Voru búnar að vinna 19 heimaleiki í röð í Pepsi-deildinni | Sjáið mörkin Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 29. maí 2015 09:00 Úr leik Stjörnunnar og Selfoss í gær. Vísir/Pjetur
Íslandsmeistarar Stjörnunnar töpuðu í gær fyrsta heimaleik sínum í Pepsi-deild kvenna í 996 daga eða frá því í september 2012. Meistaraflokkar Stjörnunnar, karla og kvenna, voru einnig búnir að spila 43 leiki í röð í Pepsi-deildinni án þess að tapa sem er Íslandsmet eða alla leiki síðan að Stjörnukonur töpuðu í fyrstu umferðinni í fyrra. Selfoss mætti á Samsung völlinn í gærkvöldi og vann 2-1 sigur en Guðmunda Brynja Óladóttir skoraði sigurmarkið á 68. mínútu leiksins. Stjörnuliðið var fyrir þennan leik búið að vinna 19 heimaleiki í röð í Pepsi-deildinni eða alla leiki sína frá því að liðið tapaði 3-1 á móti ÍBV 4. september 2012. Þetta gerir tveggja ára, átta mánaða og 24 daga sigurganga liðsins á Samsung vellinum en markatalan í þessum 19 sigurleikjum í röð var 76-5, Stjörnunni í vil. Harpa Þorsteinsdóttir skoraði mark Stjörnunnar í tapleiknum í gær og hún skoraði líka eina mark liðsins í tapinu á móti ÍBV haustið 2012. Það var hinsvegar ekki nóg fyrir Garðabæjarliðið að þessu sinni en Harpa hafði skoraði eina markið í síðasta heimaleik Stjörnunnar á undan þessum. Það er hægt að sjá mörkin úr leiknum hjá Sporttv-mönnum með því að smella á þennan tengil.
Pepsi Max-deild kvenna Mest lesið Gripinn í PSG-treyju í skrúðgöngu Arsenal Enski boltinn Blóðbað í Köben: „Þetta var helvítis bras“ Sport Missir af HM í fótbolta vegna samfélagsmiðlafærslu Fótbolti Draumurinn ekki dáinn hjá Bergrós Sport Dalglish greindi óvart frá baráttu sinni við krabbamein Enski boltinn Ver val á meintum kynferðisbrotamanni Fótbolti Fékk ekki að ferðast með landsliðinu til Bandaríkjanna Fótbolti HM-minning: Óheiðarlegasta heimsmeistarakeppni allra tíma Fótbolti Bodö/Glimt græddi yfir sex milljarða á Evrópuævintýrinu Fótbolti „Tímabilinu sem aldrei hófst er nú lokið“ Sport Fleiri fréttir Þróttarar með mikilvægan sigur á Grindvíkingum Eini grasleikurinn kom í veg fyrir markamet Plataði líka myndatökumanninn upp úr skónum Emilsþruma, þrenna, fjórtán ára með stoðsendingu og markaveislur út um allt Kjánaleg hegðun og stælar sem verðskuldi rautt spjald „Eins gott að ég setti ekki Óskar á bekkinn“ „Fúlt að fara með þennan skell inn í hléið“ Afturelding á toppinn eftir stórsigur á Fylki Umfjöllun og viðtöl: KR - KA 5-3 | Markaveisla á Meistaravöllum Uppgjörið: Valur - Víkingur 1-5 | Sakbitinn Óskar lék við hvurn sinn fingur í glæsilegum sigri Víkings „Engan bilbug á okkur að finna“ Umfjöllun: Þór - Stjarnan 1-3 | Lífsnauðsynlegur sigur Garðbæinga „Ákvað að kontra hann í samúel“ Gerði sínu gamla liði mikinn grikk Leik lokið: ÍBV – Keflavík 6-1 | Flugeldasýning í fyrsta sigri Eyjamanna Grótta í toppbaráttu, Ægir vann aftur og Vestri fagnaði í Breiðholti Öll mörkin: Sjáðu þrennu varamannsins og sturlunina á Akureyri Þór/KA - Víkingur 4-6 | Víkingur Reykjavík á sigurbraut Óskar Smári: „ Ánægður með varnarleikinn, stigin og úrslitin“ Uppgjörið: FH - Fram 6-2 | FH-liðið hrökk í gang í seinni hálfleik með Niu í broddi fylkingar Sjö marka veisla og Skagasigur gegn lánlausum FH-ingum Gri/Nja - Breiðablik 0-5 | Blikar refsuðu heimakonum grimmilega Stjarnan - ÍBV 2-0 | Garðbæingar á sigurbraut „Vissi bara ekki hvað var að gerast hérna“ „Arfaslakir og undir í öllum þáttum leiksins“ „Allir tala um hvað ég er gamall“ Uppgjör: FH - ÍA 0-1 | ÍA sótti sigur í Kaplakrika Fram - Breiðablik 4-3 | Fara fljúgandi í landsleikjahléið Valur - Þróttur 0-1|Sigra manni færri á útivelli Óskar Hrafn framlengir í Vesturbæ Sjá meira
Uppgjörið: Valur - Víkingur 1-5 | Sakbitinn Óskar lék við hvurn sinn fingur í glæsilegum sigri Víkings