Sakar seðlabankastjóra um hræðsluáróður Höskuldur Kári Schram skrifar 14. maí 2015 18:45
Formaður Starfsgreinasambandsins sakar seðlabankastjóra um hræðsluáróður og segir fátt geta komið í veg fyrir verkfallsaðgerðir í næstu viku. Hann segir útilokað að fallast á sáttatilboð Samtaka atvinnulífsins. Samtök atvinnulífsins lögðu í síðustu viku fram sáttatilboð í deilu þeirra við Starfsgreinasambandið en þeir segja að tilboðið feli í sér 23,5 prósenta hækkun dagvinnulauna á samningstímanum. Starfsgreinasambandið hefur gagnrýnt þessa útreikninga og Drífa Snædal framkvæmdastjóri sambandsins sakaði SA um blekkingar í samtali við Fréttablaðið í síðustu viku. Björn Snæbjörnsson formaður sambandsins tekur í sama streng og segir útilokað að fallast á þetta tilboð. „Þetta er þriggja ára samningur sem gerir ráð fyrir 30 þúsund króna hækkun. Svo áttu að fara að kaupa yfirvinnu og lengingu á dagvinnu til þess að fá einhver átta prósent þannig að þetta er ekki allt gull sem glóir þó það sé hægt að finna einhverja háa prósentutölu,“ segir Björn. Næstu verkfallsaðgerðir Starfsgreinasambandsins hefjast á þriðjudag í næstu viku og standa í tvo daga. Boðað hefur verið til sáttafundar á mánudag en Björn segir fátt benda til þess að hægt verði að koma í veg fyrir verkföll. „Það er hægagangur í málinu og staðan mjög erfið,“ segir Björn. Már Guðmundsson seðlabankastjóri sagði í fréttum Stöðvar tvö í gær að miklar launahækkanir muni hafa slæm áhrif á vinnumarkaðinn og jafnvel leiða til aukins atvinnuleysis. Björn sakar seðlabankastjóra um hræðsluáróður. „Þetta er að hluta til bara hræðsluáróður. Það er verið að reyna að hræða okkur. Ég hef ekki heyrt hann tala um þetta í tengslum við það sem aðrir hafa verið að fá og menn voru búnir að búa til ákveðna launastefnu áður en við fórum af stað,“ segir Björn.
Mest lesið Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Erlent Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Innlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Innlent Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Innlent Lögmenn fagna niðurstöðu EFTA-dómstólsins Innlent „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Innlent Úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald Innlent Fleiri fréttir Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald Lögmenn fagna niðurstöðu EFTA-dómstólsins Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Umferðarslys við Nýbýlaveg í Kópavogi Gæsluvarðhald sonar þingmannsins aftur framlengt Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Hló að svari sambýliskonunnar Tilboð hrikalega hátt yfir kostnaðaráætlun Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Möguleg tengsl við heilabilun Skora á borgina að afturkalla uppsagnir á samningum við listamenn Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn „Enn ein vondu tíðindin af þessu máli“ Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Verðbólga, uppsagnir og mikil notkun svefnlyfja Forstjórar leita lausna Fulltrúi prentara vill verða forseti ASÍ Sýklalyfjanotkun í dýrum jókst um rúm tuttugu prósent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ „Dýr geta augljóslega ekki sjálf leitað réttar síns“ Segir upp eftir tvær vikur í starfi Lægð upp að landinu og önnur dýpri á morgun Tólf með réttarstöðu sakbornings vegna andláts á Stuðlum Einn stöðvaður sem var að „drifta“ á hringtorgi Sjá meira