Forvitin hrefna kom svo nálægt hvalaskoðunarbát að það hefði verið hægt að klappa henni Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 29. júlí 2015 10:43 Hrefnan var í og við hvalaskoðunarbátinn úti við Gróttuvita í rúman hálftíma í gærkvöldi.
Erlendir ferðamenn sem voru í hvalaskoðun í gærkvöldi úti við Gróttuvita eignuðust nýjan vin ef svo má segja þegar ung hrefna kom og heilsaði upp á þau. „Þetta var svona um níuleytið, við komum þarna, ég drap á vélunum og hún var þarna í og við og í kringum bátinn. Hún hefur verið forvitin um hvað við værum að gera þarna og bara viljað heilsa upp á okkur,“ segir Borgar Björgvinsson, skipstjóri á hvalaskoðunarbátnum Rósinni frá Special Tours og bætir við að þetta hafi verið mögnuð upplifun. Ferðamennirnir níu sem voru um borð hafi skiljanlega verið himinlifandi með hvalaskoðunina. „Hún kom svo nálægt að ég hefði getað klappað henni en ég vildi nú ekki gera það. Hún var þarna að sniglast í kringum okkur í rúman hálftíma og synti í kringum bátinn og undir hann,“ segir Borgar. Hann segir það óalgengt að hrefnur komi svona nálægt hvalaskoðunarbátum eins og sú forvitna gerði í gærkvöldi. Þá segir Borgar það mjög misjafnt hversu margir hvalir sjáist í hverri ferð. „Eins og í gær í þessari ferð sáum við sex hrefnur. Oftast sjáum við eitthvað, eins og til dæmis núna í júlí þá höfum við séð hrefnur í 98% ferða hjá okkur.“ Í myndbandinu hér að neðan sem Borgar tók má sjá hrefnuna þar sem hún heilsar upp á ferðamennina í hvalaskoðuninni í gær.Eitt magnaðasta sem ég upplifað í hvalaskoðunni.Posted by Borgar Björgvinsson on Tuesday, 28 July 2015
Mest lesið Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Innlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Innlent Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Innlent Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir Innlent Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Erlent „Sorglegt að þetta sé staðan“ Innlent Fleiri fréttir Talsvert fleiri karlar en konur teknir fyrir akstur undir áhrifum „Sorglegt að þetta sé staðan“ Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Einum sleppt úr gæsluvarðhaldi og tveir eftir Gagnrýna harðlega fyrirhugaðar skatta- og gjaldahækkanir Ekið á hjólreiðamann í Kópavogi Reykjanesbraut verður lokað vegna framkvæmda Fella niður rannsókn vegna E. coli-sýkingar á Mánagarði Ný göngubrú vígð Íslenskar jökulár úr geimnum Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Fluttur með þyrlu á slysadeild eftir slys í tengivirki Ekki ákveðið hvort lagareldisfrumvarpið verði endurflutt Símafrí sett en PISA sýnir engin skýr tengsl við betri námsárangur Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir „Við erum ekki að mismuna eftir þjóðerni með þessum hætti“ Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Harðari tónn en áður hafi verið sleginn Uppsagnir, undarleg taktík og umtöluð ræða Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Sjá meira