Innlent

Lífaldur kvenna hríðfallið: „Aðvörun fyrir okkur Íslendinga“

sunna karen sigurþórsdóttir skrifar
"Við þurfum að horfa til þess að við höfum ekki haft nógu mikinn mannafla í heilsugæslu og það er sú stétt sem fylgir eftir fjölskyldum og á að þekkja áhættuþætti fjölskyldna.“
"Við þurfum að horfa til þess að við höfum ekki haft nógu mikinn mannafla í heilsugæslu og það er sú stétt sem fylgir eftir fjölskyldum og á að þekkja áhættuþætti fjölskyldna.“ vísir/getty
Lífaldur kvenna í Bretlandi hefur hríðfallið og ekki verið eins lágur í um tvo áratugi. Lífsstíll þeirra er farinn að svipa æ meira til lífsstíls karla, konur eru farnir að reykja og drekka í meiri mæli ásamt því að hreyfingu er ábótavant. Þetta kemur fram í nýrri breskri rannsókn sem Telegraph sagði frá.

Arnar Hauksson kvensjúkdómasérfræðingur segir slíkar fregnir eiga að vera Íslendingum víti til varnaðar. „Undanfarið hefur hallað á verri veg. Það hefur verið flótti úr breskum sjúkrahúsum og heilsugæslustöðvum til Evrópu út af miklu álagi og launum þannig að Bretar hafa verið á eftir okkur í heilsufarseftirliti,“ sagði hann í þættinum Reykjavík síðdegis í gær. Því sé mikilvægt að huga betur að heilbrigðiskerfinu hér á landi.

Endurnýjunin ekki næg

„Við höfum verið að missa talsvert úr landi og líka hérna á Íslandi. Við þurfum að horfa til þess að við höfum ekki haft nógu mikinn mannafla í heilsugæslu og það er sú stétt sem fylgir eftir fjölskyldum og á að þekkja áhættuþætti fjölskyldna og fylgja því svo eftir til langs tíma. En þegar við missum þessa ágætu sérfræðinga úr okkar út af heilsugæslunni þá verður ekki nægileg endurnýjun. Það að sjálfsögðu leiðir til þess að fólk sem er ekki þeim mun ákveðnara og frekar að troða sér inn í eftirlit annars staðar að það er ekki undir sama öryggsiventli og þeir sem enn hafa sína heimilislækna.“

Þá segir hann íslenskar konur upp til hópa heilbrigðar. Þær stundi meiri líkamsrækt og hugi betur að líkama og sál en til dæmis þær bresku. „En þetta er aðvörun fyrir okkur Íslendinga þegar við fáum svona fréttir að utan. Við byrjum að horfa í okkar eigin heim. Hvað hafa þeir gert sem við erum ekki að gera á Íslandi?“

Íslenskar konur dregist aftur úr

Í tölum frá Hagstofunni sem gefnar voru út í fyrra voru lífslíkur íslenskra kvenna lengi vel hæstar í heiminum. Þær hafa þó dregist nokkuð aftur úr stallsystrum sínum í Evrópu á þessari öld. Ástæðan er hraðari aukning ævilengdar í nokkrum Evrópulöndum.

Árið 2012 var meðalævilengd íslenskra kvenna 84,3 ár. Elstar evrópskra kvenna verða konur á Spáni, Frakklandi og Liechtenstein. Íslenskir karlmenn voru þó langlífastir árið 2012 en frá árinu 2000 hafa þeir bætt við sig rúmlega tveimur árum í meðalævilengd.

Viðtalið við Arnar Hauksson má heyra í spilaranum hér fyrir neðan. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×