Við þurfum að hjálpa fuglunum að lifa af Sandra Guðrún Guðmundsdóttir skrifar 28. apríl 2015 15:13 Gunnar gefur smáfuglunum Visir/Vilhelm „
Það er mikilvægt að fólk geri sér grein fyrir því að fyrir fuglana þá er ekkert æti að fá. Það verður að gefa þeim eins og um hávetur sé að ræða þar til að frost fer úr jörðu,“ segir Gunnar Vilhelmsson íbúi í Grafavogi og fuglavinur. „Ég gef fuglunum alltaf allan veturinn en þegar snjóa leysir láta þeir sig hverfa. Nú eru svona hundrað fuglar í trénu hérna fyrir utan heima hjá mér.“ Fuglarnir hafa verið að koma í vetur í garðinn til Gunnars. Hann segir þá hafa snúið aftur því ekkert æti sé að finna í náttúrunni. Gunnar segir að þetta séu skógarþrestir og svartþrestir, þeir séu próteinætur og því séu fræ ekki nóg fyrir þá. „Við höfum verið að gefa þeim hvolpamat því hann er svo próteinríkur, ég hef aðstöðu til þess þar sem ég er eigandi Dýraríkisins. En þetta þarf ekki að vera hágæðafóður þetta fæst í flestum verslunum og er betra en maískurlið sem verið er að gefa. Þeir fá enga næringu úr því.“ Gunnar og konan hans hafa verið að gefa fuglunum um það bil sex kíló á dag en hann segir það hafa farið upp í 15 til 20 kíló yfir vetrartímann. Hann segist þó ekki geta fullyrt um það hvort mikið af fuglum deyi yfir vetrartímann. „En ég hef heyrt að fólk sé að rekast á dauða þresti fyrir norðan.“ „Ég held bara að fólk kveiki ekki, það er kominn 28. apríl og fólk heldur að það þurfi ekkert að gefa þeim, það þarf að ýta við fólki. Þetta er búinn að vera mjög harður og erfiður vetur og við þurfum að hjálpa fuglunum að lifa þetta af.“
Mest lesið Engin ákvörðun fyrr en eftir kosningar en íbúar uggandi Innlent Spurningunni verði breytt og svarið einfalt „Já“ eða „Nei“ Innlent Fjórar „brúðir ISIS“ snúa aftur til Ástralíu Erlent Setja skýr skilyrði fyrir meirihlutasamstarfi í Reykjavík Innlent „Það yrðu gríðarleg vonbrigði ef svo væri“ Innlent Gerir hlé á „frelsisaðgerðum“ í Hormússundi Erlent Hantaveiruskipið á leið til Kanarí og kemur ekki til Íslands Erlent Kona á sjötugsaldri lenti á sjúkrahúsi með 125 pakkningar innvortis Innlent Á sextugsaldri og sótti um fimmtíu störf en fær ekki vinnu Innlent Undirstöður Fossvogsbrúar reknar niður í sjávarbotninn Innlent Fleiri fréttir Eldur í mannlausri rútu í Laugardal Spurningunni verði breytt og svarið einfalt „Já“ eða „Nei“ Örlítið fleiri fæðingar en frjósemin stendur í stað Ein minniháttar líkamsárás á annars rólegri vakt lögreglu Engin ákvörðun fyrr en eftir kosningar en íbúar uggandi Hættum að vera þjóð ef við höldum ekki upp á íslenskuna Undirstöður Fossvogsbrúar reknar niður í sjávarbotninn Setja skýr skilyrði fyrir meirihlutasamstarfi í Reykjavík „Það yrðu gríðarleg vonbrigði ef svo væri“ Kona á sjötugsaldri lenti á sjúkrahúsi með 125 pakkningar innvortis Vill fjölga börnum sem eru eingöngu á brjósti til sex mánaða Burðardýr í bráðaaðgerð og hindranir í samstarfi Gögnum nemenda mögulega stolið af Canvas Mælti sér mót við barn og réðst á það Talstöðinni í Kópavogi lokað: Enginn talmeinafræðingur tilbúinn til að taka við rekstrinum Ný könnun í Kópavogi: Meirihlutinn heldur en Samfylking á siglingu Sættir sig ekki við niðurstöðu klofins Mannréttindadómstóls Hátt í hundrað heimili hugsanlega yfir tekjumörkum hjá Félagsbústöðum Herjólfur siglir frá Landeyjum og um þrjú prósent hjá Félagsbústöðum með tekjur umfram skilyrði Allt í blússandi botni í Bolungarvík þrátt fyrir lokun Kjörbúðarinnar Á sextugsaldri og sótti um fimmtíu störf en fær ekki vinnu Pallborðið: Kópavogsoddvitar mætast og glæný könnun Vonarneisti eftir erfiðan vetur Erla Björg ráðin menningarritstjóri Rúv Veðsjúkir giska á að Hildur verði næsti borgarstjóri Enn aðeins hægt að sigla til Landeyjahafnar við kjöraðstæður Tímabært að ræða einhverfu kvenna Hafi aldrei átt að taka á móti svona miklu rusli Tvær líkamsárásir og nokkrir þjófnaðir á höfuðborgarsvæðinu Lögðu herbergið í rúst og létu sig hverfa Sjá meira