Vaknaði við gassprengingu: Rithöfundurinn segir þetta skrýtna upplifun Nanna Elísa Jakobsdóttir skrifar 28. apríl 2015 16:23 Þórarinn býr í íbúð skáhallt á móti þeirri sem sprenging varð í í nótt. Vísir/Valli/Spreepicture
Slökkvilið var kallað að blokk í Berlín nú snemma í morgun vegna elds og reyks í einni íbúð hússins. Í ljós hefur komið að eldurinn stafaði af gassprengingu í íbúðinni. Talið er að íbúi hafi framkallað hana til þess að taka eigið líf en lögregla hefur ekki fengist til þess að staðfesta það. Samkvæmt þýskum fjölmiðlum segja íbúar hússins manninn hafa verið í sjálfsvígshugleiðingum deginum áður. Hann lést í sprengingunni. Þórarinn Leifsson, rithöfundur, vaknaði við sprenginguna en hann býr í húsinu sem stendur skáhallt á móti því sem sprengingin varð. „Hálft húsið er alveg ónýtt. Þrjár efri hæðirnar ónýtar,“ segir hann og lýsir aðstæðum í götunni í dag þegar Vísir náði af honum tali. „Þetta var mjög skrýtin upplifun.“ Þórarinn setti færslu á Facebook í dag þar sem hann lýsir atvikinu. „Vaknaði í nótt við torkennilega dynki og raddir sem hrópuðu „Allahu akbar“,“ skrifar Þórarinn. Hann segist í fyrstu hafa talið að um ættarmót sem fór úr böndunum hafi verið að ræða. „Ég var heila mínútu að koma mér fram úr og sá þá hvernig svartur mökkur stóð út úr fjórðu hæð í húsinu skáhallt á móti okkur. Á götunni fyrir neðan var hópur arabískra kvenna og karla með lítil börn í fanginu, allir í miklu uppnámi eins og gefur að skilja. Nú hefur komið í ljós að einhver maður ákvað að taka líf sitt með gasi. Sprenging út frá því var nógu öflug til að veggir féllu saman og rúður brotnuðu. Þetta grandaði ekki bara þessum eina ólukkufugl, heldur slasaði tíu aðra manneskjur, sex eru enn á sjúkrahúsi, þar af einn mikið slasaður. Rauði Krossinn innar í götunni tók að sér átján manneskjur sem komast ekki heim til sín í bili.“ Vinur Þórarins og konu hans, Auðar Jónsdóttur, rithöfunds, gisti hjá þeim hjónum í nótt. Hann hafði lagt bílnum sínum við húsið sem sprengingin varð í. „Ég plataði hann til að skutla annarri vinkonu okkar heim þannig að hann fékk stæðið ekki aftur,“ útskýrir Þórarinn. Síðan í morgun hafði bílinn sem lagt hafði verið í stæði vinarins verið dreginn á brott. „Ég dró hann út í morgun til að sýna honum að ég hefði bjargað bílnum hans.“ Staðfest hefur verið að efstu þrjár hæðir hússins eru ónýtar og að maðurinn í íbúðinni hafi opnað fyrir gas í mjög litlu herbergi. Þrátt fyrir það er sjálfsmorðstilraun enn óstaðfest. Lesa má um málið hér og hér.
Mest lesið Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Innlent Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Erlent Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Erlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Innlent Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Innlent Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Innlent Leitaði að sveppum í Breiðholti í indíánabúningi Innlent Fleiri fréttir Kröpp og djúp lægð og varasamar vindhviður Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Leitaði að sveppum í Breiðholti í indíánabúningi Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald Lögmenn fagna niðurstöðu EFTA-dómstólsins Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Umferðarslys við Nýbýlaveg í Kópavogi Gæsluvarðhald sonar þingmannsins aftur framlengt Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Hló að svari sambýliskonunnar Tilboð hrikalega hátt yfir kostnaðaráætlun Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Möguleg tengsl við heilabilun Skora á borgina að afturkalla uppsagnir á samningum við listamenn Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn „Enn ein vondu tíðindin af þessu máli“ Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Verðbólga, uppsagnir og mikil notkun svefnlyfja Forstjórar leita lausna Fulltrúi prentara vill verða forseti ASÍ Sýklalyfjanotkun í dýrum jókst um rúm tuttugu prósent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ „Dýr geta augljóslega ekki sjálf leitað réttar síns“ Segir upp eftir tvær vikur í starfi Sjá meira