Æfir aðalhlutverk á Metropolitan í New York Magnús Guðmundssson skrifar 28. apríl 2015 10:15 Dísella Lárusdóttir sópran og Antonía Hevesi píanóleikari. Visir/Valli
Dísella Lárusdóttir sópransöngkona kemur fram á hádegistónleikum Íslensku óperunnar í Hörpu í dag. Hún segir tónleikana stórsniðuga fyrir þá sem vilja kynna sér undraheim óperunnar. „Það er alveg tilvalið fyrir áhugasama að byrja á því að koma á hádegistónleikana og finna smjörþefinn. Finna hvað þetta er flott og fágað form. Óperusöngurinn er líka svo miskunnarlaus, ef feilnótan kemur þá bara er hún þarna og maður er gjörsamlega nakinn gagnvart þessu,“ segir Dísella og hlær. Á hádegistónleikunum ætlar Dísella að syngja þrjár þekktar aríur og þrjú söngljóð við undirleik Antoníu Hevesi. En hennar bíður líka spennandi verkefni á komandi hausti. „Já, ég er að fara að æfa titilhlutverkið í Lulu eftir Alban Berg hjá Metropolitan-óperunni í NY og það verður goðsögnin James Levine sem stjórnar. Ég æfi þetta upp sem varasöngkona fyrir aðalstjörnuna en hver veit nema að tækifærið komi og ég fái að fara eitthvað á svið. Það er að minnsta kostið gríðarlega spennandi fyrir mig að fá að takast á við þetta hjá svona flottum hljómsveitarstjóra og við sjálfa Metropolitan-óperuna. Það stóð til á síðasta ári að ég fengi hlutverk í Verdi undir stjórn Levine en ég þurfti að hafna því af því að ég átti von á barni. Svo fæddist mér yndislegur drengur og heimurinn reyndist mér áfram góður með því að veita mér annað tækifæri við Metropolitan. Svo er ég farin að huga að því að kynna mig kannski aðeins í Evrópu svo það er nóg fram undan.“
Mest lesið Dóttir Obama í íslenskri hönnun Tíska og hönnun Fréttatía vikunnar: Kæra, Hafþór og Florencia Lífið Fólk streymi inn í þjóðgarðinn í rjómablíðu Lífið James Burrows látinn Bíó og sjónvarp Nýir útvarpsþættir að norðan: „Ef eitthvað fer illa þá bara fer það illa“ Lífið „Ég verð bara að gera það, hvort sem mér líkar betur eða verr“ Lífið Gull og gimsteinar leynast víða Lífið Búast við fimmtán gráðum og sól á Þingvöllum Lífið Íhugaði meiðyrðamál vegna nafnlausra Facebook-færslna Lífið Klassíkin heldur velli en ný bragðævintýri ryðja sér til rúms Lífið samstarf Fleiri fréttir Fólk streymi inn í þjóðgarðinn í rjómablíðu Gull og gimsteinar leynast víða Nýir útvarpsþættir að norðan: „Ef eitthvað fer illa þá bara fer það illa“ Fréttatía vikunnar: Kæra, Hafþór og Florencia Anne Hathaway á von á sínu þriðja barni Bjórinn nefndur eftir lagi hljómsveitarinnar Kaleo Hilmir Snær og Vala í aðalhlutverkum í „öskugráum hjónaleik“ Búast við fimmtán gráðum og sól á Þingvöllum „Ég verð bara að gera það, hvort sem mér líkar betur eða verr“ Íhugaði meiðyrðamál vegna nafnlausra Facebook-færslna Leikkonan Margrét Helga Jóhannsdóttir er látin Hönnuðir nota blóm á mjög óvenjulegan hátt Opnar sig um sambandið við Harry Styles: „Mjög þung byrði og ekki eitthvað sem ég öfunda hann af“ Hvað eiga antisportistar að gera meðan HM stendur yfir? Barnastjarna úr Lilo&Stitch og The Ring látin Hvað veistu um... HM karla í fótbolta? Flúði Pútín og þurfti svo að glíma við MAST Sjötugar á TikTok og elska fíflaganginn Svaf til fóta eftir fyrstu sambandsslitin „Það reikna allir með að ég sé að nota þetta sem einhvern stökkpall“ Djömmuðu sem dauðasyndirnar sjö Hafþór Júlíus reynir að hafa uppi á manni „Okkur var nánast sópað út af dansgólfinu“ Tuttugu gellur á einu kvöldi Dorrit á trampólíni 24 Jump Street á leiðinni Dagskráin í Reykjavík á 17. júní verður svona Inga Reynis selur hæð í Hafnarfirði Jakob Frímann stal senunni í hátískuskyrtu Stjörnulífið: Sjóðheit skvísuferð til Ibiza Sjá meira