar kátir syngið! – 100 ára saga Þrasta (2012). Hörður var einnig í ritstjórn ýmissa blaða og tímarita og samdi og þýddi fjölmargar greinar. Hörður kvæntist Ásthildi Ólafsdóttur (f. 1933) hinn 26. desember 1953 og eignuðust þau sjö börn.
Mest lesið Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Erlent Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Innlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Innlent Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Innlent Lögmenn fagna niðurstöðu EFTA-dómstólsins Innlent „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Innlent Úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald Innlent Fleiri fréttir Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald Lögmenn fagna niðurstöðu EFTA-dómstólsins Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Umferðarslys við Nýbýlaveg í Kópavogi Gæsluvarðhald sonar þingmannsins aftur framlengt Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Hló að svari sambýliskonunnar Tilboð hrikalega hátt yfir kostnaðaráætlun Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Möguleg tengsl við heilabilun Skora á borgina að afturkalla uppsagnir á samningum við listamenn Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn „Enn ein vondu tíðindin af þessu máli“ Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Verðbólga, uppsagnir og mikil notkun svefnlyfja Forstjórar leita lausna Fulltrúi prentara vill verða forseti ASÍ Sýklalyfjanotkun í dýrum jókst um rúm tuttugu prósent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ „Dýr geta augljóslega ekki sjálf leitað réttar síns“ Segir upp eftir tvær vikur í starfi Lægð upp að landinu og önnur dýpri á morgun Tólf með réttarstöðu sakbornings vegna andláts á Stuðlum Einn stöðvaður sem var að „drifta“ á hringtorgi Sjá meira