Egill dreginn sundur og saman í nöpru háði Jakob Bjarnar skrifar 23. febrúar 2015 13:49 Hannes og Davíð hæðast að Agli og benda fólki á að senda honum blóm, þó ekki stjúpur.
Hannes Hólmsteinn Gissurarson prófessor, vekur sérstaka athygli á Staksteinum dagsins í dag, sem hann segir Davíð Oddsson skrifa, í nýjum bloggpistli sínum: „Davíð Oddsson ritstjóri gerir síðan gys að Agli í Staksteinum dagsins í dag,“ skrifar Hannes Hólmsteinn, ánægður með sinn mann. En til umfjöllunar er Egill Helgason sjónvarpsmaður. Í Staksteinum segir meðal annars: „Eftir síðasta Reykjavíkurbréf tekur Egill kollhnís, sem eru töluverð viðbrögð af hans hálfu. Eyjan fullyrðir að á Fésbók skrifi Egill að Reykjavíkurbréfið sé „sprenghlægilegt“ og „þvílík misnotkun á einu dagblaði!“ [...]Það bætir ekki úr skák að þessi óhugnanlegi atburður átti sér stað „Við Reykjavíkurtjörn“ og margir vita hvaða fól orti það. Góðviljaðir menn hljóta því að fordæma þessa hótun um viðvarandi ofsóknarskort, sem virðist hafa verið staðið við, sem undirstrikar bara óþverraskapinn. Menn ættu að senda Agli blóm til huggunar, þó ekki fleiri stjúpur.“ Þarna er fast skotið en stjúpmóðir Egils var í eina tíð Sigrún Davíðsdóttir pistlahöfundur RÚV ohf, þannig að þarna eru slegnar tvær flugur í einu höggi, að mati þeirra Hannesar og Davíðs. Hannes greinir frá því að hann, Ragnar Önundarson og fleiri menn hafi verið að ræða málin á Facebook, í rólegheitum, þegar skyndilega gall í Agli að Reykjavíkurbréfið, þar sem Davíð gerir grein fyrir afdrifaríku láni Seðlabankans til Kaupþings, að það sé „sprenghlægilegt“ og Morgunblaðið misnotað“. Hannes Hólmsteinn segist hafa bent Agli á að sjálfur þætti hann nú ekki alltaf „óhlutdrægur sem umræðustjóri Ríkisútvarpsins, en sá er munur á þeim fjölmiðli og einkamiðlum, að okkur er öllum gert að greiða til hans. Ég get ekki sagt Agli upp, þótt ég geti sagt Davíð upp.“ Aftur gellur í Agli, að sögn Hannesar, að „ég hefði eitt sinn hótað sér við Reykjavíkurtjörn að ofsækja sig ekki. Væru að því vitni.“ Og sú hótun þykir Hannesi Hólmsteini og Davíð fyndin; víst er að þeim þykir Egill ekki merkilegur pappír og af ýmsu er að taka í væringum milli þeirra og Egils.
Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Innlent Á spítala eftir misheppnaða aftöku Erlent Valgerður réttir fram sáttahönd Innlent Tilkynnt um ölvaðan flugmann Innlent Flutningabíll valt á Þverárfjallsvegi sem er lokaður Innlent Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði Innlent Nú er hægt að taka Strætó alla leið að flugstöðinni Innlent Fleiri fréttir „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Flutningabíll valt á Þverárfjallsvegi sem er lokaður Lægðin grynnist í dag en von á annarri Bíl ekið á ljósastaur Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði ESA geti ekki beðið endalaust Valgerður réttir fram sáttahönd Vill að Daði vísi til þess sem hún á að hafa sagt Tilkynnt um ölvaðan flugmann Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Konan sem lögreglan lýsti eftir er fundin Nú er hægt að taka Strætó alla leið að flugstöðinni Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Gera alvarlegar athugasemdir við málflutning Daða Skoðar uppfærslu í 36 sæta rafflugvél Neysla geðrofs-, tauga- og ofnæmislyfja stóraukist Dæmdur fyrir manndráp af gáleysi við Vík Innan við helmingur karla vill refsingar fyrir vændiskaup Árásin rannsökuð sem tilraun til manndráps Bein útsending: Hvernig birtast menntarannsóknir í opinberri umræðu? „Einn aðili sem hefur til þessa skilað auðu“ Telur ESA falla frá málsókn ef Alþingi samþykkir frumvarpið Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Tvöfalda makrílráðgjöf Ragnar Þór vissi ekkert og meirihluti karla vill ekki refsa fyrir vændiskaup Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Sjá meira